Dagur - 29.06.1989, Blaðsíða 28
Kodak
Express
Gæöaframköllun
★ Tryggðu f ilmunni þinni
jlaesta GPe<k6myndii~
Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324.
Ferðanámstefha á Akureyri:
Skortur á samvinnu
aðila í ferðaþjónustu
— meðal þess sem rætt var um á vel heppnaðri námsteíhu
Nýlega var haldin
ferðanámsstefiia á
Akure\ ri en þar
komu saman hinir
ýmsu aðilar sem á
einhvem máta em
tengdir ferðaþjón-
ustu á svæðinu.
Námsstefiian var öll-
um opin og vom þátt-
takendur um 25-30
talsins.
Á dagskrá voru erindi og í
kjölfar þeirra, umræður með'
þátttakenda. í upphafi náms-
stefnunnar kynnti Sigurður P.
Sigmundsson framkvæmdastjóri
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
skipan Þorleifs Þórs Jónssonar í
stöðu ferðamálafulltrúa IFE, en
honum er ætlað að vinna að efl-
ingu á stöðu Eyjafjarðarsvæðis-
ins í ferðamálum. Markmið
námsstefnunnar var m.a. að fá
fram hugmyndir aðila í ferða-
þjónustu á svæðinu um starf Þor-
leifs og gefa þeim um leið tæki-
færi til að hafa áhrif á uppbygg-
ingu starfs hans.
Sigurður kom í máli sínu inn á
ýmsa þætti í ferðaþjónustu sem
hann telur að hafi verið vanrækt-
ir. Skortur á samvinnu aðila í
ferðaþjónustu sagði hann hafa
staðið í vegi fyrir bættu ástandi
og að með meiri skipulagningu
og samstarfi væri hægt að gera
átak í ferðaþjónustu á svæðinu.
Nú stendur til að í stað hefð-
bundinnar kynningar á einstaka
stöðum eigi að beina athyglinni
meira að svæðinu í heild.
Þorleifur Þór Jónsson ferða-
málafulltrúi flutti næst erindi um
umfang og þýðingu ferðaþjón-
ustu fyrir Eyjafjarðarsvæðið.
Hann fjallaði um helstu ytri þætti
þjónustunnar og benti á athygl-
isverða þætti í máli sínu. Þorleif-
ur segir, að sá þáttur sem mest er
vanmetinn og mesta áherslu
eigi að leggja á sé afþreying fyrir
ferðamenn. „Ferðamennirnir
verða að hafa nóg að gera, því
þeir sem hafa það staldra lengst
við. Við þurfum að halda í ferða-
mennina og gott dæmi um
aðferðir til þess eru Sæluvikur á
Sauðárkróki svo eitthvað sé
nefnt,“ sagði hann.
Þorleifur lagði fram ýmsar
athyglisverðar tölur sem snerta
ferðaþjónustu. Á árunum 1980-
1987 var t.d. um 95% aukningu á
komum erlendra ferðamanna til
landsins. Á tímabilinu 1984-1987
jókst gistirými á Norðurlandi
eystra um 30% á meðan það
jókst um 37% í Reykjavík og
32% á landinu öllu. Þá benti
hann á þá athyglisverðu stað-
reynd, að íslendingar eigi um
60% gistinátta á Norðurlandi
eystra og því þurfi að beina
athyglinni í auknum mæli til
þeirra.
í könnun sem framkvæmd hef-
ur verið kemur fram að megin
ástæðan fyrir komu erlendra
ferðamanna til íslands séu
ummæli annarra. Því beri að
leggja áherslu á þann þátt kynn-
ingarinnar með því að sjá til þess
að ferðamennirnir fari héðan
ánægðir eftir góðar viðtökur.
Á námsstefnunni fóru fram líf-
legar umræður meðal þátttak-
enda og er sýnt að tilgangi henn-
ar var náð. Áð afloknum hádeg-
isverði hélt Bjarni Sigtryggsson
markaðsfræðingur erindi um
hvernig ná eigi til ferðamanna og
Reynir Adólfsson ferðamálafull-
trúi Vest Norden nefndarinnar
fjallaði um samstarf í tengslum
við ferðakaupstefnur. VG
ÚTILEGAN heppnast betur með
niðursuðuvörum frá Kjötiðnaðarstöð KEA.
Matreiðslan gengur fljótar, innihaldið helst
óskemmt þrátt fyrir hita og holótta
vegi - en umfram allt er maturinn
góður.
Við bjóðum þér tæpan tug mismunandi
rétta - hvorki meira né minna.
::
Sími: 96-21400