Dagur - 29.06.1989, Síða 6

Dagur - 29.06.1989, Síða 6
|si ? Hltfittfintttiii fimu llltllltlliiiKi ««il’ » . r, , • U N E---------- mnntinifff Norræna er nútímaferja þar sem aðstaða er öll hin besta bæði klefar og afþreying. Utanlandsferð með feiju: Sigling með mítímafeijuniii Norrömi er spentiandi íerðamáti segir Bmil Karlsson, framkvæmdastjóri Norrænu Ferðaslmfstofunnar Yfír smnartíniann geta íslendingar nýtt sér fleirl möguleika en flugið til að kom- ast til meginlands Evrópu. Frá 1. júní til 31. ágúst er Norröna í ferðum milli íslands, Færevja, Noregs, Hjaltlands og Danmerkur og kenutr hún vikulega til Seyðisfjarðar. Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að íslendhigar fari í ferðir til Evrópu með eiginn farkost og lieíþ ferðina með siglingu með Norrönu en að sama skapi kjósa margir erlendir ferðamenn að koma hingað til lands með eigin farartæki til ferðalagsins um landið. Norræna ferðaskrifstofan í Reylgavík sér um bókanir í feijuna og þegar Dagur leit þar inn á dögunum var mikill crill enda ferðamannatíminn rétt að heíjast. „Það er ýmislegt fleira í kring- um þessar ferðir hjá fólki, sumir eru að panta sér framhaldsferjur éða jafnvel sumarhús og þá reyn- um við að sinna kúnnanum eins og kostur er,“ segir Emil Kristjáns- son, framkvæmdastjóri Norrænu ferðaskrifstofunnar. „Héðan fer ferjan á fimmtu- dögum og til Færeyja kemur hún á föstudögum en til Danmerkur á laugardögum. Á laugardags- kvöldunt fer ferjan aftur til Fær- eyja þangað sem hún kemur á mánudögum en heldur til Leirvíkur á Hjaltlandi á mánu- dagskvöldum. Á þriðjudögum fer ferjan til Bergen í Noregi og þaðan til baka til Færeyja, með viðkomu í Leirvík, aðfaranótt miðvikudags. Frá Færeyjum kemur skipið til íslands á fimmtu- dögum aftur og þar með er vikan komin,“ segir Emil þegar hann er beðinn að lýsa ferð skipsins frá því það yfirgefur Seyðisfjörð og þangað til það kemur aftur að viku liðinni. „Við náum aðallega til fjöl- skyldufólksins sem ferðast með einkabílinn. Síðan er alltaf eitthvað um hópa með rútur, þar sem oftast eru félagasamtök eða eldri borgarar á ferðalagi. Algengasti rúnturinn hjá fjöl- skyldufólkinu er sá að fara héðan til Danmerkur, ferðast á bílnum um Norðurlöndin og taka skipið síðan aftur heim frá Bergen.“ Emil segir að þegar ferðalag með Norrænu sé borið saman við flugið þá megi ekki bara horfa á' verðið heldur sé þetta einnig spurning um ferðamáta. Sé dæm- ið sett upp þannig að fjögurra manna fjölskylda ætli að fara með ferjunni til Danmerkur og koma heim frá Noregi þá kosti ferðin 92.000 kr. á dýrasta tíma. í þessu verði sé miðað við tvö börn undir 16 ára aldri og gistingu í fjögurra manna klefa með sturtu og salerni. Sé ferðast á afsláttar- tíma, þ.e. fyrstu þrjár brottfarir frá Seyðisfirði og allar brottfarir frá Noregi eftir 7. ágúst og frá Danmörku eftir 19. ágúst, þá geti þessi sama fjölskylda lækkað ferðakostnaðinn töluvert. Ásam- bærilegu tímabili geti ungt par sem vilji ferðast án bíls komist til Danmerkur fyrir 33.600 kr. samanlagt. „Þetta er ferðamáti sem íslendingar þekkja og sem þeir taka með í dæmið þegar sumar- ferðalagið er skipulagt. Fólk ber vissulega saman verðið á sigling- unni og verðið á fluginu en oft á tíðum er fólkið að slægjast eftir siglingunni og því sem henni fylgir. Ekki neita ég því að það er hræódýrt að fljúga á Lúxemborg og taka þar bílaleigubíl en ég bendi á að við siglum ekki á Lúxemborg þannig að það er óraunhæfur samanburður. Það verður að bera okkur saman við flug á Norðurlöndin. Norræna er nútímaferja með klefa af ýmsum gerðum, góðan veitingastað, fríhöfn, kokteilbar, kaffibar, barnaleikherbergi og næturklúbb með lifandi tónlist og bíósal. Allt þetta fær fólk með í verðinu. Þess vegna er það mikil skemmtun að vera um borð, sannarlega partur af fríinu. Þetta er gott skip og spennandi ferða- máti,“ segir Emil. Emil segir það ekkert leynd- armál að Austfirðingar notfæri sér ferjuna meira en aðrir landsmenn. „íslendingar eru allt- af að sækja á hjá okkur og miðað við mannfjölda eru Ausfirðingar stærsti hópurinn sem er ekkert skrýtið. En Norðlendingar eru einnig mjög duglegir við að taka ferjuna í utanlandsferðina," segir Emil að lokum. JOH Emil segir það ekkert leyndarmál að Austfirðingar notfæri sér ferjuna meira en aðrir landsmenn. Mynd: JÓH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.