Dagur - 25.07.1989, Side 14
Áhöfn þyrlu Varnarliösins sýndi björgunaræfingu.
Margir fóru í útsýnisflug á þessari þyrlu - fyrir
„þúsundkall“ á niann.
Vélknúinn svifdeki
vakti mikla athygli.
Mikil aðsókn var í að
skoða innviði þyrlunn-
ar bandarísku.
Flugdagur á Akureyri
◄
Ungur drengur fær
að prófa hjálm hcrflug-
manns á þyrlunni stóru
- hann er kannski ekki
í vandræðum með að
svara spurningunni
„Hvað ætlar þú að
verða þegar þú verður
stór?“
◄
Ungur þyrfluflug-
maður horfir stoltur út
um gluggann.
Á laugardaginn stóðu félagar í Flugklúbbi íslands á
Akureyri fyrir „Flugdegi“ í bænum, og notaði mikill
fjöldi fólks sér tækifærið til að njóta þeirrar
skemmtunar. Fjöldi flugvéla, smárra og stórra, var til
sýnis, og voru vélarnar ýmist í eigu einkaaðila,
flugfélaga eða Bandaríkjahers, þ.e. Varnarliðsins á
Miðnesheiði.
Flugið hefur alltaf heillað marga íslendinga, enda er
þjóðin háðari loftsamgöngum en margar aðrar þjóðir.
Fyrsti „Flugdagurinn“ var haldinn á Akureyri fyrir
réttum 50 árum, og var þess minnst með flugsýningu nú.
Síðasta opinbera flugsýningin af þessu tagi á Akureyri
var haldin árið 1982. Milli fjögur og fimm þúsund manns
fylgdust með sýningunni. EHB
Iilsta sviffluga landsins - hún brotlenti í kirkjugarðinum á
Akureyri á sínum tíma. Myndir: kl.