Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 16
Sauðárkrókur
Húsavík
Akureyri, þriðjudagur 1. ágúst 1989
95-5960 96-41585 91-17450
Reykjavík
Pórshöfii:
Frakka á stjómlítilli
skútu bjargað til lands
Björgunarsveitin Hafliði á
Þórshöfn var kölluð út á laug-
ardagskvöld til aðstoðar
franskri skútu með einn mann
um borð, norðvestur af Langa-
nesi. Skútan var mjög stjórn-
lítil en stinningskaldi var af norð-
vestan þannig að stórar líkur
voru á að hana ræki upp í
fjöru.
Sendir voru 25-30 björgunar-
sveitarmenn landleiðina úl á
Langanes, ef svo illa vildi til aö
skútuna ræki upp að björgunum,
en Geir PH 150 var sendur til
aðstoðar henni frá sjó. Skútan
gat bjargað sér suður fyrir Font á
Langanesi þar sem hana rak síð-
an undan vindi. Erlent flutninga-
skip, eina skipið á svæðinu, kom
síðan skútunni til aðstoðar og dró
hana upp undir land og til móts
við Geir sem dró hana til Þórs-
hafnar, níu tíma siglingu.
Maðurinn á skútunni var orð-
inn þreyttur og slæptur. I gær leið
honum vel en hann var leiður yfir
öllu ónæðinu og fyrirhöfninni
sem bilunin í stjórnkerfi skútunn-
ar olli. „Fyrirhöfnina telur eng-
inn eftir sér,“ sagði Hilntar Pór
Hilmarsson, björgunarsveitar-
maður sent beið úti á Langanesi
með félögum sínum þar til skútan
hafði verið tekin í tog.
Pess má geta að björgunar-
sveitin Hafliði hefur hug á að
eignast björgunarbát og hefur
sótt um aðstoð til þess til Fjár-
veitinganefndar og Slysavarna-
félagsins. Bátur eins og menn
hafa hug á að kaupa hefði verið
klukkutíma á leið til skútunnar
en Geir var 5-6 tíma að sigla
sömu leið. Enginn björgunarbát-
ur þessarar gerðar er til á svæð-
inu frá Húsavík til Borgarfjarðar
eystri, en þar er þó gerðar út
mjög margar trillur og smábátar.
Gert verður við skútuna á
Þórshöfn og síðan mun eigandi
hennar halda áfram ferð sinni til
Noregs. Hann er vanur siglinga-
maður, kom frá Færeyjum til
Reykjavíkur fyrir um það 'bil
þrem vikum, en hefur í raun ver-
ið á siglingu meira og minna í tvö
ár samfleytt. IM
Hjörleifiir RE leigður
til Sigluflarðar
Sæmundur Árelíusson, útgerð-
armaður á Siglufirði, hefur gert
samning við Granda hf. í
Reykjavík um leigu á togaran-
um Hjörleifi RE 211. Skipið
verður gert út frá Siglufirði og
verður Sigurður Helgi Sigurðs-
son, eða Siggi „Dallas,“ skip-
stjóri.
Hjörleifur RE hét áður Freyja,
og var gerður út af Gunnari Haf-
steinssyni, lögfræðingi í Reykja-
vík. Síðan eignaðist Grandi
togarann sem fékk þá núverandi
nafn. Skipið var byggt árið 1972 í
Dieppe í Frakklandi. Það er 442
brúttórúmlestir, 299 lestir undir
þilfari en 164 nettó.
Togarinn mun landa öllum
aflanum erlendis, og er ráðgert
að fara þrjá sölutúra til Þýska-
lands og þrjá til Englands til ára-
móta, og auk þess einn sölutúr í
janúar.
„Pað er búið að gera ntikið við
skipið, og tækin í brúnni eru þau
bestu sem hægt er að hugsa sér,“
sagði Sigurður skipstjóri. Hjör-
leifur RE var sandblásinn hátt og
lágt fyrir tveimur árum, og gert
við ýmislegt í leiðinni. Grandi hf
var búinn að verja 150 milljónum
króna í breytingar á Snorra Sturlu-
syni RE, þegar skipinu var breytt
í frystitogara, og var mestallur
kvóti Hjörleifs færður yfir á það
skip, því annars hefði Snorri ekki
haft kvóta nema sex mánuði á
ári. Hjörleifur mun veiða um 600
tonn af blönduðum afla til ára-
móta.
Sigurður H. Sigurðsson var um
árabil stýrimaður, . síðar skip-
stjóri á Stálvík, en þar áður var
hann stýrimaður á Sigurey og
Dagnýju, hjá Kristjáni Rögn-
valdssyni. Þórður Björnsson
verður 1. stýrimaður og Skúli Þór
Bragason 1. vélstjóri. Þrettán
manna áhöfn verður á skipinu til
að byrja með. EHB
Mynd: KL
Pélur Bjarnason með líkan af verðlaunatillögu sinni, sem hann kallar Far.
Samkeppni Flugleiða um útilistaverk:
Verðlaunatillagaii vard til á skiladagimi
Pétur Bjarnason inyndlistar-
maður úr Garðabæ hlaut
fyrstu verðlaun í samkeppni
Flugleiða um útilistaverk.
Verkið er gjöf Flugleiða til
Akureyrarbæjar og því hefur
verið valinn staður við
Strandgötuna.
