Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 8
S'-^rDAGUR - Þriðjudagur 1. ágúat i989
íþróttir
Knattspyrna/1. deild:
Þórsarar sáu ekki til sólar
- og töpuðu fyrir Fylki 3:1
Þórsarar komu harkalega nið-
ur á jörðina eftir ágætan
árangur í tveimur síðustu leikj-
um í 1. deildinni í knattspyrnu
er þeir mættu Fylkismönnum á
Þorsteinn Jónsson skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Þór en það dugði ekki til.
Akureyrararvelli á föstudags-
kvöldið. Baráttan og leikgleð-
in var Fylkismegin og gestirnir
unnu verðskuldaðan sigur 3:1.
Akureyrarvöllurinn var háll
eftir nokkrar rigningarardembur
fyrr um daginn og áttu leikmenn í
nokkrum erfiðleikum með að
fóta sig á hálum vellinum. Það
var þó ljóst frá fyrstu mínútu að
Fylkismenn ætluðu að selja sig
dýrt í leiknum því þeir voru
neðstir i deildinni fyrir þennan
leik. Þórsarar, aftur á móti, virk-
uðu frekar hikandi og virtist
mótstaða gestanna slá þá út af
laginu.
Hilmar Sighvatsson, Fylkis-
maður, fékk nægan tíma til að
athafna sig á miðjunni og þar
hófust flestar sóknaraðgerðir
Fylkis. Á 29. mínútu fékk Hilmar
boltann, gaf hann á Örn Valdi-
marsson sem lék fram á völlinn
og lét vaða að marki. Árangurinn
var eitt glæsilegasta mark
sumarsins á Akureyrarvelli,
knötturinn small í þverslá og inn
án þess að Baldvin ætti mögu-
leika á því að verja.
Markið kom eins og vatnsgusa
framan í Þórsara og aðeins fimm
mínútum síðar jók Fylkir forskot
sitt í leiknum. Hilmar skaut að
marki en boltinn stefndi fram
hjá. Þórsvörnin fraus og Gústaf
Vífilsson renndi knettinum í net-
iö af stuttu færi.
Þorsteinn Jónsson minnkaði
muninn rétt fyrir leikhlé með fal-
legu skoti sem snerti varnarmann
og boltinn small í netinu.
Þórsarar komu frískir inn á og
gerðu nokkuð harða hríð að
marki Fylkis. En vörnin var sterk
hjá þeim appelsínugulu og
leikurinn koðnaði nokkuð niður
fljótlega. Hilmar Sigurgíslason
fékk að vísu ágætt færi en skot
hans fór fram hjá markinu.
Milan þjálfari setti þá báða
varamennina inn á til þess að
þyngja sóknina hjá Þór en allt
kom fyrir ekki, Fylkismenn
hrundu öllum sóknartilburðum
heimamanna. Þó sk'áll hurð nærri
hælum á 30. mínútu er boltinn
dansaði á millí átján leikmanna í
vítateig Fylkis eftir hornspyrnu
Þórsara en varnarmönnum tókst
að spyrna frá á síðustu stundu.
Það var síðan Baldur Bjarna-
son sem veitti Þórsurum náðar-
stunguna fimrn mínútum fyrir
leikslok er hann fékk knöttinn
einn og óvaldaður inni í vítateig
Þórs og átti í litlum erfiðleikum
með að skora þriðja mark Fylkis
fram hjá Baldvini í markinu.
Hilmar Sighvatsson var besti
maður Fylkis í þessum lcik og
létu Þórsarar hann hafa allt of
mikið pláss og tíma til þess að
athafna sig. Einnig áttu Baldur
Bjarnason og Örn Valdimarsson
ágætan leik. Annars lék allt Fylk-
isliðið vel og vann verðskuldaðan
sigur.
Þórsarar vilja sjálfsagt gleyma
þessum leik sem fyrst. Engu lík-
ara virtist en leikmennirnir
teldu sér sigurinn vísan áður en
leikurinn byrjaði og það kann
ekki góðri lukku að stýra. Luca
Kostic stóð fyrir sfnu í vörninni að
vanda en flestir aðrir leikmenn
liðsins voru á hælunum í þessum
leik. Ólafi Þorbergssyni var vísað
af leikvelli fyrir að brjóta tvívegis
illa á leikmanni Fylkisliðsins.
Nú eru fjögur lið, Víkingur,
IBK, Þór og Fylkir, neðst og jöfn
í 1. deildinni með 10 stig hvert
félag og stefnir í hörkubaráttu
um fallið.
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson,
Luca Kostic, Þorsteinn Jónsson, Nói
Björnsson, Ólafur Þorbergsson, Sveinn
Pálsson. Kristján Kristjánsson (60. mín.
Sævar Árnason), Bojan Tanevski (70.
mín. Bjarni Sveinbjörnsson), Júlíus
Tryggvason, Birgir Karlsson, Hlynur
Birgisson.
Lið Fylkis: Guðmundur Baldursson,
Loftur Ólafsson, Valur Ragnarsson,
Gústaf Vífilsson (Jón B. Guðmundsson
60. mín.), Pétur Óskarsson, Guðmundur
Magnússon (Ólafur Magnússon 70.
mín.), Hilmar Sighvatsson, Anton Jak-
obsson, Baldur Bjarnason, Örn Valdi-
marsson, Gísli Hjálmtýsson.
- lagði Hugin 5:1 - Mikilvægur sigur Magna
Arnar Snorrason og félagar í Dalvíkurliðinu unnu góðan sigur á laugardag-
inn á Seyðfirðingum í 3. deildinni.
