Dagur - 13.12.1988, Qupperneq 7
T3. deaember 1938 - OAQUR - 7
KA vairn í hörkuleik
- en ÍS hefur kært leikinn
KA sigraöi ÍS 3:2 í hörku-
spennandi leik í íþróttahöllinni
á Akureyri á iaugardaginn.
Sérstaklega var fjórða hrinan
spennandi en þá héldu ÍS-
menn að þeir hefðu sigrað í
leiknum er KA smassaði út af
þegar staðan var 14:10. En
Björgúlfur Jóhannsson dómari
dæmdi snertingu á ÍS og KA
náði að merja sigur. IS hefur
hins vegar kært leikinn og telja
þeir að dómarinn hafi flautað
leikinn af þegar KA smassaði
út af vellinum.
Á margan hátt má segja að
KA-liðið hafi verið heppið að
sigra í þessum leik. Leikmenn
liðsins virkuðu fremur þungir og
seinir og er þetta tvímælalaust
slakasti leikur KA-manna á þessu
keppnistímabili.
Hins vegar má ekki líta fram
hjá því að ÍS-liðið er sterkt og
hefur verið að sækja sig eftir
frekar slaka byrjun.
Eins og oft áður í vetur byrjaði
KA-liðið ekkert allt of vel og var
greinilegt á öllu að Stúdentarnir
ætluðu sér að sigra í leiknum. Fei
skoraði að vísu fyrsta stigið með
fallegu smassi en næstu uppgjafir
fóru fyrir lítið.
Varnarleikurinn var frekar
slakur hjá báðum liðum í fyrstu
hrinunni, en aftur sáust mörg fal-
leg tilþrif í sóknarleiknum. Þetta
dugði KA-liðinu til að sigla fram
úr og sigra í fyrstu hrinunni 15:8.
Mikil barátta var í ÍS-liðinu í
næstu hrinu og að sama skapi
ríkti andleysi í herbúðum KÁ-
manna. Sérstaklega var hávörnin
góð hjá gestunum og smössuðu
heimamenn hvað eftir annað í
lúkurnar á KA-mönnum.
Þetta gat ekki endað öðruvísi
en að ÍS ynni auðveldan sigur
15:6.
Það fór um áhorfendur í byrj-
un þriðju hrinunnar. Allt sem
mistekist gat mistókst hjá KA-
mönnum. Uppgjafir fóru í netið,
uppspilið mistókst og smössin
fóru rétt út af. Áður en varði var
ÍS komið með sjö stiga forskot
8:1.
Þá tóku KA-menn langt hlé og
komu mun frískari til leiks. Þeir
söxuðu á forskot ÍS og þegar
staðan var 9:6 og 13:10 skiptust
liðin á að vinna uppgjafirnar og
stóð þessi lota yfir í tæpan hálf-
tíma. En forskot ÍS var of mikið
og þeir náðu að merja sigur
15:13, eftir að KA hafði náð að
jafna 13:13.
Fjórða lotan var sú mest
spennandi og einnig sú afdrifa-
ríkasta. Jafnt var á öllum tölum
og hefur undirritaður aldrei verið
jafn spenntur á blakleik.
Leikmenn beggja liða voru
taugaóstyrkir og setti það sinn
svip á leikinn. Einkum voru KA-
menn slakir í lágvörninni og
skoruðu ÍS-ingar mörg stig með
laumum yfir hávörnina hjá KA.
Þegar staðan var 8:7 fyrir KA
settu Stúdentarnir í annan gír og
breyttu stöðunni í 14:10. Þá kom
þetta afdrifaríka smass KA-
manna og dómarinn dæmdi bolt-
ann út af og flautaði leikinn af.
Hann tók hins vegar ekki eftir
því að línuvörðurinn hafði dæmt
snertingu á ÍS og meðan ÍS-menn
fögnuðu ákaft á gólfinu hljóp
línuvörðurinn til dómarans og
skýrði honum frá málavöxtum.
Dómarinn benti því leikmönn-
um að hefja leikinn að nýju og
var það gert þrátt fyrir mikii mót-
mæli Stúdenta. En þá var eins og
allur vindur væri úr gestunum og
skoraði KA sex stig í röð og sigr-
aði í hrinunni 16:14.
Úrslitahrinan var jöfn og
Knattspyrna:
Jón Grétar
velur KA
Jón Grétar Jónsson sóknar-
maður úr Val hefur nú ákveðið
að ganga til liðs við KA-menn.
Eins og sagt var frá í Degi fyrir
helgi var hann að hugsa málið
og nú hefur Valsmaðurinn sem
sagt ákveðið fyrir víst að skipta
um félag.
