Dagur - 29.04.1989, Page 20
Dalvíkurkirkja:
Steftit að byggingu
saftiaðarheimilis
Stefnt er að því að ráðast í
byggingu safnaðarheimilis við
Dalvíkurkirkju. Á þessu stigi
er þó ekki Ijóst hvenær fram-
kvæmdir hefjast eða hvernig
húsið muni líta út. Að vísu
liggja fyrir teikningar að safn-
aðarheimili, unnar af Hauki
Haraldssyni, tæknifræðingi á
Akureyri, en hugsanlega verð-
ur þeim lítillega breytt í Ijósi
framkominna athugasemda á
almennum fundi sem sóknar-
nefnd stóð fyrir í Ráðhúsi Dal-
víkur nýverið.
Að sögn Jóns Helga Þórarins-
sonar, sóknarprests, er við það
miðað að halda annan fund um
málið fljótlega eftir mánaðamótin
þar sem kynntir verða frekari
möguleikar í byggingu safnaðar-
heimilisins auk grófrar fjárhags-
áætlunar. „Ég tel mikilvægt að
menn velti þessari byggingu vel
fyrir sér og að góð samstaða náist
Blak:
Öldungamót
í Hölliimi
Öldungamót Blaksambands ís-
lands hófst í íþróttahöllinni á
Akureyri í gær. Keppnin
stendur ylir í þrjá daga en mót-
inu lýkur með lokahófi og
verðlaunaafhendingu í Sjallan-
um á sunnudagskvöld.
Mót þetta er íslandsmót öld-
unga og eitt fjölmennasta hrað-
mót sem haldið er hérlendis. Það
eru 38 lið sem mæta til leiks með
rúmlega 300 keppendur í bæði
karla- og kvennaflokki og koma
þeir víða að.
í dag laugardag hefst keppni
kl. 9 og stendur til kl. 21 í kvöld
en á morgun hefst keppni kl. 9 og
stendur til kl. 17.
Varaflugvallarmálið:
Undirskriftalistar hverfa á Húsavík
undir höndum hefðu 360 skrifað austur úr sveitum og frá vinnu-
og sér ættu eftir að berast listar | stöðum í Mývatnssveit. IM
Drangey SK-1:
Léleg sala í Bremerhaven
- þrátt fyrir góðan fisk
„Það er rétt að listar eru
horfnir á fjórum stöðum en ég
hef ekki ennþá beðið lögreglu
að rannsaka hvarf þeirra, veit
satt að segja ekki hvað á að
gera í svona máli því ég átti
aldrei von á þessu, en mér
þykja þetta lúalegar aðfarir,“
sagði Starri Hjartarson á
Húsavík, aðspurður um hvarf
undirskriftalista um stuðning
við varaflugvöll í Aðaldal.
Þegar Starri, sem beitt hefur
sér fyrir undirskriftasöfnun-
inni, kom á tvo vinnustaði og
tvo bensínafgreiðslustaði á
Húsavík til að safna saman list-
unum, voru þeir horfnir og
enginn hefur getað gefið ncina
skýringu á hvarfi þeirra. Full-
yrt er að um 100 nöfn hafi ver-
ið á einum listanna sem hvarf.
„Ég er búinn að auglýsa eftii
listunum og ætla að sjá til hvort
einhver gefur sig ekki fram. Það
getur einnig vel verið að ég bjóði
mönnum að koma til mín og
skrifa undir aftur, til að fá nöfn
þeirra sem voru á listunum sem
hurfu,“ sagði Starri.
Listarnir hafa víða legið
frammi, en málið fengið misjafn-
ar undirtektir á vinnustöðum, að
sögn Starra. Á mörgum smærri
vinnustöðum hafa allir starfs-
ntenn skrifað undir listana en á
stærri vinnustöðunum er lítil
þátttaka í undirskriftasöfnuninni.
Starri sagðist hafa fengið mjög
góðar viðtökur á flestum bæjum í
Aðaldal, er hann safnaði undir-
skriftum þar. í Kinn hafði hann
heyrt að skrifað hefði verið undir
á flestum bæjum. Starri var byrj-
aður að safna í Reykjahverfi en
hafði fáa hitt heirna. í Mývatns-
sveit voru margir á tónleikum, en
þeir sem heima voru tóku Starra
vel þar til fór að nálgast Garðs-
bæi að fólk hætti að vilja skrifa
undir. Starri sagðist þó eiga eftir
að fara og sýna Starra, nafna sín-
um í Garði listann, þó hann ætti
ekki von á að hann skifaði undir.
Starri sagðist reikna með að nú
hefðu safnast tæplega 500 nöfn á
listana, á þá lista sem hann hefði
Drangey SK-1, togari ÚS,
seldi í Bremerhaven í Þýska-
landi sl. fimmtudag. Aflinn var
147 tonn, aðallega karfi, og
fengust aðeins 7 milljónir
króna fyrir hann, sem er með
lélegustu sölu sem skagflrskt
skip hefur átt á erlendum
mörkuðum. Meðalverðið var
48 krónur fyrir kílóið.
Mjög lágt verð hefur fengist á
Þýskalandsmarkaði undanfarna
daga, en fiskurinn sem Drangey
var með var talinn mjög góður.
