Dagur


Dagur - 15.04.1989, Qupperneq 6

Dagur - 15.04.1989, Qupperneq 6
T - flUOAQ - 6861 l'nqe 8Í lupebiBgusJ 6 - DAGUR - Laugardagur 15. apríl 1989 Bridge - Bridge Vormót Síðasta mót starfsársins hefst á þriðjudaginn og er það svokallað Vormót. Um er að ræða tvímenningsmót með Mitchell-fyrirkomulagi og tekur það þrjú kvöld. Mótið hefst þriðjudaginn 18. apríl kl. 19.30 í Félagsborg og er nægilegt að spilarar skrái sig á staðnum. Spiluð verða 26 spil á kvöldi. Mótinu lýkur 2. maí en aðalfundur B.A. verður síðan haldinn þriðjudaginn 9. maí. Bridgefélag Akureyrar Hjúkrunarfræðingar Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu- gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina á Djúpavogi. 2. Staða hjúkrunarforstjóra og hálf staða hjúkrun- arfræðings við Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. 3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina í Hólmavík. 4. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Þórshöfn. 5. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina í Neskaupstað. 6. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Egilsstöðum. 7. Staða hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöð- ina í Þorlákshöfn til styttri tíma, frá 15.05. til 30.11. 1989. Akureyrarkirkja: Kirkjulistavika hefst á morgun - guðsþjónusta, myndlistarsýning og tónleikar Kammerhljómsveitarinnar Kirkjulistavika hefst í Akur- eyrarkirkju á morgun, sunnu- daginn 16. apríl, kl. 14 með guðsþjónustu. Þar mun Hornaflokkur norðursins ieika og Kirkjulistavikan verður formlega sett með ávarpi Ragnheiðar Árnadóttur, for- manns sóknarnefndar. Klukk- an 15 verður myndlistarsýning Kristínar Gunnlaugsdóttur opnuð í kapellunni og kl. 17 hefjast tónleikar Kammer- hljómsveitar Akureyrar. Kirkjulistavikan stendur til 23. apríl. Tónleikar Kammerhljómsveitarinnar Kammerhljómsveit Akureyrar efnir til þriðju tónleika sinna á þessum vetri í Akureyrarkirkju sunnudaginn 16. apríl kl. 17, en þar leikur Kammerhljómsveitin, sem skipuð er 40 hljóðfæraleikur- um, franska hljómsveitartónlist og orgelkonsert. Tónleikarnir eru skipulagðir í tengslum við Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju, sem hefst þennan sama dag. Björn Steinar Sólbergsson, orgelleikari Akureyrarkirkju, flytur orgelkonsert eftir Poulenc með hljómsveitinni, en það mun vera fyrsti flutningur á því verki hérlendis. Michael J. Clarke, baritón, syngur með hljómsveitinni tvö lög úr Miðsumarsnótt (Les nuits d’été) eftir Berlioz. Auk þess leikur hljómsveitin nokkur vel þekkt hljómsveitar- verk eins og Nautabanamarsinn (Les torreadors) úr Carmen eftir Bizet; Kopelíuvalsinn eftir Deli- bes; Pavane eftir Ravel, en í því verki leikur Helgi Þ. Svavarsson nemandi við Tónlistarskólann á Akureyri einleik á horn; Síðdegi skógarpúkans (L’aprés midi d’un faune) eftir Debussy og Judex eftir Gounod. Stjórnandi á tónleikunum verður Roar Kvam. Kammerhljómsveitin er skipuð kennurum við Tónlistarskólann á Akureyri og nokkrum nemend- um sem lengst eru komnir. Einn- ig fær hún til liðs við sig 9 hljóð- færaleikara frá Reykjavík. Myndlistarsýning Kristínar Sýning á verkum Kristínar Guð- rúnar Gunnlaugsdóttur verður opnuð í kapellu Akureyrarkirkju á sunnudaginn kl. 15 en Kristín hefur lagt stund á íkonamálun. Málun íkona er ein hefðbundn- asta myndgerð listasögunnar og hefur hún haldist nær óbreytt í 1500 ár. íkonar eru grísk- kaþólskar helgimyndir af Jesú, Maríu mey og dýrlingum og eru íkonar notaðir til bænahalds. Málað er á tréplötu og eru litir og bindiefni eingöngu úr ríki náttúr- unnar. Vinnslan er bæði nákvæm og seinleg. Fyrst eru dökku litirn- ir settir á og síðan þeir ljósu