Dagur - 15.04.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 15.04.1989, Blaðsíða 7
Gott aö vita um hljómtæki - 5. þáttur: Tóm hjátrú að tvöföld séu betri en einföld - sitthvað um segulbandstæki Þá er komið að fimmta þættinum um hljómtæki. Að þessu sinni er fjallað um segulbandstæki, en það er algengur misskilningur að tæki með tvöföldu segul- bandi séu mun betri en tæki sem einungis hafa yfir einu slíku að ráða. „Oj bara, ein- falt segulband, erðanú drasl,“ er algengt viðhorf meðal þess stóra hóps fólks sem metur gæði hljómtækja eftir útlitinu. En það er stað- reynd að segulbandstæki með tvöföldu bandi ná ekki að verða þolanleg fyrr en komið er ofarlega í verð- flokkinn. Yfirleitt geta því tæki sem fylgja ódýrum samstæðum ekki skilað neinum hljómi, nema kannski í örfáa mánuði. Þess ber þó að geta að þetta á einnig við um aðra hluta í ódýrum samstæðum. En við skulum halda okkur við kassettu- tækin. Upplýsingarnar eru sem fyrr úr bæklingnum Gott er að vita, nr. 1, sem fræðsludeild SÍS gaf út árið 1985. Kassettutæki er að því leytinu til frábrugðið öðrum hljómtækjum að það gefur möguleika á eigin upptök- um. Þetta er eini kostur kassettu- tækja umfram hin tækin, en hann er líka mikil. Sem afspilunartæki standa kass- ettutækin hljómtækjum þó ekki langt að baki og mörg þeirra eru raunar mjög góð. Það er annars nokkuð merkilegt því bandfærslu- hraði þeirra er lítill. Bandfærsluhraði vandaðra spólutækja er venjulega 38 sm/sek þ.e. hraði bandsins framhjá tónhausnum. Bandfærslu- hraði kassettutækja er aftur á móti aðeins 4.75 sm/sek eða um átta sinnum minni. Hljómgæði ráðast að verulegu leyti af hraðanum en margt fleira kemur til. Hinn takmarkaði hraði hefur orðið til þess að aðrar takmarkanir á hljóm- gæðum hafa minnkað. Þar má nefna vandaðra gangverk, mótor og færslubúnað, betri suðhreinsi- búnað, betri tónhausa, betri raf- eindabúnað og síðast en ekki síst betri kassettur. Öll kassettutæki þurfa upþtöku- haus, afspilunarhaus og útþurrkun- arhaus. í ódýrum tækjum er sami hausinn notaður til upptöku og afspilunar. Þetta hefur þann ókost í för með sér að ekki er hægt að hlusta á upptökuna út af bandinu um leið og hún fer fram. Það er hins vegar hægt ef tækið er þriggja hausa. Auðveldara er að gera sér grein fyrir gæðum upptökunnar ef þessi möguleiki er fyrir hendi. Dolby suðhreinsikerfi er svo að segja í öllum kassettutækjum. En sökum þess hvað það hefur þótt takmarkað hefur endurbætt kerfi, Dolby C orðið algengara í betri tækjum. Dbx er annað suðhreinsi- kerfi en nokkuð umdeilt. Dolby HX- professional er ekki eiginlegt suð- hreinsikerfi, heldur sjálfvirkt bias- stilli. HX-proereingöngu í vandaðri tækjum. Biasstilli er einnig á mörg- um nýlegum tækjum sem telst til bóta því stundum þarf að fínstilla það eftir kassettutegundum. Þá eru upptalin þau atriði sem snúa beint að hljómgæðum kassettutækj- anna, en annað mál er síðan þæg- indi við notkun. Spilun í báðar áttir (dual capstan), þá þarf ekki að snúa kassettunni við, gerist oftast með tveimur mótorum í dýrum og vönd- uðum tækjum en með einum mótor í þeim ódýrari. Að spila sama lagið aftur og aftur eða spila kassettuna báðum megin aftur og aftur er möguleiki sem nokkrir framleiðend- ur bjóða upp á. Þetta getur verið til þæginda en kostar alltaf peninga. Svo er einnig um ýmsa aðra hluti sem gera notkunina þægilegri og oft skemmtilegri en of langt mál yrði að telja hér upp. Normal, Chrome og Metal skiptarar eru yfirleitt á kassettutækjum og vísa nöfnin á efnið sem notað er í bönd kassettanna. Ástæðan fyrir skipturunum er sú að tegundirnar þurfa sitt hvorn biasinn. Skiptingin getur verið sjálfvirk í sumum tilfell- um, þá er skynjari í tækinu sem skynjar bandtegundina og breytir bias og tónjöfnun eftir henni. Kassettur Kassettur eða snældur eru algeng- astar í lengdunum 60 mín. og 90 mín. 90 mín. eru heppilegri að því leyti að yfirleitt er hægt að taka upp eina hljómplötu á hvora hlið. Metal kassettur hafa af mörgum verið taldar gefa mest hljómgæði, en bæði er það nú umdeilt og eins eru þær mun dýrari en t.d. Chrome kassettur sem líklega hafa bestu hljómgæði miðað við verð. Hönnun á húsínu og frágangur bandsins inn i kassettunni hefur a.m.k. jafn mikil áhrif á hljómgæðin og bandið sjálft. Framleiðendur eru fjölmargir og gæðin eru misjöfn. Þar fyrir utan virðast sumar kassettur hæfa betur einu tæki en öðru. Til þess að full- kominn árangur náist verður að gera tilraunir með kassettutegundir og mismunandi