Hefði skipið verið á góðum tíma
hefði fengist toppverð fyrir afl-
ann.
Hegranes SK-2 kom til heima-
hafnar í gærmorgun með rúm 100
tonn, aðallega þorsk, sem var
vænn mjög, að sögn útgeröarfé-
lagsmanna. -bjb
Norðurland vestra:
BúQártalningu að ljúka
um þá lausn sem ofan á verður,"
sagði Jón Helgi.
Samkvæmt fyrirliggjandi teikn-
ingum verður safnaðarheimilið
áfast kirkjunni út úr „norður-
krossinum“. Gert er ráð fyrir að í
tengibyggingunni verði væntan-
legu nýju pípuorgeli komið fyrir
ásamt kór. Nú er hljóðfæri og
kirkjukór á sönglofti yfir inn-
gangi í kirkjuna.
Jón Helgi sagði að Sóknar-
nefnd þyrfti að fjármagna bygg-
ingu safnaðarheimilis af eigin
tekjum. Þó er möguleiki á styrk-
veitingu til byggingarinnar úr
Jöfnunarsjóði sókna. óþh
Nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri gleymdu verkfallsraunum í gær og cfstu bekkingar dimmiteruðu á
viðeigandi hátt. Mynd: TLV
Siglfirðingar byggja íþróttahús:
- „Hefur tekist án þess að vera með
hnefarétt“ segir Jón ísberg sýslumaður
Kerfið hefur verið tregt í
taiuní við byggingu hússins
- segir fsak Ólafsson, bæjarstjóri
Lokið er fyrri umræðu fjár-
hagsáætlunar Siglufjarðarbæj-
ar og því liggur ekki endanlega
fyrir með stærstu framkvæmd-
ir á vegum bæjarfélagsins á
þessu ári. Þó er Ijóst að þráður
verður tekinn upp við ýmsar
framkvæmdir sem þegar eru
komnar á rekspöl. Má í því
sambandi geta byggingar
glæsilegs íþróttahúss. Ef allar
áætlanir standast verður því
lokið á haustdögum eða áður
en næsta vetraríþróttavertíð
hefst.
Að sögn ísaks Ólafssonar, bæjar-
stjóra á Siglufirði, nemur kostn-
aður við íþróttahúsið 27 milljón-
um króna á núvirði. Fullbúið er
áætlað að það kosti 38 milljónir
króna. Sem stendur er ekki unnið
við frágang hússins en ólokið er
uppsetningu lýsingar og lagningu
parkets á gólf. Þá er eftir að
ganga frá tengigangi við sund-
laugina því hugmyndin er að
samnýta búningsaðstöðu sund-
laugar og íþróttahúss.
Óhætt er að segja að kostnaði
við byggingu íþróttahússins hafi
verið unnt að halda í lágmarki.
Ódýrar leiðir voru valdar og leit-
ast við að forðast allan íburð án
þess þó að það kæmi á nokkurn
hátt niður á notagildi hússins.
ísak orðar það svo að bæjaryfir-
völd hafi staðið í miklu stríði við
ríkið um byggingu íþróttahúss-
ins. „Það er nú svo að kerfið hef-
ur verið mjög eindregið á móti
byggingu slíks húss. Líklega
vegna þess að það þyki of ódýrt,"
segir ísak. „Við höfum þó fengið
fjármuni frá ríkinu til byggingar-
innar en við teljum að vegna þess
að hér var farin ný og ódýrari
leið, miðað við þá leið sem sveit-
arfélögin hafa farið í íþróttahúsa-
byggingum, hefði ríkið átt að
veita okkur fjármuni til hennar af
mun meiri krafti en raun ber
vitni,“ segir Isak Ólafsson. óþh
Búfjártalningin margfræga er
nú á lokastigi og aö sögn sýslu-
manna Skagafjarðarsýslu og
Húnavatnssýslna hefur hún
víðast hvar gengið áfallalaust
og bændur yflrleitt tekið henni
vel. Samkvæmt skipunum að
ofan átti talningu að vera lokið
30. apríl og sögðu sýslumenn
að það dæmi ætti að geta geng-
ið upp. „Auðvitað hafa komið
upp vandamál, en fram að
þessu hefur ekkert komið sem
hefur verið óleysanlegt. Eins
og t.d. með Björn á Löngu-
mýri, þeir sátu yflr honum
þangað til hann féllst á þetta
og lét telja hjá sér,“ sagði Jón
ísberg, sýslumaður Húnvetn-
inga, í samtali við Dag.
„Okkur hefur tekist þetta án
þess að vera með nokkurn hnefa-
rétt, það hafa hreppstjórar og
forðagæslumenn verið inn á líka,
að melda málin til. Það hefur
hvergi verið fyrirskipuð talning
ofan að og ég vonast til að þess
þurfi ekki,“ sagði Jón ennfremur.
í Húnaþingi hafa lögreglumenn
tekið þátt í talningu, þar sem
þess hefur verið óskað.
í Skagafirði er talningu lokið í
mörgum hreppum og er að ljúka
í öðrunr. Lögregla var kvödd til
talningar í tveimur hreppum,
Hofshreppi og Lýtingstaða-
hreppi, þar sem hreppstjórar
voru forfallaðir. -bjb