Dagur - 15.04.1989, Page 1

Dagur - 15.04.1989, Page 1
72. árgangur Akureyri, laugardagur 15. apríl 1989 72. tölublað TEKJUBRÉF KJARABRÉF fjArmál pIm SÉRGREIN OKKAR FjARFESTlNGARFELAGID, Ráðhústorgi 3, Akureyri Vorið er komið á Fífílbrekku við Akureyri eins og glöggt má sjá á þessari mynd. Þar bar ein ærin óvenju snemma og eru þetta sjálfsagt ein fyrstu lömbin í Eyjafirði. En Albert Gíslason frá Fífílbrekku er ánægður með það og lætur vel að litlu vorlömbunum tveimur, þó móðirinn gæti þess að allt fari vel fram. Mynd: tlv Knútur Karlsson, fyrrv. framkvæmdastjóri Kaldbaks á Grenivík, og fleiri stofna nýtt fiskverkunarfyrirtæki á Svalbarðseyri: Knarranes verkar Ítalíu- skreið á SvaJbarðsströnd - búið að reisa hjalla í Ystuvíkurhólum Stofnað hefur verið nýtt fyrir- tæki Knarranes, sem mun væntanlega um helgina hefja skreiðarverkun á Svalbarðs- eyri. Eigendur fyrirtækisins eru Knútur Karlsson og fjöl- skylda hans, hlutafélagið Hlaðhamar hf. á Svalbarðs- strönd og tveir aðilar í Reykja- vík. Knarranes hefur tekið á leigu húsnæði á Svalbarðseyri sem er í eigu Samvinnubankans. Þar er ætlunin, a.m.k. fyrst um sinn, að vinna fisk til skreiðarverkunar en engin áform eru uppi um stöðuga fiskvinnslu allt árið á vegum þessa nýja fyrirtækis. Fiskurinn verður hengdur upp í hjalla í Ystuvíkurhólum, sem á síðustu dögum hefur verið unnið að því að reisa. Knarranes verður ekki eftirbátur annarra fiskverkunar- fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu og beinir því sjónum fyrst og fremst að verkun Ítalíuskreiðar, en hún hefur gefið allgóðan pen- ing í aðra hönd, þ.e.a.s ef verkun hennar heppnast. Knútur Karlsson, einn eigenda og framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins, segir að tilgangur með stofn- un fyrirtækisins sé fiskverkun en „það eina sem vit er í núna er Ítalíuskreiðarverkun. Við mun- um því einungis hengja upp fisk fyrir Ítalíumarkað á næstu vikum,“ segir Knútur. Hann seg- ir að ekki sé markmiðið að halda úti stöðugri vinnslu allt árið. „Við munum leggja áherslu á þá vinnslu sem er hagstæð á hverj- um tíma. Við teljum að nú séu nógu mörg fyrirtæki með vinnslu undir núllinu og því er ekki ástæða til að bæta einu í þann hóp,“ segir Knútur. Hráefnis til vinnslunar segir Knútur að verði fyrst og fremst aflað í gegnum fiskmarkaði en einnig sé hugmyndin að trillur á Svalbarðseyri leggi upp hjá fyrir- tækinu. Skreiðarverkun á Ítalíumarkað fer nokkru fyrr af stað á Eyja- fjarðarsvæðinu en undanfarin ár. Þær raddir hafa heyrst að fisk- verkendur taki nokkra áhættu með þessu vegna viðkvæmni Ítalíuskreiðarinnar fyrir frosti, a.m.k. á fyrstu dögum þurrkun- ar. Talað er um að hættumörk séu við -5 gráðu markið. Knútur segir það vissulega rétt að menn taki vissa áhættu. Hann bendir þó á að miðað við reynslu undan- farinna ára sé áhættan ekki veru- leg. óþh Akureyri: Norðurlandamótið ílyftmgumí fþróttahöliiimi - keppni hefst kl. 14 í dag Norðurlandamótið í ólympísk- um lyftingum fer fram í Iþróttahöllinni á Akureyri um helgina. Mótið hefst kl. 14 í dag laugardag, með keppni í léttari þyngdarflokkunum cn á inorgun sunnudag, hefst keppni kl. 13 og þá verður keppt í þyngri flokkunum. Alls mæta 33 lyftingamenn til leiks að þessu sinni og koma þeir frá Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og íslandi. íslensku keppendurnir eru 7 og þar af eru 3 frá Akureyri, þeir Haraldur Ólafsson, Snorri Arnaldsson og Tryggvi Heimisson en auk þess Rcykvíkingarnir Guðmundur Sigurðsson, Guðmundur H. Hclgson, Þorstcinn Leifsson, og Agnar M. Jónsson. Norðurlandamótið um helgina er cinn stærsti íþróttaviðburður hcrlendis á árinu og óhætt er að hvctja norðlenska íþróttaáhuga- mcnn til að fjölmenna í Höllina og hvctja okkar mcnn til sigurs. -KK Leikfélag Akureyrar: Nýtt leikhús- ráð mun ráða leikhússtjóra - umsóknarfrestur rennur út í dag I dag rennur út umsóknarfrest- ur um stöðu leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar en umsóknarfresturinn var fram- lengdur til 15. apríl. Valgerður H. Bjarnadóttir, formaður leikhúsráðs, sagði í samtali við Dag í gær að nokkrar umsókn- ir hefðu borist til viðbótar þeim fímm sem áður höfðu komið inn á borð leikhúsráðs. Væntanlega verður ekki geng- iö frá ráðningu leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar fyrr en um mánaðamótin apríl-maí og mun núverandi leikhúsráð þá ekki taka afstöðu til umsóknanna. Aðalfundur Leikfélags Akureyr- ar verður haldinn síðustu vikuna í apríl og þá verður kosin ný stjórn. „Það var tekin sú ákvörðun að þar sem verið er að ráða nýjan leikhússtjóra þá sé eðlilegt að nýtt leikhúsráð ráði þann leikhússtjóra. í rauninni væri óeðlilegt að þeir sem að hugsan- lega eru að fara í burtu ráði leikhússtjóra sem á eftir að vinna með öðru fólki,“ sagði Valgerður H. Bjarnadóttir, núverandi for- maður leikhúsráðs. Á aðalfundi Leikfélags Akur- eyrar er jafnvel búist við að ein- hverjar breytingar verði gerðar á skipan leikhúsráðs og ráðið mun síðan skoða umsóknirnar eftir aðalfundinn og taka ákvörðun um ráðningu leikhússtjóra. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.