Dagur - 29.06.1989, Síða 3
DAGUR FERÐABLAÐ — 3
Hríseyjarferjan
Ferjan fer frá Árskógssandi til Hríseyjar kl. 9.30,
13.30, 16.30, 18.30 og 22.30.
Frá Hrísey kl. 9.00, 13.00, 16.00, 18.00 og
22.00.
Nánari upplýsingar í símsvara 96-61797.
Verið velkomin til Hríseyjar.
Ferðaskrifstofan
NONNI
Alhliöa ferðaskrifstofa
í Miðbæ Akureyrar
★ Umboð fyrir ATLANTIC
★ Sérfræðingar í Mallorca og Júgóslavíuferðum
★ Farseðlar innanlands og utanlands
★ Ferðaþjónusta bænda og fleira
Ferðaskrifstofan
NONNI
Brekkugötu 3
Símar 27922 og 27923.
Egill hótelstjóri er bjartsýnn á sumarið en hann er hér með tveimur starfsstúlkum á hótelinu þeim Kristínu Helga-
dóttur og Hrafnhildi Guðnadóttur.' Mynd: -bjb
„Það er hægt að Ferðamenn!
gera ýmislegt héma“
rætt við nýjan hótelstjóra Hótel Blönduós,
Guðmund Egil Ragnarsson
í vor tók til starfa nýr
hótelstjóri á Hótel
Blönduósi og heitir
hann Guðmundur
Egill Ragnarsson,
valinn úr hópi 20 ann-
arra umsækjenda.
Hann er lærður mat-
reiðslmnaðxu, starf-
aði áður hj á Veitinga-
manninum í Reykja-
vík og þar áður á
hótelinu í Stykkis-
hólmi í tvö ár. Auk
þess að stjómahótel-
inu á Blönduósi, mim
Egill einnig matreiða
í eldhúsinu. I stuttu
spjalli við blaðamann
Dags á vordögxun,
sagði Egill að sér lit-
ist vel á nýjan stað og
var nokkuð bjartsýnn
á sumarið. „IJað er
hægt að gera ýmis-
legt héma við þetta
hótel, ég er búinn að
sjáþað. Við ætlum að
fara í breytingar á
anddyrinu og sjón-
varpsherbergi. Pað
er eitt af þeim atrið-
um sem ég lagði
áherslu á að þyrfti að
gera,“ sagði Egill.
Egill var spurður að því hvað
hafi ráðið því að hann sótti um
stöðu hótelstjóra á Blönduósi.
Hann sagði að það hefði fyrst og
fremst verið þörfin fyrir að
breyta til. „Þegar ég vann á Veit-
ingamanninum, þá vann maður
frá kl. 8 á morgnanna til 4 á
daginn, þetta voru miklar tarnir.
I hádeginu t.d. vorum við með,
þetta 600-800 manns. Maður var
úttaugaður þegar maður kom
heim eftir vinnuna. Síðan vorum
við með veislueldhús um helgar.
Hérna er þetta allt öðruvísi, við
afgreiðum af diskum, hitt fór allt
í matarbakka. Það er eitt af því
sem ég ætla að breyta hérna, það
er matseðillinn. Ég er mjög hrif-
inn af sjávarréttum og mun því
vera með meira af fiski. Um helg-
ar ætla ég að stefna á að bjóða
salatbar á föstud_ags- og laugar-
dagskvöldum.“
„Þýðir ekkert annað
en að vera bjartsýnn“
- Hvernig sýnist þér sumarið
ætla að koma út?
„Það lítur mjög vel út. Þaö er
búið að panta nokkuð mikið, en
eftir að staðfesta eitthvað af
pöntunum. Ég er mjög
bjartsýnn, það þýðir ekkert
annað.“
- Nú vantar ekki hótelin í
Reykjavík, af öllum stærðum og
gerðum. Hvað með hótelrekstur
úti á landi, horfa menn á hann
með bjartsýnum augum í fram-
tíðinni?
„Ég skal ekki segja, sam-
keppnin er auðvitað miklu minni
heldur en í Reykjavík. Við höf-
um upp á allt annað að bjóða úti
á landi, það er náttúran í kring.
Hérna eru það t.d. veiðiárnar,
ekki vantar þær í Húnaþingi. Ég
held að það sé ekki hægt að bera
saman, hótel í Reykjavík og
hótel úti á landi. Það er vínbar
hérna á hótelinu og það getur
stundum verið erfitt að vera með
diskótek, vegna ónæðis fyrir hót-
elgesti. Þannig að þegar eru fáir
hótelgestir, reynir maður að stíla
upp á að hafa diskótek. Það hef-
ur mælst ágætlega vel fyrir."
10-11 manns vinna
á hótelinu í sumar
- Hvernig ferðamenn færðu í
sumar?
„Það verða aðallega hópar
ferðamanna, sem ég á von á, en
þeir koma í gegnum ferðaskrif-
stofur. Reksturinn byggist aðal-
lega á slíku yfir sumartímann.“
Hótel Blönduós býður upp á
18 gistiherbergi, en auk þess hef-
ur hótelið yfir að ráða 10 her-
bergjum og svefnpokaplássi í
bakhúsi, eða „Blöndu", eins og
Egill kallaði húsið. „Við bjóðum
upp á þetta, ef allt skyldi fyllast
hjá okkur á hótelinu," sagði
Guðmundur Egill. Egill sagðist
búast við að vera með um 10-11
manns í vinnu í sumar á hótelinu.
„Þetta er gott starfsfólk og ég
kvíði engu með að hafa það í
vinnu hjá mér, það hefur flest
unnið hér áður,“ sagði Egill að
lokum. -bjb
DAGUR
Sauðárkróki
S 95-35960
Norðlenskt dagblað
•nattntt.i S.*f>ifSl
Hjá okkur er opið allar helgar.
Fjölbreytt vöruval.
Mikið úrval af kjötvörum.
Allt í grillveisluna.
Opið alla virka daga kl. 9-22.
Laugardaga og sunnudag kl. 10-22.
Eina kjörbúðin á Akureyri
serxi er opin um helgar.
MATVÖRU
MARKAÐURINN
Kaupangi v/Mýrarveg
Sími 96-21234 • Akureyri.
IS • IS • IS
Hafið þið reynt
sJzafísinn
okkar vinsæla
með piparmyntu-, karamellu,- appelsínu-,
bláberja- eða jarðarberjabragði
Samlokur • Gos • Sælgæti
ísbúðixi
Kaupvangsstræti 3 • Sími 22266