Dagur


Dagur - 15.04.1989, Qupperneq 3

Dagur - 15.04.1989, Qupperneq 3
Laugardagur 15. aprít 1989 - DAGUR - 3 Áskorun til þingmaima að styðja for- könnun vegna alþjóðlegs flugvaflar í Aðaldal Aðalfundur Ferðamálafélags Húsavíkur og nágrennis var haldinn á Hótel Húsavík sl. miðvikudag. Á fundinum var samþykkt samhljóða ályktun þar sem vakin er athygli á uggvænlegri stöðu atvinnulífs og byggðar í Þingeyjarsýslum, bent á að þjónusta við ferða- menn hafi verið umtalsverður þáttur í atvinnulífi héraðsins og sé meðal þeirra atvinnu- greina sem miklar vonir séu bundnar við, enda nú þegar orðin umfangsmesta atvinnu- greinin í heiminum. Birgir Þorgilsson, ferðamálastjóri mætti á fundinum og flutti Frumvarp um breytingu á bú^árræktarlögum: Búfjáreigendur skyldaðir til vörslu á fé sínu Með samþykkt frumvarps um breytingu á búfjárræktarlögum sem nú er til umfjöllunar á Al- þingi kann að verða breyting á ágangi búfjár á þjóðvegum landsins. Þannig fá sveita- stjórnir lagaheimild til að skylda búfjáreigendur til að hafa búfé sitt í vörslu. Talsverð umræða ’nefur verið um umferð búfjár á þjóðvegum vegna fjölmargra óhappa sem orðið hafa þegar ökutæki keyra á búfé. Heimild sú sem sveita- stjórnir fá með samþykkt áður- nefnds lagafrumvarps getur jafnt tekið til alls lögsagnarumdæmis viðkomandi sveitastjórna eða afmarkaðs hluta þess, svo sem umhverfis þéttbýli eða íjölfarna vegi. Samkvæmt frumvarpinu verð- ur sveitastjórnum heimilt, til að auka öryggi umferðar á þjóðveg- um og að forða ágangi búfjár, að ákveða að eigendum búfjár, þ.e. sauðfjár, geita, nautgripa og hrossa, sé skylt að hafa það í vörslu allt árið, eða tiltekinn hluta ársins. JÓH Akureyri: Árekstur reiðhjóls ogbfls - drengur slapp ómeiddur Síðastliðið fhnmtudagskvöld lenti drengur á reiöhjóli í árekstri viö bifreið og var hann fluttur á Fjórðungssjúkrahús- ið. Hann reyndist ómeiddur og fékk að fara heim að lokinni skoðun. Þetta atvik minnir á það að lögreglan á Akureyri hefur hvatt foreldra til að geyma hjól barna sinna inni aðeins lengur því þótt farið sé að vora eru enn miklir snjóruðningar við götur og gang- stéttir. Ruðningarnir gera það að verkum að börnin hjóla oft úti á miðjum götum auk þess sem út- sýni er víða takmarkað á götu- hornum. Þessar aðstæður bjóða hættunni heim. SS fróðlegt erindi. „í Þingeyjarsýslum eru ein- hverjir vinsælustu dvalarstaðir ferðamanna hérlendis, en til þessa hafa vinsældir héraðsins og aðdráttarafl ekki nýst heimaaðil- um sem skyldi, á meðan ýmsir aðilar utan héraðs reka ferðir sem að meira eða minna leyti grundvallast á þingeyskum nátt- úruperlum,” segir í ályktuninni. Einnig var ályktað um flugvall- armálið: „Fundurinn telur að alþjóðlegur flugvöllur í Aðaldal yrði mjög mikilvæg lyftistöng fyr- ir ferðaþjónustu og raunar allt atvinnulíf í héraðinu og lítur svo á að fullkominn varaflugvöllur sé þjóðarnauðsyn. Fundurinn væntir þess að skammsýni eða kjördæmarígur verði ekki látinn ráða úrslitum í slíku máli, en telur brýnt að almenningur í héraðinu og utan þess fái fyllri upplýsingar til að eðlileg skoðananmyndun geti átt sér stað. F>ví skorar fundurinn á þing- menn Norðurlands eystra að styðja að því að fram fari for- könnun vegna alþjóðlegs flug- vallar í Aðaldal." IM meirí háttar osm HLBOÐ í nokkra daga á ca. 1 kg stykkjum af brauðostinum góða. Verð áður: kr. 595/kílóið Tilboðsverð: kr. S06/A kílóið w"

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.