Dagur - 29.06.1989, Blaðsíða 20
20 — DAGUR FERÐABLAÐ
/ —-----------------------
HÓTEL
KIÐAGIL
V/Sprengisandsveg
Bárðardal S.-Þing.
Sími 96-43290
Gisting • Svefnpokapláss • Morgunverður
Smáréttir ■ Kaffi og kökur • Gufubað
★
Við bjóðum ykkur velkomin
á nýjan gisti- og veitingastað.
★
Opið júlí og ágúst.
★
Kvöldverður og nestispakkar ef pantað er.
HÓTEL
KIÐAGIL
_________________________/
Ferðalög erlendis
Fjölmargir kjósa að
fara út fyrir land-
steinana og eyða
sumarí'ríiiiii á sólar-
strönd, í sæluhúsum,
vera á eigin vegum
með bdaleigubdum
eða fara á nýja og
framandi staði í öðr-
xun heimsálftun. Hér
gefst lesendum kost-
ur á að fræðast um
það helsta sem í boði
er hjá nokkrum ferða-
skrifstofum.
Samvinnuferðir-Landsýn
Fyrst ber að nefna sólarlanda-
ferðirnar til Mallorca og Benidorm
á Spáni, Rimini og Riccione á
Ítalíu, Grikklands og Hawaii. Til
Mallorca eru farnar fjöldinn allur
af ferðum í sumar þar sem boðið
er upp á gistingu á mismunandi
hótelum eða í íbúðum. Gististað-
irnir eru á Santa Ponsa og Cala
d’Or. Um árabil hafa íslendingar
flykkst til þessarar eyju sem er
ein frægasta sólskinsparadís ver-
aldar. Par eru auk sólbaðs-
stranda, diskóteka og úrvals veit-
ingastaða, 9 vel útbúnir golfvellir
svo kylfingum ætti ekki að leiðast
á meðan.
í fyrra var í fyrsta skipti boðið
upp á ferðir til Cala d’Or, en þar
er náttúrufegurðin meiri en víð-
ast hvar, staðurinn er á austur-
ströndinni þar sem m.a. vaxa
möndlutré og sítrónutré á land-
búnaðarsvæðunum. Frá Cala
d’Or er farið í skoðunarferðir;
m.a. sjóræningjasiglingu, heim-
sókn í vatnsleikjagarð og nætur-
klúbbur er heimsóttur.
Strandbærinn Santa Ponsa er
skammt vestur af Palma höfuð-
borg eyjarinnar. Þaðan er boðið
upp á skoðunarferðir í dreka-
hella, safaríferðir og kvöldsigl-
ingu til Palma svo eitthvað sé
nefnt. Þá fara að sjálfsögðu allir
ferðalangar í grísaveislu að hætti
Spánverja þar sem dansað er
fram á nótt.
Vinsældir ferða til Benedorm
hafa verið miklar, þar eru hvítar
sandstrendur og meðalhiti í júní-
ágúst 27-30 gráður á celsíus.
Benedorm byggist út frá tveimur
sandströndum, Levante og Poni-
ente. Þaðan er svo til jafn langt
til Barcelona í norðri (480 km),
Madrid í vestri (458 km) og
Malaga á Costa del Sol í suð-
vestri (562 km) svo upplagt er að
leigja bíl meðan á dvölinni
stendur. Frá Benedorm er farið í
skoðunarferðir t.d. jeppasafarí
og dagsferð til Valencia.
Til Ítalíu stefnir hugur margra
því saga og mannlíf þar á engan
sinn líka. Á Rimini og Riccione
geta listunnendur, sóldýrkendur
og nátthrafnar fundið eitthvað
við sitt hæfi. Hægt er að fara í
skoðunarferðir til Rómar, Flór-
ens og Feneyja svo eitthvað sé
nefnt.
Grikkland er heillandi sumar-
leyfisstaður en SL bjóða ferðir til
Vouliagmeni og Rohdos. Ekkert
jafnast á við skoðunarferðir í
Grikklandi, Aþena og Akrópólis
eru sögufrægir staðir og á Rhodos
er gamli bæjarhlutinn á norður-
odda eyjarinnar einstaklega
skemmtilegur.
í sumar býður SL í fyrsta skipti
upp á vikulegar ferðir til Hono-
lulu og Waikiki-strandarinnar á
Hawaii. Ferðast er hálfa leiðina
umhverfis hnöttinn og dvalið á
framandi slóðum í tvær eða þrjár
vikur. Honolulu er höfðuborg
Hawaii og stendur á eyjunni
Oahu en þar er líka hin fræga
höfn, Pearl Harbour. Boðið er
upp á skoðunarferð þangað, auk
ferða um Oahu, í Pólinesíku
menningarmiðstöðina og ferða til
annarra eyja.
Sæluhúsadvöl nýtur sífellt
meiri vinsælda. SL býður sæluhús
í Hollandi, Englandi og Frakk-
landi í sumar. Dvöl í sæluhúsi er
upplögð fyrir alla fjölskylduna
þar sem allir geta fundið sér
skemmtun við hæfi. Sæluhúsa-
hverfin þrjú eiga það sammerkt
að vera ákaflega vel í sveit sett og
segja má með sanni að þaðan sé
stutt til allra átta. Margir áhuga-
verðustu staðir Hollands, Belgíu
og V-Þýskalands eru steinsnar frá
Kempervennen; Skírisskógur er
nálægt því að vera nafli Englands
og Les Bois franxs er mitt á milli
Parísar, Normandí og Bretagne-
skaga og Lorie-dals. Þá býður SL
dvöl í sumarhúsum í Danmörku,
nánar tiltekið í Karlslunde
örskammt frá Kaupmannahöfn
og í Middelfart við strönd Litla-
beltis á Fjóni. Þá gefst viðskipta-
vinum sömuleiðis kostur á flugog
bíl og ráða þannig ferðinni
sjálfir, og rútuferðum um
Evrópu.
Útsýn
Aðall Útsýnar eru vafalítið ferð-
irnar til Costa del Sol. Þangað