Dagur - 13.12.1988, Qupperneq 1
Skemmdarverk unnin á Akureyri:
Stungið af frá
tveimur ákeyrslum
- rannsóknarlögreglan auglýsir eftir vitnum
Ekið var á tvo kyrrstæða bíla á
Akureyri á föstudag og laugar-
dag. I báðum tilvikum fóru
tjónvaldarnir af staðnum án
þess að gefa sig fram. Þá voru
unnin skemmdarverk á kyrr-
Kaupfélag Eyfirðinga:
Magnús Gauti
kaupfélags-
stjóri
Magnús Gauti Gautason var
ráðinn kaupfélagsstjóri Kaup-
félags Eyfirðinga á Akureyri á
stjórnarfundi í gær.
„Mér líst ágætlega á nýja
starfið,“ sagði Magnús Gauti.
Viðræður við hann hafa staðið
yfir frá því í ágúst síðastliðnum, er
Valur Arnþórsson var ráðinn
bankastjóri Landsbankans. Enn
er óljóst hvenær hann tekur við
starfinu, en stjórn Kaupfélagsins
hefur farið fram á að Valur sinni
starfinu fram að næsta aðalfundi.
Jóhannes Sigvaldason stjórn-
arformaður KEA sagði að engar
dagsetningar hefðu verið ákveðn-
ar varðandi kaupfélagsstjóra
skiptin.
Magnús Gauti, sem er rekstrar-
hagfræðingur hefur verið aðstoð-
arkaupfélagsstjóri frá því í sept-
ember, en þar á undan gengdi
hann starfi fjármálastjóra Kaup-
félagsins. mþþ
stæðum bifreiðum víðar um
bæinn.
Á föstudag var ekið á kyrr-
stæða Mözdu 929, rauða að lit,
milli kl. 13.30 og 14.50, til móts
við Ránargötu 18. Skráningar-
númer bílsins er A 7866. Vinstri
hlið Mözdunnar skemmdist
talsvert.
Á laugardagskvöld milli kl.
23.00 og miðnættis gerðist það
við Smárahlíð 9 að ekið var á
bifreiðina A 9642, drappaðan
Subaru. Hægra afturhorn bílsins
skemmdist. Talið er að ökumað-
urinn sem þarna var að verki hafi
verið á Skoda bifreið.
Aðfaranótt sunnudags voru
unnar skemmdir á fjórum kyrr-
stæðum bifreiðu sem stóðu í
Munkaþverárstræti og auk þess
einni bifreið sem stóð fyrir fram-
an smurstöð Esso og Þórshamars
hf. við Tryggvabraut. Spellvirkj-
arnir skemmdu bílana í Munka-
þverárstræti með því að brjóta á
þeim spegla, snúa upp á rúðu-
þurrkur o.s.frv. Fyrir utan þetta
var farið inn í fleiri kyrrstæða
bíla, opnaðar á þeim dyr og
ljós kveikt án þess að bílarnir
væru beinlínis skemmdir. Tekið
skal fram að bílarnir voru ólæstir.
Að því búnu lá leiðin niður á
Eyri. Átt var við bíla sem stóðu á
bílasölu Höldurs og rúða brotin í
bifreið sem lagt var við smurstöð
Esso og hún einnig skemmd að
innan. Rannsóknarlögreglan á
Akureyri biður þá sem geta gefið
upplýsingar um einhver þessara
atvika að gefa sig fram hið fyrsta
eða gefa lögreglunni upplýsingar
á annan hátt. EHB
Jólatré baðað ljósum
Fjöldi fólks kom saman í IVIiðbæ Akureyrar á laugardaginn, en þá voru Ijós tendruð á jólatré því sem bærinn fékk
að gjöf frá Randes, vinabæ sínum í Damnörku. Við athöfnina flutti Sigfús Jónsson ávarp og sagði m.a. að jólatréð
væri orðið eitt af friðartáknum hins kristna heims. Ingimar Eydal flutti og ávarp fyrir hönd Norræna félagsins og
Valur Arnþórsson ræðismaður Dana á Akureyri afhenti bæjarbúum tréð formlega. Það var svo fimin ára gamall
Akureyringur, Ásta Eybjörg Þorsteinsdóttir scm kveikti Ijósin á trénu og ■ Ijósadýrðinni hljómaði söngur Passíu-
kórsins og leikur Hornailokks Tónlistarskólans. Að lokum var gegnið í kringum jólatréð. Á innfelldu myndinni er
Ásta Eybjörg í fangi Vals Arnþórssonar. inþþ
Mynd: TLV
Hofsóshreppur sviptur ljárræði
- fær greiðslustöðvun í þrjá mánuði
Félagsmálaráðuneytið svipti
sveitarstjórn Hofsóshrepps
fjárræði í gær og hefur ráðu-
neytið farið fram á greiðslu-
stöðvun til þriggja mánaða.
