Dagur - 25.07.1989, Blaðsíða 13
Mfái M WÉtferfiw - - s r
Þriðjudagur 25. julí 1989- DAGUR - 13
Húsavík:
Snorri er dáinn
Selkópurinn Snorri er dáinn.
Eins og lesendur Dags eflaust
muna var sagt frá því í byrjun
júní að fjölskylda frá Húsavík
hefði fundið selkóp, illa á sig
kominn, í Saltvíkurfjöru. Fjöl-
skyldan, Hera Hermannsdótt-
ir, Stefán Sveinbjörnsson og
börn þeirra, fór heim með
selkópinn og hlúði að honum.
Var Snorra búið ból viö heita
pottinn í garðinum og heillaði
hann bæði fulloröna og börn,
enda var kópurinn gæfur og
tók fólkinu sem sínum ættingj-
um, en þeim hefur hann lík-
lega aldrei kynnst.
Snorri bjó í hálfan mánuð hjá
fjölskyldunni á Húsavík en þá
var hann fluttur að Breiðuvík á
Tjörnesi. Þar eru selalátur og var
fyrirhugað að sleppa Snorra í sjó
þegar hann hefði aldur til. En
selkópnum entist ekki aldur til
að komast í kynni við aðra land-
seli, hann dó eftir hálfs mánaðar
dvöl á Tjörnesinu.
Stefán sagði að það hefðu ver-
ið viss vonbrigði að kópurinn
skyldi drepast, þó alveg eins
hefði verið reiknað með því í
byrjun. Kópurinn lifði í fjórar
vikur frá því hann fannst, virtist
hinn hressasti og var mikið búið
að hafa fyrir honum, t.d. við að
reyna að fá hann til að nærast. En
það gekk alltaf illa og mun eitt-
hvað hafa verið að meltingunni.
Hugsanlega hefur meltingarveg-
urinn laskast er kópurinn skreið
einn og yfirgefinn um Saltvíkur-
fjöru og át sand í stað móður-
mjólkur. IM
Bfllinn minn
- ný og aðgengileg
handbók fyrir bfleigendur
Vaka-Helgafell hefur j»efið út'
bókina Bíllinn minn. I þessari
aðgengilegu handbók eru grein-
argóðar og hagnýtar upplýsingar
sem gefa öllum bíleigendum
kleift að annast sjálfir viðhald-
bíla sinna. Þanning er hægt að
draga verulega úr verkstæðis-
kostnaði.
I bókinni er á einfaldan og
skýran hátt farið yfir helstu þætti
í innri byggingu bílsins, sýnt
hvernig fylgjast má með ástandi
hans, hvernig greina má bilanir
og hvernig gera má við þaö sem
aflaga fer.
í þessari bók má finna flest það
sem bíleigandinn þarf vita um
bílinn.Fjöldi ljósmynda og skýr-
ingateikninga eru í bókinni sem
Jóhannes Jóhannesson tækni-
fræðingur þýddi og staðfærði.
Bókin er unnin í samvinnu við
Félag íslenskra bifreiðaeigenda.
Bíllinn minn er 312 blaðsíður.
Prentsmiðjan Oddi sá um prent-
un og bókband og Magnús Hjör-
leifsson tók kápumynd. Bókin
kostar 2.450 krónur með sölu-
skatti.
Leiðrétting
í grein um Byggðasafn Suður-
Þingeyinga að Grenjaðarstað í
blaðinu s.l. miðvikudag var sagt
að Margrét Bóasdóttir væri þriðji
byggðasafnsvörðurinn að Grenj-
aðarstað. Það er ekki rétt, hún er
fimmta í röðinni. Safnverðir á
undan henni voru Ólafur Gísla-
son, Porgerður Sigurðardóttir,
Ragnheiður Sigurðardóttir og
Aðalbjörg Halldórsdóttir. Þetta
leiðréttist hér með.
Héldu hlutaveltu
Þessar duglegu ungu stúlkur héldu hlutaveltu fyrir Rauða kross íslands
og söfnuðu góðri fjárupphæð fyrir félagið. Peningarnir hafa verið afhent-
ir og stúlkunum, sem heita SoiTía Guðmundsdóttir og Jóhanna Sævars-
dóttir, eru færðar kærar þakkir fyrir.
KROSSANES
Okkur vantar nokkra starfsmenn í verksmiðju
okkar.
Upplýsingar veitir Hilmar Steinarsson, vinnslustjóri, í
verksmiöjunni viö Krossanesbraut á Akureyri frá
þriöjudeginum 25. júlí.
Krossanes.
Blaðamaður
Dagur óskar eftir að ráða blaðamann til
starfa á Sauðárkróki frá og með 20. sept-
ember nk.
Um er aö ræöa fullt starf og mun viðkomandi jafn-
framt verða umboðsmaður blaðsins á Sauöárkróki.
Góö íslensku- og vélritunarkunnátta áskilin.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist ritstjóra Dags, Strand-
götu 31, 600 Akureyri, fyrir 10. ágúst nk., merkt:
„Blm. Sk“.
Til sölu úr þrotabúi
Til sölu eru eftirgreindar eignir úr þrotabúi Þor-
steins Aðalgeirssonar:
Fasteignir:
Mímisvegur 17, Dalvík.
Bjarkarbraut 3, Dalvík.
Ytra-Holt, Dalvík.
Loödýrabú aö Böggvisstööum.
Þá eru til sölu u.þ.b. 27.000 minkar, sem skiptast
þannig:
U.þ.b. 5000 fullorðin dýr og u.þ.b. 22.000 hvolpar.
Upplýsingar veitir undirritaður í síma 21847.
Árni Pálsson hdl.,
bústjóri til bráðabirgða.
Auglýsing
um verklegt próf í endurskoðun
Samkvæmt reglugerö nr. 208/1979, sbr. reglugerð
nr. 1/1980, veröur haldið verklegt próf til löggildingar
til endurskoðunarstarfa í nóvember 1989.
Þeir sem hyggjast þreyta prófraun sendi prófnefnd
löggiltra endurskoðenda, fjármálaráöuneytinu, til-
kynningu þar aö lútandi fyrir 1. september n.k. Til-
kynningunni skulu fylgja skilríki um aö fullnægt sé
skilyröum til aö þreyta prófraun sbr. lög nr. 67/1976.
Prófnefndin mun boöa til fundar meö prófmönnum í
september n.k.
Reykjavík, 21. júlí 1989.
Prófnefnd löggiltra endurskoðenda.
Auglýsing um lausar
fjölbýlishúsalóðir
við Vestursíðu
Til umsóknar eru 5 lóöir viö Vestursíðu til aö
byggja á 3ja hæöa fjölbýlishús samkvæmt bygg-
ingarskilmálum.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu byggingafull-
trúa Akureyrar að Geislagötu 9 í viötalstíma kl.
10.30-12.00.
Umsóknarfrestur er til 11. ágúst nk.
Akureyri, 21. júlí 1989.
Byggingafulltrúi Akureyrar.
---------------------------------
Haflð þið opið
á laugardögtim eda
sunnudögum í sumar?
Ef svo er, viljum við minna á
að Dagur, helgarblað
kcmur út snemma á laugardögum.
(Fyrir kl. 8.00 til áskrifénda á Akureyri.)
Haíið samband við
auglýsingadeild Dags
fyrir ld. 11 á fimmtudag,
og auglýsingin birtist á laugardag.
Strandgötu 31 • Sími 24222.
Dagblaðið á landsbyggðinni