í samtali við Dag staðfesti Stef-
án Gunnlaugsson formaður
knattspyrnudeildar KA að Jón
Grétar hefði gengið frá félaga-
skiptum um helgina. „Við erum
auðvitað mjög ánægðir með að
hafa fengið þessa tvo sterku leik-
menn, Ormarr og Jón Grétar, til
liðs við okkur og erum því bjart-
sýnir á góðan árangur liðsins
næsta sumar,“ sagði formaður-
inn.
Jón Grétar Jónsson spilar með KA
næsta suinar.
skemmtileg en þó virtust ÍS-ing-
ar eitthvað miður sin eftir fagn-
aðarlætin. KA hafði frumkvæðið
í þessari lotu en tókst samt ekki
að hrista ÍS af sér.
Heimamenn voru alltaf undan
að skora en ÍS náði í hvert skipti
að kvitta fyrir. Tölurnar 3:3, 6:6,
9:9, 11:11, 13:13, 14:14 sáust, en
að lokum skoruðu KA-menn tvö
stig í röð, sigruðu í lotunni 16:14
og unnu þar með leikinn 3:2.
En ÍS hefur nú kært leikinn
vegna þess að þeir telja að dóm-
arinn hafi þegar flautað leikinn af
og ekki sé hægt að breyta þeim
dómi. Málið verður tekið fyrir
hjá BLI fljótlega og verður
spennandi að sjá hver úrskurður
dómstólsins verður.
Stefán Magnússon forntaður
deildarinnar og leikmaður KA
hafði lýst yfir áhyggjum fyrir
þennan leik og taldi að hann yrði
erfiður vegna niðursveiflu í lið-
inu. Hann hafði rétt fyrir sér og
var KA-liðið slakt að þessu sinni.
Það var helst Stefán Jóhannsson
sem sýndi einhver tilþrif, en ann-
ars er þetta leikur sem leikmenn
vilja áreiðanlega gleyma, nema
e.t.v. úrslitunum.
Hjá ÍS bar mest á Bóa stóra og
Bóa litla, þ.e. þeim Friðjóni
Bjarnasyni og Þorvarði Sigfús-
syni. Einkum var Þorvarður góð-
ur í þessum leik og átti hann
marga gullfallega smelli í leikn-
um.
Enn tapa stelpurnar
Stelpunum í KA liðinu tókst ekki
að standa að neinu ráði í ÍS-stelp-
unum og enn eitt tap þeirra í vet-
ur varð því staðreynd.
Það var einungis í fyrstu hrin-
unni sem KA veitti ÍS einhverja
keppni. En það dugði ekki til og
Stúdínur sigruðu 17:15.
Þá var eins og KA-stelpurnar
gæfust upp og ÍS vann því léttan
sigur 15:3 í tveimur næstu hrinum
og þar með leikinn 3:0.
Staðan
í blakinu
1. deild karla
KA 8 8-0 24- 7 363:271 16
Þróttur R. 8 5-3 17-10 328:245 10
ÍS 8 5-3 19-13 351:312 10
HK 7 4-3 15-11 292:254 8
HSK 6 1-5 4-16 177:284 2
Fram 5 0-5 3-15 169:254 0
Þróttur N. 4 0-4 2:12 145:205 0
1. deild kvenna
Víkingur 6 6-0 18- 1 282:128 12
ÍS 7 6-1 19- 7 306:214 12
Þróttur N. 5 4-1 10- 9 209:213 8
UBK 5 2-3 9- 9 218:220 4
HK 5 2-3 8-11 199:236 4
Þróttur R. 6 2-4 8-14 233:299 4
KA 8 0-8 10- 3 217:354 0
Stefán Jóhannsson skoraði falleg stig gegn IS.
Mynd: TLV
Akureyrarmot í lyftingum:
Haraldur með tvö
íslandsmet
- annað hæsta stigaskor hér á landi
Akureyrarmeistaramót í lyft-
ingum var haldið í íþróttahöll-
inni á Akureyri föstudaginn
9.12. í flokki fullorðinna setti
Haraldur Ólafsson tvö glæsileg
íslandsmet; 177,5 kg í jafn-
höttun og 312,5 í samanlögðu.
í drengjaflokki setti Kristján
Magnússon þrjú íslandsmet; 80
kg í snörun, 100 kg í jafnhöttun
og 180 kg í samanlögðu.
Annars urðu sigurvegarar í
einstökum flokkum þessir:
Drengir:
56 kg flokkur:
Snörun Jafnh. Saml.
Aðalsteinn Jóhannsson 40,0 50,0 90,0
82,5 kg flokkur: Kristján Magnússon 80,0 100,0 180,0
Fullorðnir:
67,5 kg flokkur: Tryggvi Heimisson 80,0 95,0 175,0
82,5 kg flokkur: Haraldur Ólafsson 135,0 177,5 312,5
90,0 kg flokkur:
HermannJónsson 77,5 80,0 157,5
Þess má einnig geta að Haraldur
Ólafsson varð stigahæstur með
376,18 stig og er það annað hæsta
stigaskor hérlendis frá upphafi.