Skipuð hefur verið þriggja
manna fjárhagsStjórn til að
hafa yfirumsjón með fjárráð-
um hreppsins á meðan verið er
að laga stöðuna. Á þeim tíma
getur sveitarstjórnin ekki stað-
ið í neinum fjárútlátum án þess
að hafa samráð við fjárhags-
stjórnina. Er þetta í fyrsta sinn
sem þeirri klásúlu nýju sveit-
arstjórnarlaganna, er veitir
félagsmálaráðuneytinu heimild
til að svipta sveitarstjórn fjár-
ræði, er beitt.
Það var fyrir nokkru sem sveit-
arstjórn Hofsóshrepps lagði inn
beiðni hjá ráðuneytinu um
aðstoð vegna fjárhagserfiðleik-
anna. Skuldir hreppsins nema nú
Þetta var algjört neyðarúrræði
segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
„Þetta er mjög slæmt dæmi og
aðgerðir ráðuneytisins voru
algört neyðarúrræði. Það var
engin önnur útgönguleið úr
þessu dæmi,“ sagði Jóhanna
Sigurðardóttir, félagsmálaráð-
herra í samtali við Dag í gær-
kvöldi.
Félagsmálaráðherra sagðist
ekki geta sagt fyrir um hvort
þriggja mánaða greiðslustöðvun
myndi nægja til þess að koma
fjárhag sveitarfélagsins á réttan
kjöl. „Ég vil keppa að því að fjár-
haldsstjórn sitji eins skamman
tíma og mögulegt er. Ég vil byrja
með fjárhaldsstjórn til þriggja
mánaða en það gæti svo farið að
hún óskaði eftir lengri fresti og
samkvæmt lögunum getur hún
setið í allt að eitt ár. En ég vil
byrja með þrjá mánuði og sjá
hvort það muni duga. Ég get
raunverulega ekkert sagt um
hvort slíkur tími dugar en þrír
mánuðir til að byrja með sýna að
mér er mikil alvara í því að þetta
taki sem skemmstan tíma,“ sagði
Jóhanna. Hún mun skipa í þessa
þriggja manna nefnd í dag. Fé-
lagsmálaráðuneytið tiinefnir tvo í
nefndina en einn er tilnefndur af
Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga. Fjárhaldsstjórn mun taka
yfir alla stjórn fjármála Hofsós-
hrepps. Engar greiðslur má inna
af hendi úr sveitarsjóði nema
með samþykki hennar.
Aðspurð um ástæður fyrir
þeim vanda sem Hofsóshreppur
stendur nú frammi fyrir sagði
Jóhanna að það væri ljóst að
sveitarfélagið hafi fjárfest langt
umfram greiðslugetu þess. Það
sannaðist best í því að nú væru
skuldir sveitarfélagsins um þrisv-
ar sinnum árstekjur þess. Jó-
hanna sagði ennfremur að hún
vildi leyfa sér að efast um að fleiri
sveitarfélög væru jafn illa sett
fjárhagslega um þessar mundir.
Það væri þó ljóst að mörg smærri
sveitarfélaga berðust nú mjög í
bökkum. óþh
rúmurn 50 milljónum, en áætlað-
ar tekjur þessa árs eru á bilinu
15-20 milljónir. Ástæðan fyrir
þessum erfiðleikum eru offjár-
festingar á undanförnum árum,
sem hafa verið umfram greiðslu-
getu sveitarfélagsins.
„Það versta yrði ef álögur á íbúa
hreppsins hækkuðu. Það gengur
ekki upp. í nýju sveitarstjórnar-
lögunum er heimild til að hækka
álögur allt að 25%, en vonandi
verður ekki farið út í það. Ef það
yrði gert myndi fólk hreinlega
flytja burtu, útlitið er ekki það
bjart,“ sagði Einar Jóhannssson í
samtali við Dag, en hann á sæti í
sveitarstjórn Hofsóshrepps.
Það sem talið er geta bjargað
hreppnum út úr fjárhagsörðug-
leikunum er sameining hrepp-
anna í kring. Hofsóshreppur fór
fram á viðræður við forsvars-
menn þeirra með sameiningu í
huga, og hafa fengist jákvæð við-
brögð frá sumum þeirra. Hrepp-
arnir sem hér um ræðir eru
Fljóta-, Fells-, Hofs-, Hóla- og
Akrahreppur. -bjb