Dagur - 01.12.1988, Qupperneq 9
1. desember 1988 - DAGUR - 9
Hans með sclskinnsbuxurnar.
ið okkar, 41864. Selskinnið er
alveg frábært, t.d. er það alveg
pottþétt fyrir íslenska veturinn,
það er svo hlýtt og sterkt og hárin
tolla vel á því. Eiginlega er það
of hlýtt.“ Hans kemur með sel-
skinnsbuxur sem hann hefur
saumað sér og mikið notað. Bux-
urnar eru mjög fallegar og ótrú-
lega mjúkar og ekki sér á þeim
þó að Hans segist hafa lent á göt-
unni í þeim í mótorhjólaóhappi.
Hans ræðir um hvað góð verkun á
skinnunum sé mikilvæg: „Skinn
sem hafa verið unnin hérna
heima eru yfirleitt illa skafin og
mikil fita eftir í þeim en ef skinn-
in eru unnin eins og þessi er þetta
alveg gæðaefni í allt mögulegt. Á
sínum tíma var það meira til
gamans að ég saumaði þessar
selskinnsbuxur og mér datt ekki
í hug að þær ættu eftir að gera
svona mikla lukku. Einnig er
hægt að nota selskinn með öðru
efni, ég hef sett selskinn undir
reimar á leðurbuxum og það
gerði mikla lukku.“
- Vinnurðu úr fleiri efnum en
leðri og selskinni?
„Eg er með mjög fallega gæru
sem er sútuð á Akureyri. Hér
getur fólk fengið leðurfatnað eins
og það vill hafa fatnaðinn, ákveð-
ið sjálft snið og efni. Veiðimenn
geta fengið sérsaumuð skotfæra-
belti, hestamenn hnakktöskur,
höfuðleður og beisli, það er eig-
inlega allt hægt að gera. Við lit-
um leðurfatnað, getum bæði
breytt alveg um lit eða frískað
upp snjáðan fatnað. Slysagöt er
gert við, annaðhvort með því að
skipta um heilu stykkin eða líma
bót undir gatið.“
- Ertu bjartsýnn á framtíð
Litla skinnsins?
„Miðað við hvernig þetta er
búið að vera síðan við byrjuðum,
fólk hefur verið mjög jákvætt og
nú er það farið að taka við sér
með nýsmíði og meiriháttar
breytingar á fatnaði. En í vor
hugsum við okkur að fara til
Reykjavíkur og taka við leður-
verkstæði þar.“ IM
setu á Húsavík
[æf og skynsöm
ugluna að fá mús annað slagið af
því að mýs væru aðalfæða uglna á
veturna. Núna er uglan búin að
vera hjá okkur í rúma tvo mán-
uði, er orðin alveg spikfeit, gæf
og allt í lagi með hana. Ég ætla
að reyna að hafa hana í vetur og
sleppa henni svo aftur upp á
heiðina næsta vor. Það er ekkert
víst að hún fari langt frá okkur
því hún er orðin svo hænd að
okkur.
Ég held að þetta sé ungur fugl.
Við höfum mjög gaman af henni
og mér finnst hún skynsöm, fyrst
var hún í búri sem var með lúgum
að ofan og hún var búin að læra
að opna lúgurnar og þannig slapp
hún út nokkrum sinnum en fór
þó ekki langt." IM
Þingeyjarsýsla:
Hreingernmgarþjómistan
með skrúbbana á loftí
Hólmfríður Kr. Agnarsdóttir ug Jóhannes Pálsson færa til skáp svo hægt sé
að gera hreint á bakvið hann.
Hreingemingarþjónustan nefn-
ist nýtt fyrirtæki sem Hólm-
fríður Kristbjörg Agnarsdóttir
hóf að reka nú í nóvember.
Þjónustan sem boðið er upp á
er hreingerning á heimilum, í
fyrirtækjum og stofnunum,
teppahreinsun og húsgagna-
hreinsun og auk þess er hægt
að fá gamalt bón fjarlægt og
síðan bónað upp á nýtt. Að
sjálfsögðu var Dagur viðstadd-
ur er fyrsti veggurinn var þveg-
inn á vegum fyrirtækisins og
getur með góðri samvisku vott-
að að þar var beitt hröðum
handtökum og vönduðum
vinnubrögðum. Jóhannes
Pálsson, sem rekið hefur
hreingerningarþjónustu á
Akureyri í 16 ár var kominn til
að kenna réttu handtökin við
hreingerninguna en nemendur
hans voru Hólmfríður og Jóna
Þóroddsdóttir sem einnig mun
starfa við hreingerningarnar.
Hólmfríður var spurð um til-
drögin að stofnum fyrirtækisins:
„Ég starfaði við heimilishjálp í
vor og líkaði það mjög vel, fannst
mjög gaman að kynnast fólkinu
sem ég vann fyrir og gaman hvað
allir tóku mér vel. Fullorðinn
maður sem ég var að vinna fyrir
stakk upp á þessu við mig, sagði
að ég væri á réttum aldri til að
stunda hreingerningar. I rauninni
hafa mér aldrei leiðst meiriháttar
tiltektir. Ég hef verið að hugsa
um þetta í sumar og svo sá ég
fram á að ég yrði atvinnulaus og
þá dreif ég í þessu. Mér vitanlega
er slík þjónusta ekki til staðar hér
í sýslu nema teppa- og húsgagna-
hreinsun á Húsavík og svo er
hægt að fá leigðar teppahreinsi-
vélar.“
- Er rnikil fyrirhöfn og dýrt að
hefja slíkan rekstur?
„Ég þurfti að kaupa bíl og
keypti fjórhjóladrifinn bíl til að
vera betur fær um að geta veitt
þessa þjónustu um alla sýsluna.
Svo þurfti ég líka að kaupa vélar
og fleira. Ásgeir Leifsson, iðn-
ráðgjafi hjálpaði mér mikið með-
an á undirbúningi stóð. Jóhannes
Pálsson, sem rekið hefur svona
fyrirtæki á Akureyri, hefur leið-
beint mér, kennt, reynst mérein-
staklega vel og stutt mig af ráðum
og dáð og flciri hafa hjálpað til.
Fólk hefur verið afskaplega
jákvætt, tckið hugmyndinni um
þennan rekstur vel og nú þegar
liggja fyrir nokkrar pantanir á
hreingerningu. Við verðum tvær
sem vinnum við hreingerningarn-
ar en síðan get ég fengiö fleiri til
vinnu Cf þörf verður á.“ 1M
Jóna Þóroddsdóttir, Jóhannes Pálsson og Hólmfríður Kr. Agnarsdóttir tilbúin að skúra, skrúbba og bóna. Myndir. im
áNorðurlandi ■
Sambandsskíp að sunnan á Akureyri alla mánudagsmorgna.
Takið vikuna snemma með
SKIPADEILD SAMBANDSINS AKUREYRI
Hafnarstræti 91-95, sími 27797