Dagur - 29.06.1989, Side 23

Dagur - 29.06.1989, Side 23
<mi3mmRm&hAb^£3 Perlur íslands, gmisteimi norðursins og gönguævintýri — IJölbreytt smnardagskrá hjá innanlandsdeild Samvinnnferða-Landsýnar Innanlandsdeild Goðafoss er ein af perlum norðursins enda leggur margur ferðalangurinn leið sína þangað til þess að berja dýrðina augum. Samvinnuferða- Landsýn mim bjóða upp á mikið úrval ferða fyrir jafiit inn- lenda sem erlenda í sumar. Iiildur Jóns- dóttir yfirmaður deildarinnar sagði ásóknina í ferðimar hafa verið mikla og þegar er fidlbókað í nokkrar þeirra. „I3að eru þó aðaílega útlendingar sem hafa bókað sig en þessar ferðir en íslending- um er velkomið að koma líka,“ sagði hún. „Þettá sem við erum að skipuleggja er engin séreign útlendinganna. “ Ýmsar nýjungar eru á boðstól- um í sumar og er þar á meðal Perlur íslands. Dvalið verður í þrjá daga á Norðurlandi og farið m.a. í Jökulsárgljúfur, um Eyjafjörð og til Akureyrar. Hild- ur sagði þessa ferð hafa slegið öll sölumet og um 500 manns hafa bókað sig. Boðið er upp á sér- staka ferð fyrir íslendinga og verður hún farin 17. ágúst en lítið mun vera um bókanir ennþá og sagði Hildur íslendinga yfirleitt ekki bóka með eins miklum fyrir- vara og þá erlendu ferðamenn er hingað koma. Ferðir sem eru sambland af göngu og keyrslu, svokölluð Gönguævintýri eru líka í boði og verður töluvert dvalið á Norður- landi. Farið verður um Sauðár- krók, Akureyri og Mývatn og síðan ekið yfir Sprengisand. „Það er ekki beint um fjallaklifur að ræða heldur er gengið 2-5 tíma á dag. Þetta flokkast frekar sem náttúruskoðun," sagði Hildur. „Gimsteinn norðursins er ein ferðanna sem við bjóðum upp á. Flogið verður til Akureyrar, keyrt til Húsavíkur og síðan aftur til Akureyrar. Einnig verður gef- inn kostur á flugi til Grímseyjar.“ Að sögn Hildar er að verða fullt í þessa ferð en um 6 brottfarir er að ræða. Mikið verður um hvataferðir í júní og sagði Hildur þær bjóða upp á sérstæða dagskrá. „Svona hópar fara t.d. í veiðiferðir, jeppaferðir og vélsleðaferðir á Vatnajökul en einnig er farið með þá að borða góða málsverði víðsvegar." Skemmtiferðaskip koma einnig á vegum Samvinnuferða-Land- sýn og kemur hið fyrsta til Akur- eyrar 14. júní. Hátt í 500 farþeg- ar munu svo koma til með að fara um Akureyri, Eyjafjörð og Mývatn. „Ein ferðin okkar sem heitir Ferðist og fræðist fer hringinn og stoppar m.a. á Dalvík og Akur- eyri,“ sagði Hildur. Ferð þessi er nk. kynning á atvinnuvegum íslendinga og komið verður við á frystihúsum og skipasmíðastöð. „Við erum að reyna að sýna fólki hvað við erum að gera,“ sagði hún. Auk allra hópferðanna sagði Hildur innanlandsdeildina veita einstaklingum sem ferðast á eigin vegum bílaleigubíla, hótel- pantanir og slíkt sem sagt alla almenna ferðaþjónustu. „Það er mjög bjart framundan hjá okkur og fullbókað í margar ferðir, og ég vil endilega benda íslendingum á að þeir eru vel- komnir í innanlandsferðir okkar,“ sagði Hildur að lokum. KR Funda- og ráðstefnusalir V/eislu- og einkasamkvæmi BJóðum upp á: hádegisverð frá Kl. 11.30-13.30 Kvöldverð frá Kr. 18.00 Borðapantanir f 5Íma 27100 Bláhvammur hf. veitingaþjónusta Alþýðuhúsinu Shipagötu 14 ■ Sími 27100 Verð aðeins kr. 18.500,- með gaskút Veganesti Leiruvegi Tryggvabraut Hjólaskautar Hjólabretti ítölsk barnatvíhjól með hjálparhjólum fyrir 3-6 ára. Einnig BMX hjól lítil og stór. Vönduð og falleg hjói á hagstæðu verði. Sundhringir, sundermar, sundgleraugu, sund- laugar í garðinn, vindsængur, uppblásnir risahá- karlar og hvalir. Vatnabátar, margar stærðir, festingar fyrir utan- borðsmótora. Krokketsett 4 gerðir. Sippubönd og boltar í úrvali. Ný sending af LEGO kubbum LEGO sjóræningjar (nýtt). Sendum gegn póstkröfu (sími: 96-27744). Við tilkynnum breyttan opnunartíma í sumar: (júní - júlí - ágúst) Virka daga opið: kl. 08.00-20.00. Laugardaga: kl. 09.00-14.00. Sunnudaga: kl. 10.00-14.00. Leikfangamarkaóurinn Hafnarstræti 96, Akureyri Sími: 27744.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.