Samkeppnin var sem kunn-
ugt er haldin í tilefni af hálfrar
aldar afmæli samfelds atvinnu-
flugs á árinu 1987. Þegar skila-
frestur rann út 3. júlí höfðu 30
tillögur borist dómnefnd og
þann 23. júlí kom hún saman og
valdi úr tillögum.
Dómnefnd veitti fyrstu verð-
laun einni af þremur skyldum
tillögum Péturs sem hann kallar
Far. Um er að ræða steyptar
einingar úr bronsi, sem standa á
sökkli úr blágrýti. Verkið verð-
ur um 3,2 metrar á hæð. Önnur
verðlaun hlaut Snorri Sveinn
Friðriksson og þriðju verðlaun
Guðmundur Jónsson. Sérstaka
viðurkenningu hlaut svo tillaga
Ingu Dagfinnsdóttur.
„Þetta hefur kostað mikil
heilabrot. Ég hafði glímt við
þetta í langan tíma en útkoman
varð alltaf bátur. Það var svo
ekki fyrr en að morgni skila-
dagsins sem ég komst niður á
þessa tillögu," sagði Pétur í
samtali við Dag, eftir að hann
hafði tekið við verðlaunum sín-
um úr hendi Sigurðar Helgason-
ar stjórnarformanns Fíugleiða.
Tillögurnar 30 verða almenn-
ingi til sýnis næstu daga í Síðu-
skóla. Sýningin er opin frá
þriðjudegi til föstudags kl. 16-
20 og frá laugardegi til mánu-
dags kl. 14-18. ET
Ólöglegar silungsveiðar í Ólafsfirði í skjóli nætur:
Óslax kærði veiðiþjófiiað til lögreglu
- haíbeitarlax kemur særður og með spúna í gildrur stöðvarinnar
Oslax í Ólafsfiröi kæröi veiði-
þjófnað til lögreglunnar í
Olafsfirði í gær. Starfsmenn
stöðvarinnar gripu veiðiþjóf í
fyrrinótt sem var við stanga-
veiðar í ósnum sem fellur úr
Ólafsfjaröarvatni en stöðin
hefur gildrur í ósnum fyrir
hafbeitarlax og eru veiða í og
við ósinn stranglega bannaðar.
Ármann Þórðarson hjá Óslaxi
segir að vart hafi orðið við
stangaveiðar í ósnum í fyrrasum-
ar en þá hafi málið ekki komist á
það stig að kæra hafi verið borin
fram. „Menn eru núna að stelast
í ósinn fyrir neðan gildruna á
nóttunni og jafnvel á daginn. í
fyrradag komu tveir laxar í gildr-
una með spún í sér þannig að
þetta fer ekki milli mála. Yfirleitt
er þá um að ræða að „húkkað“
hafi verið í fiskana," segir
Ármann.
Starfsmenn Óslax brugðu á
það ráð að fylgjast með ósnum í
fyrrinótt með þeim árangri að
einn maður var gripinn við ólög-
legar veiðar. I framhaldi af því
var veiðiþjófnaðurinn kærður til
lögreglunnar.
Ármann segist gera ráð fyrir að
þessar veiðar hafi viðgengist í
einhverjum mæli í sumar. Nú
verði hins vegar að taka hart á
málinu til að koma í veg fyrir
þennan þjófnað. JOH
Innanlandsflug:
Gengið vel hjá FN og Flugleiðum
- útlendingar oft meirihluti farþega
Innanlandsflug norðanlands
hefur gengið ágætlega í sumar
hjá Flugfélagi Norðurlands og
Flugleiðum. Yfirleitt er um að
ræða fleiri ferðir yfir sumar-
tímann og oft eru útlendingar
stór hluti farþega.
Hjá Flugfélagi Norðurlands
jókst farþegafjöldi um 3% fyrstu
6 mánuði ársins en að sögn Friðr-
iks Adolfssonar hafði ekki verið
búist við slíku. „Það virðast vera
fleiri útlendingar en áður í ferð-
um hjá okkur. Þeir sækja aðal-
lega í hringflug, til Egilsstaða og
ísafjarðar og svo í Grímseyjar-
flugið. Sumarið hefur gengið
mjög vel og mér líst vel á fram-
haldið," sagði Friðrik.
Gunnar Oddur Sigurðsson
umdæmisstjóri Flugleiða sagði
heilmikið hafa verið að gera í
flugi til og frá Akureyri. Hann
sagði útlendinga vera áberandi
og væri t.d. fyrsta vél frá Reykja-
vík full af fólki sem færi í dags-
ferðir í Mývatnssveit og síðan til
baka sama kvöld. Þeir íslending-
ar sem væru á ferð séu mikið til
fastir viðskiptavinir en ekki er
mikið um íslenska ferðamenn í
íluginu.
, Til að auka
Flugleiðum til
Sauðárkróks voru
millilendingar
ferðafjölda hjá
Húsavíkur og
teknar upp
sumar. Björn
Hólmgeirsson umboðsmaður
Flugleiða á Húsavík sagði þetta
hafa mælst nokkuð vel fyrir og
mun betri nýting næðist. Reynt
hefur verið í sumar að bjóða upp
á dagsferðir svipaðar og frá
Akureyri en Björn sagði það ekki
hafa gengið nógu vel vegna lítils
undirbúnings. „Við erurn þó ekki
svartsýnir á framhaldið því að
ágústmánuður hefur oft komið
best út,“ sagði hann. KR