Dagur - 15.04.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 15. apríl 1989
„Hefur þetta ein-
hvem tímann gerst?“
- æsispennandi einvígi aö þessu sinni
í einvígi að þessu sinni eru
mættir þeir Geirmundur Val-
týsson hljómlistarmaður, með
meiru, og Ágúst Guðmunds-
son framkvæmdastjóri Útgerð-
arfélags Skagfirðinga. Þeir
tóku vel í að taka þátt í keppn-
inni og það er rétt að taka það
strax fram að keppnin var æsi-
spennandi, og hefur einvígið
aldrei verið svona jafnt. Þegar
eru fimm keppendur komnir
áfram og nú verður það annað-
hvort Geirmundur eða Ágúst
sem verður sá sjötti.
Fyrsta spurningin var sérsmíð-
uð fyrir „orginala“, en þeir flösk-
uðu báðir. Geirmundur mundi
ekki árið og Ágúst giskaði á
1971. Geiri var að hugsa um að
segja 1871, þannig að búsetan
hefur verið að þvælast fyrir þeim.
Ágúst sagðist hreinlega hafa mis-
skilið spurninguna. f>á var það
hrákalumman. Hún vafðist fyrir
þeim, Geira datt í hug að hráka-
lumma væri það sem menn spýttu
út sér eftir að hafa hóstað og
Ágústi datt helst í hug að það
væri einhvers konar hrákadallur.
Báðir hlógu innilega þegar þeir
heyrðu rétt svar. Hvorugur með
það rétt og staðan því 0-0.
Þá var það dýrafræðin, Geiri
sagðist ekkert vita um keisara-
mörgæsina og vildi ekki giska.
Ágúst byrjaði á því að spyrja:
„Er hún til?“ en halaði inn sitt
fyrsta stig með því að giska rétt.
Fjórða spurningin var nær þeim
og hafði Geiri alla höfundana
þrjá á hreinu. Ágúst var klár á
þeim bræðrum, Jóni Múla og
Jónasi, en gat ekki þann þriðja.
Staðan því 3-3 og leikurinn að
æsast.
Þeir höfðu fimmtu spurning-
una á hreinu, þó eftir smá
umhugsun, en greinilegt var að
eitthvað mundu þeir frá líffræð-
inni úr skólabókunum. Báðir
komnir með fjögur stig og keppn-
in hálfnuð. í sjöttu spurningunni
hugsuðu þeir sig mjög vel um.
Ágúst sagði: „Ands . . . ég má
ekki svara þessari vitlaust," og
hugsaði málið vel. En ekki tókst
honum að svara rétt, það munaði
tveim árum, en Geiri var með 4
mílurnar á hreinu. Geiri því
komin með 5 stig og Ágúst 4.
Við næstu spurningu, um
afkvæmi asna og hryssu, voru
viðbrögð misjöfn. Ágúst svaraði
„Múldýr“ nær strax, en Geiri var
ekki alveg með þetta á hreinu.
„Hefur þetta einhvern tímann
gerst?“ spurði Geiri efins. í
fyrstu hélt hann að blaðamaður
væri að gera grín að sér, en svo
var ekki. Þetta dýr er víst til út í
hinum stóra heimi! Eftir þessa
sjöundu spurningu var staðan
enn orðin jöfn, 5-5.
Þá var það Mælifellshnjúkur-
inn, fjallið tignarlega sem blasir
við Skagfirðingum á degi
hverjum. Þeim voru boðin
skekkjumörk upp á 10 metra og
Geirmundur stundi mikið, sagði
að það væri skömm að vita þetta
ekki, og var nokkuð langt frá því.
Ágúst sagðist hljóta að hafa
þetta, hann hafi einhvern tímann
gengið á hnjúkinn. Hann var
mjög heitur, vantaði aðeins 18
metra uppá að fá rétt svar. Stað-
an því enn jöfn og tvær spurning-
ar eftir.
í næst síðustu spurningu voru
þeir báðir klárir á í hvaða sæti
Tindastóll lenti, en það stóð í
þeim hvað liðið fékk mörg stig.
Þannig að þarná fengu þcir báðir
eitt stig. Þá var það úrslitaspurn-
ingin, hvort ánamaðkurinn væri
með augu eða ekki. „Þetta hef ég
nú ekki spáð í,“ sagöi Geiri og velti
fyrir sér mörgum möguleikum.
Áð lokum komst hann að þeirri
niðurstöðu að maðkurinn hefði
engin augu og það er laukrétt.
Ágúst sýndi svipuð viðbrögð og
giskaði á að hann væri ekki með
augu. Þarna fengu þeir því sitt
hvort stigið og báðir komnir með
7 stig. Tíu spurningum lokið og
staðan jöfn. Þetta hefur aldrei
komið upp áður í einvíginu og
var því borið undir Geirmund og
Ágúst, hvort þeir vildu auka-
spurningu eða láta varpa hlut-
kesti, til að fá úrslit.
Eftir nokkurt þref var ákveðið
að varpa hlutkesti í votta viður-
vist. Kastað var krónu, Geir-
mundur valdi fiskinn og Ágúst
framhliðina. Upp kom fiskurinn
og það er því Geirmundur sem
kemst áfram, en Ágúst er úr leik,
eftir þessa æsispennandi keppni.