ofan á. Hvert atriði hefur sína merk- ingu, línur, litir, líkamsbygging og andlitsfall. Það er mjög ákjós- anlegt að íhuga og biðja meðan á máluninni stendur, og að lokum er íkoninn blessaður fyrir notkun. Kristín Guðrún er fædd á Akureyri 15. apríl 1963. Hún lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1983 og stundaði myndlistarnám í Mynd- listaskólanum á Akureyri ’83-’84. Hún var í Myndlista- og handíða- skóla íslands 1984-87 og lauk þaðan prófi úr málunardeild. Kristín fór til Rómar veturinn ’87-’88 og lagði stund á íkona- málun. Hún stundar nú nám við ríkisakademíuna í Flórens hjá prófessor Giulietti. SS Söngvakeppni íslands 1989: 8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðv- arnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. 9. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Hvammstanga frá 1. júní 1989 til tveggja ára. 10. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Patreksfirði. 11. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina í Keflavík. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík. Heilbrigðis- og tryggingamálaraðuneytið 11. apríl 1989. Fyrsta lagið kynnt í kvöld Landslagið - Söngvakcppni ís- lands 1989 hefst á Stöð 2 í kvöld, laugardaginn 15. apríl. Þá verður fyrsta lagið kynnt af þeim tíu sem dómnefnd valdi til úrslita. Rúmlega 300 lög bárust í keppnina og telur dómnefndin úrslitalögin 10 endurspegla fjölbreytnina sem þar kom fram. Úrslitalögin verða kynnt á - tíu lög í úrslitum Stöð 2, eitt á dag frá 15.-24. apríl kl. 20.25. Föstudaginn 28. apríl verður bein útsending frá úr- slitunum sem fram fara á Hótel Sögu. Pess má geta að lögin tíu verða gefin út á hljómplötu sem kemur á markað þegar keppnin er um garð gengin. Útgetningar og hljóðritun eru höfundum að kostnaðarlausu. Þá fá höfundar Raðhús á einni hæð með bílskúr □Ol m —:T3)k^“ mi-- - TÍ-"TT Tg^g NR 14 M Erum að hefja byggingu á raðhúsum á einni hæð við Bogasíðu 10-12-14 á Akureyri Stærð 113 fm + 30 fm bílskúr. íbúðirnar verða afhentar fokheldar 1. oktober. Athugið! Hægt er að fá íbúðirnar á hvaða byggingastigi sem er. ^ All /y H3 Allar nánari upplysingar í símum: 96-25131 Haraldur, 96-22351 Guðlaugur. Haraidur og Gucilaugur b>ggir ígaverktaka r Möðfusíðu 6. Simar: Har. 25131. Guðl. 22351. laganna sem lenda í 1.-5. sæti vegleg verðlaun og er heildar- verðmæti þeirra vinninga um þrjár milljónir króna. Þá er best að rifja upp hvaða lög komust í úrslitin og hvaða tónlistarmenn standa á bak við þau: Brotnar myndir - eftir Rúnar Þór Pétursson. Höfundur flytur ásamt Andreu Gylfadóttur. Dúnmjúka dimma - eftir Ólaf Ragnarsson. Höfundur flytur ásamt bræðrum sínum Jóni og Ágústi Ragnarssonum. Ég sigli í nótt - eftir Bjarna Hafþór Helga- son. Júlíus Guðmundsson flytur. Ég útiloka ekkert - einnig eftir Bjarna Hafþór Helgason. Inga Eydal flytur. Fugl í búri - eftir Bergþóru Árnadóttur. Höfundur flytur. Prinsippmál - eftir Pórhall Sigurðsson, eða Ladda. Höfund- ur flytur. Ráðhúsið - eftir Ágúst Ragnarsson. Höfundur og Sveit- in milli sanda flytja. Við eigum samleið - eftir Jóhann G. Jó- hannsson. Sigríður Bcinteins- dóttir og Grétar Örvarsson flytja. Við fljótið - eftir Sigfús E. Arn- þórsson. Júlíus Guðmundsson flytur. Við tvö - eftir Inga Gunn- ar Jóhannsson. Höfundur flytur ásamt Evu Albertsdóttur. SS ITC deildin Mjöll: Almennur deildarfundur ITC deildin Mjöll, heldur almennan deildarfúnd þriðjudag- inn 18. apríl kl. 20.30 í „Zonta- húsinu“, Aðalstræti 54. Allir, sem áhuga hafa á þjálfun og sjálfsmenntun í félagsstörfum, ræðumennsku og skipulagningu eru velkomnir. Fundi lýkur kl. 22.30.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.