upptökustyrk, þá er vissulega gott að hafa þriggja hausa tæki. En til þess að tækið sé líklegt til að skila hljómgæðum verða a.m.k. eftirtalin atriði að vera fyrir hendi: Vandaður bandfærslu- búnaður, stilling fyrir Chrome og Dolby C. Annað er valið eftir þörfum og fjárráðum. Hljóðbönd eru úr burðarfilmu úr polyester sem húðuð er með segul- næmu efni annars vegar. Polyester- filma heldur vel lögun, og slitnar frekar en togna. Við spilun er mikil- vægt að húðunin leggist vel að hausum tækisins. Rykkorn sem þar koma á milli eða óhreinindi á haus eöa bandi lyfta bandinu frá, og rýra hljómgæðin. Þessi óhreinindi mynd- ast helst við sóðalega umgengni við bandið, slitnar brúnir, rykfall, reyk- mengað loft, fingraför. Segulsvið frá spennubreytum geta þurrkað út upptökur að hluta. Forð- ast ætti að geyma spólur nálægt rafmagnstækjum eða miöstöðvar- ofnum, og bestu skilyrðin eru þurrt og svalt loft. Nótnaborðhald: Stormsker rær á ný mið Þátturinn í Ríkissjónvarpinu sl. mið- vikudagskvöld þar sem Sverrir Stormsker lék lög af hljómplötu sinni Nótnaborðhald virðist hafa vakið athygli margra. Mörgum kom það í opna skjöldu að soramennið Sverrir gæti gert tónlist sem þessa. Sverrir benti líka réttilega á að um plötuna hefur afskaplega lítið verið fjallað. Og hvað pá að hún hafi verið spiluð (útvarpi. Eg man að vísu eftir einu tilviki á Bylgjunni undir mið- nætti kvöld eitt, skömmu eftir að platan kom út. Platan Nótnaborðhald er eingöngu leikin og sér Sverrir um öll hljóðfær- in. Raunar er aðeins um að ræða hljóðgervil, fyrir utan flygiiinn. Það er sem sé engin sinfóníuhljómsveit á bak við hann, heldur er þetta allt framkallað með hljóðgervli. Það er kannski helsti veikleiki plötunnar, vegna þess að á köflum verður hljómurinn of óraunverulegur. Laga- smíðarnar eru hins vegar nokkuð góðar og greinilegt aö Sverrir hefur hæfileika á þessu sviði. Hins vegar ber dálítið á einhæfni og greinilegt að lagasmíðarnar eiga eftir að slipast. Það gefur augaleið að með plötu þar sem ekki er mælt eitt einasta orð, á Sverrir ekki auðvelt með að hneyksla siðprútt fólk, eins og hon- um hefur oft tekist eftirminnilega með berorðum og beinskeyttum textum sínum. Á þessari plötu er því ekkert sem getur farið fyrir brjóstið á fólki, nema kannski heiti nokkurra laga, þar sem Stormsker hefur ekki getað setið á strák sínum. Má þar nefna heiti eins og Magra veröld, Afi Maríu og Tungl- sýkissónötuna. Þetta er þó mjög saklaust grín allt saman og ætti ekki að standa i vegi fyrir því að fólk veiti þessari plötu athygli, því að á henni er mjög athyglisverða hluti að finna, og synd að ekki fleiri hafi uppgötvað þessa plötu. Með henni hefur Sverr- ir Stormsker bætt enn einni fjöður í hattinn. Laugardagur 15. apríl 1989 - DAGUR - 7 Auglysing frá Byggðastofnun Smábátaeigendur Ríkisstjórnin hefur falið Byggðastofnun að kanna þörf smábátaeiganda fyrir stofnlán. Því er nauðsynlegt að þeir eigendur smábáta sem hug hafa á að sækja um lán geri það fyrir 1. maí n.k. Skilyrði fyrir lánveitingu eru m.a. eftirfarandi: 1. að báturinn sé minni en 10 brl. 2. að hann hafi verið keyptur eða smíðaður á árun- um 1987 eða 1988. 3. að umsækjandi sýni fram á getu sína til að endur- greiða lánið. Athygli umsækjenda er vakin á því að lánin verða verð- eða gengistryggð með markaðsvöxtum. Lánin verða einungis veitt gegn 1. veðrétti í viðkomandi báti. Ekki hefur verið ákveðið hvert hámarkslán verður en það verður þó ekki hærra hlutfall en 1/3 af verðmæti bátsins. Þeir eigendur smábáta sem óska eftir láni eru beðnir um að senda bréf til Byggðastofnunar Akureyri, Geislagötu 5, 600 Akureyri, sími 96-21210, fax 96- 27569. Tilgreina þarf ástæður umsóknar og umbeðna fjárhæð. Ljósrit af kaupsamningi skal fylgja með. Þeir sem hafa nú þegar sent umsóknir til Byggðastofnunar þurfa ekki að endurnýja þær. Þegar endanleg ákvörðun hefur verið tekin um upp- hæðir lána og útlánareglur verður haft samband við umsækjendur og þeir beðnir um frekari upplýsingar. Nissan Patrol ’89 NI55AIM Bílasýning verður laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. apríl frá kl. 2-5 e.h. báða dagana að Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar í sýningarsal að Óseyri 5 (norðurhluta). Sýndir verða meðal annars: Subaru J12 4x4, auk fleiri gerða af Subaru bílum, Nissan Sedan og Nissan Sunny. B if r eiða verkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri. Ingvar Helgason hf. Rauðagerði.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.