Þar með eru sex keppendur
komnir áfratn, og eftir er að fá
tvo í viðbót. -bjb
Geirmundur Valtýsson
Ágúst Guðmundsson
Rétt svör
1. Hvaða ár fékk Sauðárkrókur kaupstaðarréttindi? (1)
Man það ekki (0) 1971 (0)
1947
2. Hvað er hrákalumma? (1)
Það sem menn spýta út úr sér Hrákudallur (0)
eftir að hafa hóstað (0)
Síðasta lumma
á pönnu
3. Hvað verpir keisaramörgæs mörgum eggjum á ári? (1)
Veit það ekki (0) Einu(l) Einu
4. Hverjir eru höfundar Sæluvikuleikrits Leikfélags Sauðárkróks, „Allra meina bót“? (3)
Jón Múli Árnason, Jónas Árna- Jón Múli Árnason og Jónas Stefán Jónsson, Jón
son og Stefán Jónsson (3) Árnason (2) Múli Árnason og
Jónas Árnason
5. Hvar á tungunni skynjar maður helst sætt bragð? (1)
Nálægt tungubroddinum (1) Við tungubroddinn (1) Nærri tungubroddi
6. Hver var fiskveiðilögsaga íslands árið 1956? (1)
4mílur(l) 12mílur(0) 4 mílur
7. Hvað heitir afkvæmi asna og hryssu? (1)
Veit það ekki (0) Múldýr(l) Múldýr
8. Hvað er Mælifellshnjúkur hár? (1) (Skekkjumörk lOm)
1110 m (0) 880 m (0) 1138 metrar
9. í hvaða sæti lenti Tindastóll í úrvalsdeildinni í körfubolta og hvað fengu þeir mörg stig? (2)
8. sæti(l) 21 stig í 8. sæti (1) 14 stig í 8. sæti
10. Hvað hefur ánamaðkur mörg augu? (1)
Ekkert(l) Ekkert(l) Ekkert
Stig samtals:
7 7 13
matarkrókur
Blessaðir bragðlaukarnir
Pað kennir ýmissa grasa í
matarkróknum að þessu
sinni. Fiskborgarar, ostasúpa
og skúffukaka. Petta hljómar
kannski kunnuglega en ekki
er allt sem sýnist. Til að
mynda er ekki sjálfgefið mál
að steikja fiskborgara á
pönnu, þá er liœgt að mat-
reiða á mun girnilegri hátt.
Skúffukakan er einnig ný-
stárleg og ostasúpan er sann-
kallaður veisluréttur. Gjörið
þið svo vel.
Fiskborgarar
á grænmetisbeði
4-5 fiskborgarar
1 poki frosin grœnmetisblanda,
helst maísblanda
1 laukuj
1 púrra„
1 appelsína ...... ~ '
2 dl appelsínusafi
Grænmetið er sett í eldfast mót,
á botninn, og fiskborgurunum rað-
að ofan á. Léttsteikið lauk og
púrru á pönnu og setjið yfir
fiskinn. Áppelsínusneiðum er
raðað milli fiskborgaranna og
safanum, eða t.d. einni Blöndu,
hellt yfir allt saman. Þetta er síð-
an ofnsteikt í u.þ.b. 20 mínútur
og borið fram með soðnum kart-
öflum og gjarnan hýðishrísgrjón-
um. Góður hversdagsréttur og
ekki of dýr.
Skúffukaka
250 g smjörlíki
200 g sykur
4 egg
250 g hveiti
1 tsk. lyftidufi
100 g súkkulaðibitar
100 g hnetur,/
125 g rúsínur
Safi úr l'/y appelsínu
Smjörlíki og sýkur hrært saman,
eggin sett saman við og að síð-
ustu þurrefnin. Sett í ca 30x2o cm
form og bakað við 175 gráður í
u.þ.b. 50 mínútur. Meðan kakan
er volg er appelsínusafanum hellt
yfir hana. Einnig má í staðinn
setja appelsínuglassúr á kökuna.
Ostasúpa
1 laukur
2 msk. smjör
3 msk. Iiveiti
1 l kjötsoð
3 dl rifinn ostur
1 eggjarauða
1 dl þeyttur rjómi
Saxið lauk og brúnið hann í
smjöri. Hrærið hveiti saman við
og hellið soðinu yfir. Látið sjóða
í 5 mínútur við vasgan hita. Þá er
rifna ostinum bætt í, eggjarauð-
unni og rjómanum. Súpán á ekki
að sjóða eftir að östurinn er kom-
inn út í. Bragðbæta má með salti
og pipar ef þurfa þykir. Einnig er
mjög gott að hafa gúrkubita,
skinkustrimla, aspargus, rækjur
Þessi ostasúpa er gríðarléga góð og gefur ýinsa möguleika.
eða sveþpi í súpiinrii eða til þess
að bera fram í litlum skálum með
henni, eftir smekk hvers og eins.
Borðið síðan endilega gróft og
gott brauð nteð súpunni og kitlið
blessaða bragðlaukana. SS