Dagur - 21.07.1989, Side 15

Dagur - 21.07.1989, Side 15
Föstlidagur 2tjtjúlíi <9891 — UAGUR3- T& I i i I i i H Antony Karl og félagar hans í KA-liðinu verða í sviðsljósinu gegn FIi í kvöld kl. 20.00. Mynd: KL fþróttir helgarinnar: KA-FH í kvöld - knattspyrnan allsráðandi Það er knattspyrna og aftur knattspyrna sem er á dag- skránni um helgina. Þar ber hæst leik KA og FH í 1. deild- inni í knattspyrnu í kvöld á Akureyrarvelli. Einnig eru leikir í 1. deild kvenna, 2., 3. og 4. deild karla og 2. flokki karla. Síðari umferð 1. deildarinnar í knattspyrnu hefst með leik KA og FH á Akureyri í kvöld, föstu- dag, kl. 20.00. Fyrri leik liöanna lauk með markalausu jafntefli þannig að búast má við hörkulcik á Akureyrarvelli í kvöld. Þór keppir við Víking fyrir sunnan á mánudagskvöldið kl. 20.00. KA og ÍA leika í 1. deild kvenna kl. 18.00 á Akureyrar- velli í kvöld. Upphaflega átti leikurinn að vera kl. 20.00 en leiktímánum var breytt vegna leiksins hjá strákunum. Þórs- stelpurnar leika einnig í 1. deild kvenna gegn Stjörnunni á Þórs- vellinum kí. 20.00. í 2. deildinni kcppir Tindastóll við Völsung á Sauðárkróki og Leiftur við Einherja á Ólafsfirði kl. 20.00. í 3. deildinni keppa Dalvík og Valur á Dalvík og Kormákur mætir KS á Hvammstanga í kvöld. Á laugardag keppir síðan Magni við Hugin á Grenivík. í 4. deildinni keppir Hvöt við HSÞ-b á Blönduósi og Efling við UMSE-b á Laugum á laugardag kl. 14.00. Allt besta frjálsíþróttafólk landsins er á Selfossi um helgina að keppa á Meistaramóti íslands í frjálsum íþróttum. , Knattspyrna/2. flokkur: Arni með þrennu - er Þór lagði Stjörnuna 4:1 „Komum sterkir til leiks“ - byrjum á FH í kvöld - rætt við Guðjón Þórðarson þjálfara KA Guðjón Þórðarson þjálfari KA. Nú er fyrri umferð í 1. deiid karla á Islandsmótinu í knatt- spyrnu lokið og af því tilefni var rætt við þjálfara Akureyr- arliðanna tveggja, Guðjón Þóröarson þjálfara KA og Mil- an Duricic þjálfara Þórs. Guð- jón Þórðarson þjálfari KA varð fyrst fyrir svörum og hann var spurður hvort hann væri ánægður með árangur KA- liðsins í fyrri umferðinni. „Nei, ég er það ekki. Við köstuðum frá okkur dýrmætum s'tigum og það má ekki gerast hjá liði í hinni hörðu baráttu 1. deild- ar. Hins vegar má ekki gleyma því að við lögðum toppliðin Fram, KR og Val þannig að. KA hefur alla burði til þess að vera í fremstu röð,“ sagði Guðjón. - Nú hefur verið mikill tröppugangur í leik KA-Iiðsins. Góðir sigrar hafa unnist, eins og þú bendir á gegu KR, Fram og Val, en síðan hafa tapast leikir eins og t.d. á móti Fylki. Hver er ástæðan fyrir þessu misjafna gengi? „Ef ég vissi það þá myndi þessi tröppugangur ekki vera í liðinu. Þetta eru sjálfsagt margir sam- virkandi þættir sem eiga þar hlut að máli, t.d. vanmat á andstæð- fþróttir helgarinnar: Knattspyrna: Föstudagur: 1. deild KA-FH á Akureyrarvelli kl. 20.00 1. deild kv. KA-ÍA á KA-vellinum kl. 18.00 1. deild kv. Þór-Stjarnan á Pórsvellin- um kl. 20.00 2. deild Tindastóll-Völsungur á Sauðár- króki kl. 20.00 2. deild Leiftur-Einherji á Ólafsfirði kl. 20.00 3. deild Dalvík-Valur Rf. á Dalvík kl. 20.00 3. deild Kormákur-KS á Hvammstanga kl. 20.00 Laugardagur: 3. deild Magni-Huginn á Grenivík kl. 14.00 4. deild Efling-UMSE-b að.Laugum kl. 14.00 4. deild Hvöt-HSÞ-b á Blönduósi kl. 14.00 2. fl. ka. KA-KR á KA-vellinum á kl. 14.00 Sunnudagur: 2. fl. ka. Þór-KR á Þórsvellinum kl. 14.00 Mánudagur: 1. deild Víkingur-Þór á Víkingsvellin- um kl. 20.00 ingum og lélegt dagsform, en þessi vandamál eru vonandi að baki og við ætlum að koma sterk- ir til leiks í síðari umferðinni." - Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart í fyrri umferðinni? „Nei, það er varla hægt að segja það. Liðin hafa raðað sér í þau sæti sem maður bjóst við fyr- ir mótið. Þó er hægt að segja að lið Fram og Vals hafa ekki komið eins sterk til leiks eins og búast hefði mátt við. Einnig má segja að dagsformið virðist hafa ráðið mun meira um úrslit leikja en raunverulegur styrkleiki liðanna. Ég hef nú trú á því að þetta muni breytast í síðari umferðinni og