Dagur - 02.06.1989, Blaðsíða 11

Dagur - 02.06.1989, Blaðsíða 11
Mui studagur 2. júní 1989 - DAGUR - 11 Byggingarfyrirtækið Aðalgeir Finnsson hf. á Akureyri: Byggir fullbúin einbýlishús á fjórum til fímm mánuðum - á annað þúsund manns skoðuðu eitt slíkt um síðustu helgi Húsift var sýnt með öllum innréttingum oe húsgögnum frá Örkinni hans Nóa. Myndir: KL Byggingarfyriftækið Aðalgeir Finnsson hf. á Akureyri hélt sýningu á glæsilegu einbýlishúsi úr timbri um síðustu helgi. Húsið sem stendur við Bakka- síðu 10 á Akureyri er fjögurra herbergja, 122 fm að stærð með 28 fm sambyggðum bíl- skúr og var það sýnt fullbúið, með öllum innréttingum og húsgögnum frá Örkinni hans Nóa. Að sögn Arnar Jóhannssonar verkstjóra hjá Aðalgeir Finnssyni hf., vakti húsið mikla athygli sýn- ingargesta, sem voru á milli 12- 1500. „Við byrjuðum á byggingu hússins í desember síðastliðinn og því hefur verkið tekið um 5 mánuði. Þetta hefur verið erfiður vetur og við getum byggt svona hús á 4 mánuðum. Þetta er timb- urhús og það er hægt að byggja þau allt árið. Byggingartími slíkra húsa er styttri en steinhúsa, fyrir utan það að þau eru ódýrari. Þetta hús kostar t.d. 9 milljónir," sagði Örn. Húsið er klætt að utan með sérstökum plötum og þær eru viðhaldsfríar. Þá er marmari í gluggaáfellunum að utan, sem einnig er viðhaldsfrír. Fyrirtækið á 13 lóðir í Síðu- hverfi undir slík hús og er þegar búið að selja 6 hús. Tvö þeirra eru í byggingu og búið er af taka grunninn af þremur til viðbótar en húsin er hægt að fá á mismun- andi byggingarstigi. Örn sagði ennfremur að eftir sýninguna hefðu fjölmargir sýnt því áhuga að eignast slík hús. „Það sem set- ur strik í reikninginn hjá þessu fólki er staðan í lánamálunum. Ef að þau mál stæðu betur í dag væri ekkert mál að selja þessi hús,“ sagði Örn Jóhannsson. -KK Egilsstaðir: Vel heppnuð M-hátíð M-hátíðin, sem haldin var á Egilsstöðum dagna 19.-21. maí sl., þótti takast í alla staði mjög vel. Aðsókn var glimrandi góð og sóttu á þriðja þúsund manns þau dagskráratriði sem í boði voru og var nánast fullt hús á þeim öllum. Guðmundur Guðlaugsson, okk- ar maður á Egilsstöðum, tók myndirnar hér að neðan meðan á hátíðinni stóð. En þótt sjálfri M- hátíðinni sé nú lokið, má geta þess að sýning austfirskra lista- manna stendur enn yfir og lýkur ekki fyrr en 25. júní. Þar eru sýnd um 60 verk eftir 19 lista- menn víða af Austfjörðum. Frá setningarathöfn M-hátíðarinnar. Sigurður Símonar- son, bæjarstjóri á Egilsstöðuin, er lengst til hægri á myndinni. Plöntusalan er hafin Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00 og um helg- ar í júní frá kl. 13.00-16.00. Skógrækt ríkisins, Vöglum, sími 25175 og Laugabrekka, Skagafirði, sími 95-6216. pjónusta Bókhald ★ Leiðbeiningar og aðstoð við bókhald á staðnum ★ Einnig fullkomin bókhaldsvinna á skrifstofu okkar ★ Val hagkvæmustu leiða Uppgjör og framtöl ★ Á réttum tíma ★ Stórra og smárra fyrirtækja ★ Samvinna við löggilta endurskoðendur Tölvur - Hugbúnaður ★ Ráðgjöf, sala og kennsla í samvinnu við Trón ★ Tölvuvinnsla bókhalds, launa, ritvinnsla o.fl. Rekstrarráðgjöf — Stofnun ★ Áætlanagerð ★ Stofnun sameignarfélaga, hlutafélaga ★ Samruni og sameining félaga ★ Skipulagning Laun ★ Fullkomin launaúrvinnsla ★ Kennsla á launaforrit Ráðningar Sérþekking í ráðningu: ★ Skrifstofufólks ★ Stjórnenda ★ Sölumanna, bankamanna o.fl. ★ Afleysingar S_ S = REKSTRARRÁÐGJÖF =T“ =7- E E REIKNINGSSKIL = ===== RÁÐNINGAR TRYGGVABRAUT 22 ■ SÍMI 96-25455 • 602 AKUREYRI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.