í Skagamönnum
I tilefni af 50 ára afmæli
Skagastrandar lék úrvalslið
USAH við 1. deildarlið ÍA á
Skagaströnd. Margir áhorf-
endur voru á leiknum og var
hann fjörugur og skemmtileg-
ur. Eftir mikla baráttu höfðu
Skagamenn betur og sigruðu
3:1.
Lið USAH var að mestu skip-
að leikmönnum Hvatar á
Blönduósi en þeim til halds og
traust var skólastjóri Grunnskól-
ans á Skagströnd, Páll Leó
Jónsson. Og það var enginn ann-
ar en Páll Leó sem skoraði fyrsta
mark leiksins. Hann lék í gegn-
um vörn ÍA og skoraði með
hörkuskoti án þess að Ólafur
Gottskálksson í markinu kæmi
nokkrum vörnum við.
Páll Leó Jónsson þurfti aö yfir-
gefa leikvöllinn eftir fyrri hálfleik
því hann er þjálfari og leikmaður
með Kormáki á Hvammstanga
og þeir Kormákspiltar áttu að
leika við Austra í 3. deildinni síð-
ar um daginn. Reyndar var leikn-
um frestað vegna erfiðra flug-
samgangna að austan þannig að
Páll missti af fjörinu í síðari hálf-
leik á Skagaströnd.
Stefán Viðarsson jafnaði fyrir
ÍA í fyrri hálfleik og þannig var
staðan í leikhléi 1:1.
í síðari hálfleik skoruðu þeir
Arnar Gunnlaugsson og Harald-
ur Ingólfsson og tryggðu gestun-
um sigur. Þess má geta að Auð-
unn Sigurðsson markvörður
Hvatar varði vítaspyrnu frá Karli
Þórðarsyni við mikinn fögnuð
áhorfenda.
Guðni Jónsson fór holu í höggi í síðustu
Knattspyrna/3. deild:
Huginn frá Seyðisfirði gerði
ekki góða ferð til Dalvíkur um
helgina, því liðið tapaði 1:5
fyrir sprækum Dalvíkingum í
B-riðli 3. deildar. Magni vann
dýrmætan sigur á Þrótti 3:2 á
Grenivík og vænkast nú hagur
liðsins til muna. Reynisinenn
fóru illa að ráði sínu og töpuðu
óvænt 2:1 fyrir Val á Arskógs-
strönd. Leik Korináks og
Austra var frestað vegna
slæmra verðurskilyrða og
verður hann leikinn 9. ágúst.
Þrátt fyrir frekar leiðinlegt
verður á laugardaginn fjöl-
menntu Dalvíkingar á völlinn og
þeir fengu líka töluvert fyrir aur-
inn. Liðið þeirra rúllaði Seyðfirð-
ingum upp og eiga nú Dalvíking-
ar ágæta möguleika á því að ná
öðru sætinu í riðlinum.
Ragnar Rögnvaldsson var á
skotskónum í þessum leik og
skoraði þrcnnu. Hann setti fyrsta
markið fljótlega í leiknum en
Kristján Jónsson jafnaði fyrir
Hugin úr vítaspyrnu. Sigfús
Kárason kom Dalvík yfir með
mjög fallegu marki og þannig var
staðan í leikhléi.
Dalvíkingar tóku öll völd á
vellinum í síðari hálfleik og skor-
aði Ragnar þriðja markið. Sigfús
skoraði síðan fjórða markið og
var þetta 11. mark hans í einungis
þremur leikjum. Það þýðir að
hann er markahæstur í 3. deild
ásamt gamla félaganum hans í
Þrótti R., Sigurði Hallvarðssyni.
Ragnar átti síðasta orðið í leikn-
um er hann skoraði eftir mjög
óeigingjarna sendingu frá Sigfúsi.
Sem sagt, stórsigur Dalvíkinga
5:1.
Mikilvægur Magnasigur
Magni tók á móti næst-efsta liði
3. deildar, Þrótti N., á föstudags-
kvöld og gerði sér lítið fyrir og
skellti Norðfirðingunum. Þetta
var mjög mikilvægur sigur og
bætir mjög stöðu Magna í sam-
keppninni um sæti í deildinni.
Þróttarar mættu með heila rútu
af stuðningsmönnum og var því
fjör bæði innan vallar og utan.
Heimir Ásgeirsson kom Magna
yfir 1:0 um miðjan fyrri hálfleik
og þannig var staðan í leikhléi.
Hörður Rafnsson jafnaði fyrir
Þrótt, beint úr aukaspyrnu,
snemma í síðari hálfleik en
Reimar Helgason kom Magna
yfir aftur skömmu síðar. Jón S.
Ingólfsson jók forskot heima-
manna er hann skoraði úr víta-
spyrnu. Reyndar varði mark-
vörður Þróttar spyrnuna en Jón
fékk boltann aftur og skoraði
örugglega. Guðbjartur Magnús-
son minnkaði muninn fyrir Þrótt
3:2 en þar við sat og þrjú mikil-
væg stig urðu eftir á Grenivík.
Nokkur harka hljóp í leikinn
undir lokin og þurfti Marinó
Þorsteinsson dómari leiksins að
sýna þremur Magnamönnum og
fjórum Þrótturum gult spjald.
Þar að auki fékk Þróttarinn,
Þráinn Haraldsson, að sjá rautt
hjá dómaranum.
Júgóslavinn Bojan Tanevski í baráttu við varnarmann Fylkis.
USAH stóð
Dalvík á hörku siglingu