Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 6
6 V--0Mft9Jja-4>e8#ijcteö#> UágésblpBö*! Fróðari um heiminn, maimleg samskiptí og tíUitssemi - Rauði krossinn heldur námskeið fyrir krakka Mannúð og menning heitir námskeið sem haldið er á Akureyri á vegum Rauða kross íslands um þessar mundir. Námskeið þetta sækja krakkar á aldrinum 8-10 ára og er, að sögn leiðbeinenda, lögð áhersla á mannlega þáttinn auk söngva og leikja. „Þetta námskeið gengur út á kynningu á Rauða krossinum, markmiðum hans og starfi jafnt innanlands sem utan,“ sagði Vala Magnadóttir sem er leiðbeinandi '*'**&. Spýtuhljóðfæri með gostöppum virka líka vel. Fanný og Vala leiðbeina krökkunum við gerð jógúrtdósahljóðfæra til nota við Afríkudansana. réttum litum . . . ásamt Fannýju Tryggvadóttur. „Við tölum við krakkana.um vin- áttu, ofbeldi sem við tengjum myndbandaáhorfi, systkinaerjur og fleira af því tagi. Það er mikið lagt upp úr því að tala saman og samvinna er einnig mikilvæg. Það er t.d. ekki áætlaður einn lita- pakki á mann heldur er skipst á og menn verða því að bíða þolin- móðir eftir að röðin komi að þeim.“ Svo þarf auðvitað að mála gripina í Vandamál og menning þróun- arlanda er útskýrð fyrir krökkun- um svo og umhverfismál, skyndi- hjálp og íslensk menning. Sem dæmi má nefna að fyrir stuttu var gamli bærinn í Laufási skoðaður, von var á kennara í skyndihjálp og Afríka hafði verið til umtals. Uppi á vegg hékk stórt málverk sem krakkarnir höfðu málað af .afrísku þorpi og verið var að búa til hljóðfæri til nota við afríku- dansa. A þennan hátt er reynt að tengja frásagnir við það sem krakkarnir gera sjálf. Hve lengi áhrif svona nám- skeiðs entust sagði Vala vera mjög misjafnt því skólasamfélag- ið væri grimmt og börn oft lögð í einelti. „Þau koma þó örugglega til með að vita meira um heiminn og af hverju ekki má henda rusli hvar sem er. Þá verða þau fróðari um mannleg samskipti og tillits- semi. Einn lítill hjá okkur var t.d. mjög hissa á happdrættisaug- lýsingu þar sem allir sögðust ætla að kaupa hús, bíla og annað í þeim dúr fyrir vinninginn en eng- inn minntist á að hjálpa þeim sem ættu bágt,“ sagði Vala. Þetta námskeið sagði hún vera tilraun og í sumar hefði það verið haldið í Reykjavík og Hafnar- firði auk Akureyrar og mælst mjög vel fyrir. Krakkarnir tóku undir orð hennar og sögðust þau hafa gaman af og myndu örugg- lega fara aftur ef hægt væri. KR . . . og setja hrísgrjón inn í dósirnar svo eitthvað heyrist. Myndir: kl Húsavíkurkirkja: Ástarsögurnar frá Snorrahúsi njóta sívaxandi vinsælda. IN lí koma út tvær bækur mánaðarlega Tilboð tilnýrra áskrifenda! Útgáfan hefur ákveðið að bjóða nýjum áskrifendum eina bók ókevpis um leið og þeir gcrast áskrifendur. beir gcta valið úr eftirtöldum bókum. Spennusöguflokkurinn: Morðið í Tauerngöngunum, Þeir dauðu drekka ekki Síðasta bónin. Líkið stjórnar leiknum. Ástarsöguflokkurinn: Hrakfallabálkur, Ómótstæðilegur karimaður Sjúkrahúsið í frumskóginum, Indíánaprinsessan. SNORRAHÚS Pósthólf 58 ■ 602 Akureyri • •asr 96-24222 Tónleikar annað kvöld Ólafur Árni Bjarnason, tenór- söngvari heldur tónleika í Húsavíkurkirkju, miðvikudag- inn 2. ágúst. Olafur Vignir Albertsson annast undileik á tónleikunum sem hefjast kl. 20.30. Efnisskráin er fjölbreytt, bæði íslensk lög, m.a. eftir Sigvalda Kaldalóns, og ítalskar aríur úr óperum, eldri og yngri. Ólafur Árni hefur stundað söngnám í Ameríku. Hann hélt sína fyrstu tónleika sl. fimmtudag í Mosfellsbæ. Húsfyllir var á tón- leikunum og undirtektir mjög góðar. IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.