Dagur - 01.12.1988, Page 14
'U _ CJMrvAn ... ttPUI- t
14 - DAGUR - 1. desember 1988
Vidskíptaviiiir
athugið!
Vöruafgreiðsla á Akureyrarflugvelli verður
opin til kl. 12.00 laugardaginn 3. desember.
FLUGLEIÐIR jS
—--------- *
Háskólinn
á Akureyri
Opinn fyrirlestur verður í tengslum við
heilbrigðisdeild laugardaginn 3. desember
kl. 10.00-12.00.
EFNI: Lög og reglugeröir varöandi starfsréttindi heilbrigöis-
stétta.
FYRIRLESARI: Vilborg Ingólfsdóttir hjúkrunarfræöingur.
STAÐUR: Húsnæöi Háskólans á Akureyri við Þórunnar-
stræti, stofa 24 (Iðnskólahúsið).
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI.
Skrifstofutækni
Markmið með náminu er að mennta fólk til starfa á
nútíma skrifstofum. Megináhersla lögð á viðskipta-
greinar og notkun tölvu.
★ Tölvubókhald
★ Verslunarreikningur
★ Toll- og veröútreikningar
★ Innflutningur
★ Stjórnun og mannleg
samskipti
★ Viöskiptaenska
★ Almenn skrifstofutækni
Ath. Nú er nær fullbókað á janúarnám-
skeið.
Innritun lýkur 9. desember.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34 • Sími 27899.
★ Almenn tölvufræöi
★ Stýrikerfi
★ Töflureiknar og
áætlanagerð
★ Gagnasafnsfræði
★ Tölvufjarskipti
★ íslenska
★ Bókfærsla
.t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
EYÞÓR HELGI TÓMASSON,
forstjóri,
Ásvegi 32,
Akureyri,
lést að kvöldi þriðjudagsins 29. nóvember á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri.
Hitdur Eiðsdóttir
og börn hins látna
HALLDÓR ÞORSTEINSSON,
frá Grýtubakka i Höfðahverfi,
til heimilis að Norðurbrún 1, Reykjavík,
andaðist 27. nóvember sl. á Landspítalanum.
Vandamenn.
Eiginmaður minn,
HEIÐREKUR GUÐMUNDSSON,
skáld,
Eyrarvegi 23,
Akureyri
er látinn.
Kristín Kristjánsdóttlr.
Kristmundur Bjarnason á Sjávarborg tekur við viðurkenningunni úr hendi Harðar Bergmann formanns Hagþenkis.
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna:
Viðurkenning veitt Kristmundi
Bjamasyni á Sjávarborg
- íyrir margháttuð rit- og fræðistörf hans
Gunnar Gíslason fyrrv. prófastur á Glaumbæ, ávarpaði Kristmund og óskaði honum til
hamingju með viðurkenninguna. Við borðið situr Kristmundur á milli dætra sinna, frá
vinstri Guðnín, Bryndís og Heiðbjört. Myndir: -bjb
Kristmundi Bjarnasyni á Sjáv-
arborg í Skagafirði var í síð-
ustu viku veitt viðurkenning
frá Hagþenki, félagi höfunda
fræðirita og kennslugagna, í
kaffisamsæti í Safnahúsinu á
Sauðárkróki. Hörður Berg-
mann, formaður Hagþenkis,
afhenti Kristmundi viðurkenn-
inguna, 100 þúsund krónur, en
þetta er í annað sinn sem
Hagþenkir veitir slíka viður-
kenningu. I fyrra var það nátt-
úrufræðingurinn Helgi Hall-
grímsson sem hana hlaut.
Rökstuðningur stjórnar Hag-
þenkis fyrir viðurkenningunni til
handa Kristmundi er á þessa leið:
„Viðurkenningin er veitt Krist-
mundi Bjarnasyni fyrir fræði-
mennsku og ritstörf sem einkenn-
ast af elju, nákvæmni og listfengi.
Afrakstur starfsins birtist í efn-
ismiklum sagnaritum, ævisögum,
ritgerðum, ritstjórn árbóka og
safnrita og efnissöfnun fyrir þau,
og skýringum og athugasemdum
sem fylgja útgáfum sem hann
hefur annast. Flest eru ritverkin
tengd héraðssögu á Norðurlandi,
einkum Skagafirði og Eyjafirði,
en varpa einstöku og ómetanlegu
Ijósi sínu á mikilvæga þætti í sögu
þjóðarinnar, einkum atvinnu- og
menningarsögu. í ævisögunum
sameinast fræðileg nákvæmni og
skáldlegt innsæi. Verkin eru rituð
á vönduðu og auðugu máli.
Nákvæmni og metnaður fræði-
mannsins, Kristmundar Bjarna-
sonar, birtist m.a. í því að í
nafnaskrám hans er getið fæðing-
ar- og dánarárs. Verkin og heim-
ildaskrárnar bera vitni um fágæta
þekkingu og elju þannig að heim-
ilda er leitað um landið allt og út
fyrir landsteinana.
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
nýtur einstakra ávaxta af fræði-
starfi, elju og útsjónarsemi Krist-
mundar. Hann hefur ekki látið
við það sitja að safna þangað
opinberum gögnum heldur byggt
þar upp safn einkaskjala og ljós-
mynda sem ekki mun eiga sinn
líka í neinu héraðsskjalasafni.
Fyrir safnið gefur hann ásamt
Hjalta Pálssyni út tímaritið
„Safnamál“, sem hefur orðið
fyrirmynd annarra safnrita á
landsbyggðinni.
Kristmundur er ótrúlega iðinn
bréfritari, sendir hundruð bréfa
árlega og svarar með þeim hætti
margháttuðu kvabbi fræðimanna
heima og erlendis og fólks sem
fengið hefur áhuga á að grennsl-
ast fyrir um ættir sínar, þ.á m. er
margur Vestur-íslendingur. Þetta
hefur aflað safninu virðingar og
trausts utan héraðs."
Kristmundur Bjarnason á
Sjávarborg er fæddur á Reykjum
í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði
árið 1919. Stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1940. Hóf
búskap á Sjávarborg 1949 en hef-
ur um langt skeið haft rannsóknir
og ritstörf að aðalverkefni og
gegnt starfi skjalavarðar við Hér-
aðsskjalasafn Skagfirðinga.
Helstu rit Kristmundar eru:
Saga Sauðárkróks, 1-3, saga Dal-
víkur, 1-4, Sýslunefndarsaga
Skagafjarðarsýslu, Jón Ósmann
ferjumaður, Þorsteinn á Skipa-
lóni, 1-2. Hann hefur safnað efni
til margra rita, einn og með
öðrum, og séð um margs konar
útgáfu. Má þar nefna Skagfirð-
ingabók, ársrit Sögufélags Skag-
firðinga; Heimdraga, 1-4, safn
alþýðufróðleiks; minningarþætt-
ina Langt inn í liðna tíð og Sögu
frá Skagfirðingum 1685-1847 eftir
Jón Espólín og Einar Bjarnason.
Þá hefur Kristmundur þýtt tugi
bóka.
Hagþenkir, félag höfunda
fræðirita og kennslugagna, átti 5
ára afmæli á þessu ári, stofnað 1.
júlí 1983. Félagar í dag eru 180
talsins. -bjb