þá muni skilja að með topp- og botnliðunum. Þegar hins vegar baráttan fer að harðna á botninum verða þau lið sem berjast fyrir lífi sínu í Héraðsmót USAH var haldið nýlega á Skagaströnd. Kepp- endur voru rúmlega 70 frá 6 félögum og fór mótið hið besta fram. Umf. Fram á Skaga- strönd sigraði í stigakeppni félaga en besta árangri mótsins náði Helgi Þór Helgason Geislanum í kringlukasti er hann varpaði henni 50,60 m. Bestum árangri kvenna náði Guðbjörg Gylfadóttir Fram er deildinni ill viðureignar þannig að ekki er hægt að bóka sigur gegn einu einasta liði og það ættu að vera góð tíðindi fyrir áhorf- endur því búast má við mikilli baráttu í hverjum einasta leik." Guðjón bætti því við að hann hefði orðið fyrir nokkrum von- brigðum með áhorfendur á Ak- ureyri í ár, bæði hvað varðar KA og Þór. „Bæði hafa mun færri mætt á völlinn og sfðan hefur stemmningin ekki verið eins góð og búast mætti við. Við erum nú í toppbaráttu og Þórsarar virðast vera að rífa sig upp frá botninum þannig að ég vona nú að fólk mæti á völlinn og hvetji Akureyr- arliðin til sigurs. Og hvers vegna ekki að byrja á leik KA og FH í kvöld,“ bætti Guðjón Þórðarson þjálfari KA við brosandi. hún varpaði kúlunni 13,61 m. Stigahæsti karlmaðurinn á mótinu varð Guðmundur Ragnarsson en stigahæsta. konan Steinunn Snorradóttir, bæði úr Hvöt á Blönduósi. Það var Umf. Fram á Skaga- strönd sem sá um framkvæmd mótsins og Verkalýðsfélag A- Húnvetninga sem gaf öll verð- laun til mótsins. Við munum á þriðjudaginn fara yfir úrslit í ein- stökum greinum. „Þetta var ánægjulegur sigur og þetta er vonandi á réttri leið eftir frekar slnkan árangur að undanförnu,“ sagði Gunnar Gunnarsson þjálfari 2. flokks Þórs eftir að strákarnir hans unnu stórsigur á Stjörnunni 4:1 á Þórsvellinum á miðvikudags- kvöldið. A sama tíma tapaði Tindastóll 3:2 fyrir UBK í 2. flokki á Sauðárkróki og er þá næsta víst að liðið kemst ekki upp í A-riðil. Yfirburðir Þórsara voru miklir gegn Stjörnunni og var staðan 3:0 í leikhléi. Árni Þór Árnason var í miklum ham í þessum leik og skoraði þrennu. Sævar Árnason skoraði síðan fjórða markið áður en Garðbæingunum tókst að pota inn einu. Skagamenn hafa góða forystu í 2. flokki og eru næsta öruggir um íslandsmeistaratitilinn. Þór og Valur berjast um 2. sætið en KA, Víkingur og KR eiga í harðri bar- áttu á botninum og ræðst staðan mikið nú um helgina er KR-ingar koma hingað norður og keppa við KA á laugardag og Þór á sunnudag. Á Sauðárkróki fór fram óopin- ber úrslitaleikur B-riðils 2. flokks á milli Tindastóls og Breiðabliks. Jafnt var í leikhléi en Guðmund- ur Þórðarson skoraði strax á upp- hafsmínútunum fyrir UBK. Ingi Þ. Rúnarsson jafnaði fyrirTinda- stól um miðjan hálfleikinn og Pétur Björnsson kom síðan heimamönnum yfir nokkru síðar. En þeir Halldór Kjartansson og Þorsteinn Svcinsson skoruðu tvö mörk fyrir Breiðablik undir lok leiksins og tryggðu liði sínu sigur. Árni Þ. Árnason skoraði þrjú mörk gegn Stjörnunni í fyrrakvöld. Frjálsar íþróttir: Helgi hæstur - á Héraðsmóti USAH 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 Feðgarimma Steingrímur Björnsson deildarstjóri í Járn- og glervörudeild KEA setti met í síðasta getraunaleik með því að hafa 10 rétta. Þar með sló hann Pál Leósson út úr keppninni og hefur nú skor- að á son sinn Rúnar Steingrímsson, þann þekkta knattspyrnu- frömuð. Steingrímur sagðist ekki geta verið með minna en 10 rétta aftur og þá kvað við í Rúnari að hann færi nú létt aö vera með 11 rétta. Þetta eru stór orð og verður athyglisvert að fylgjast með því hvort þeir feðgarnir geta staðið við þessi orö sín. Steingrímur: Rúnar: KA-FH 1 KA-FH 1 Fylkir-Fram 2 Fylkir-Fram 2 ÍA-KR 2 ÍA-KR 1 Valur-ÍBK 1 Valur-ÍBK 1 Víðir-Selfoss 1 Víðir-Selfoss 1 Tindastóll-Völsungur 1 Tindastóll-Völsungur X Leiftur-Einherji 1 Leiftur-Einherji 1 ÍBV-Breiðablik 1 ÍBV-Breiðablik X ÍR-Stjarnan 2 ÍR-Stjarnan 2 Víkverji-Hveragerði 1 Víkverji-Hveragerði 1 Dalvík-Valur Rf. 1 Dalvík-Valur Rf. 1 Magni-Huginn 1 Magni-Huginn 1 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.