Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 4

Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 4
2 - fiitíOAÖ — ®ÖBÍ íeiffjs .f ujfjsbuiörrf 4 - DAGUR - Þriðjudagur 1. ágúst 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 80 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON DREÍFINGARSTJÖRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Reynslan af bjómum Áfengisneysla hefur aukist um 36% í alkóhól- lítrum talið fyrstu sex mánuði þessa árs mið- að við fyrstu sex mánuðina í fyrra. Aukningin er enn meiri ef einungis er litið á tímabilið apríl-júlí, þá er hún 45,5% miðað við sama tímabil í fyrra. Sala á sterkum drykkjum og vínum hefur verið nokkru minni í ár en í fyrra en bjórsalan „bætir“ það upp og rúmlega það. Aukna áfengisneyslu má sem sagt fyrst og fremst rekja til bjórsins, sem bókstaflega hefur flætt yfir landann frá því bjórsala hófst þann 1. mars s.l. Sala ÁTVR hefur undanfarin ár samsvarað um 4,5 lítrum af hreinu alkóhóli á hvern landsmann 15 ára og eldri. Verði framan- greind aukning viðvarandi gæti sú tala því hækkað í um 6,5 alkóhóllítra á hvern íslend- ing frá 15 ára aldri. Það er hrikaleg tilhugsun og þá má fara að tala um stökkbreytingu til hins verra í áfengismálum íslendinga. Spár þeirra sem voru andstæðingar bjórs- ins eru á hraðri leið með að rætast. Helsta röksemd þeirra gegn því að leyfa bruggun og sölu áfengs öls hér á landi var sú, að það kæmi örugglega sem viðbót við þá áfengis- neyslu sem fyrir var. Þetta hefur nú komið á daginn, þótt áhrif bjórfrelsins séu ekki að fullu komin fram. Dagur var í hópi þeirra sem börðust gegn bjórnum og vildi eindregið að þessi stóra ákvörðun yrði lögð fyrir þjóðina alla. Því var hafnað og bjórfrumvarpið var samþykkt með naumum meirihluta á Alþingi. Mikil er ábyrgð þeirra þingmanna sem veittu því brautargengi á sínum tíma. Þeir verða nú að horfast í augu við það að ákvörðun þeirra hefur þegar leitt til stóraukinnar áfengis- neyslu í landinu. Það þýðir að hættan á fylgi- kvillum áfengisneyslunnar hefur einnig auk- ist til muna og var þó ærin fyrir. Enn einu sinni hefur komið á daginn að íslendingum er algerlega fyrirmunað að læra af reynslu annarra þjóða. Nágrannaþjóðir okkar hafa allar sömu sögu að segja af bjórnum. Hann hefur alls staðar orðið til þess að auka þá áfengisneyslu sem fyrir var. Sú staðreynd lá fyrir áður en hin örlagaríka ákvörðun var tekin. Meirihluti þingmanna vildi bara ekki trúa henni að óreyndu. En nú eru þingmennirnir og reyndar þjóðin öll reynslunni ríkari. Sú reynsla er þegar nokkuð dýrkeypt en á eftir að kosta okkur meira þeg- ar fram líða stundir. BB. lesendahornið Ó, hitaveita! Hvers á ég að gjalda? „Ég er einn af þeim góðu og tryggu notendum Hitaveitu Ak- ureyrar sem tók hitaveituna strax í mitt hús þegar hún var lögð. Það kostaði mikið - himinhátt heimtaugagjald, dýran pípu- lagningamann og síðan dýra orku frá hitaveitunni. Allt gerði maður þetta í góðri trú vegna þess að orka frá hitaveitunni átti að lækka er tímar liðu. Alltaf þegar Dagur kemur les ég hann með áfergju og athuga hvort hitaveitan fari nú ekki að lækka orkuna hjá mér. En það eru alltaf einhverjir aðrir sem fá lækkun, ýmist á orkugjaldi eða heimtaugagjaldi. Ástæðan fyrir því að þeir fá lækkun er sú að þeir voru óþekkir við hitaveituna og vildu ekki taka hana strax. En ég sem var svo hlýðinn og góður við hitaveituna fæ enga lækkun. Nú les maður í Degi að þeir sem búa í Gerðahverfi fá 35% lækkun á orkuverði í 2 ár og sum- ir þurfa ekki að borga nema hálft heimtaugagjald. Þetta eiga þeir að fá sem verða hlýðnir og góðir við hitaveituna og taka hana strax í sín hús. En hvernig skyldi fara fyrir þeim í Gerðahverfi sem ekki taka hitaveituna strax, heldur verða svolítið óþekkir? Munu þeir e.t.v. fá 70% afslátt þegar þeir taka hitaveituna eftir svo sem 2 ár? Það borgar sig greinilega ekki að vera hlýðinn og góður við þetta fyrirtæki.“ Einn sem alltaf bíður og vonar. Stórgóður sjónvarpsþáttur Sigurður hringdi: „Það er ekki oft sem mönnum er hrósað fyrir það sem vel er gert. Mér þykir hins vegar meira en sjálfsagt að hrósa aðstandend- um þáttarins „Gróska í Grímsey“ sem var á dagskrá Ríkissjón- varpsins sunnudaginn 30. júlí sl. Þessi þáttur var mjög fjöl- breyttur og sýndi mannlíf í Grímsey á skemmtilegan hátt. Þá var hlutur Samversmanna á Akureyri til fyrirmyndar. Tækni- vinna var framúrskarandi fag- mannleg og sýndi kvikmynda- tökumaður sérstakt hugrekki þegar hann seig með sín tæki og tól í björgin og fylgdist með sig- manninum. Svona á að vinna sjónvarps- efni. Til hamingju Örn Ingi og Samversmenn. Mættum við fá meira að sjá í sama dúr! Sundlaugargestur á Akureyri óhress með nýju girðinguna: „Er eins og girðing kringum fangelsisgarð“ þarf að fara að breyta ýmsum hlutum í Sundlaug Akureyrar Einar Ólafsson hringdi: „Mér finnst nýja girðingin kringum sundlaugina á Akureyri vera til skammar fyrir bæjarbúa. Þetta er eins og fangelsisgarður þegar búið er að bæta þessum gaddavír ofan á girðinguna. Girðingin sem slík er ágæt en þessi gaddavír sem settur er ofan á hana er til skammar fyrir for- svarsmenn sundlaugarinnar sem að henni standa. - Ég er ekki fastur gestur í sundlauginni en stunda sundið samt talsvert og fór m.a. í nokkur skipti í sund- laugina í Laugardal í Reykjvík á dögunum. Þar þótti mér stórkost- legt að koma. En það er alveg á hreinu að ekki er búið nógu vel að sundlaugargestum á Akureyri. Ég get sem dæmi nefnt að ef maður vill komast út að lauginni án þess að fara í gegnum sturt- urnar þá er það ekki hægt. Vissu- 'l/ | 'Wi- , j $ jíV JBS n 8 lega veit ég að þessi bygging er komin til ára sinna og ekki hugs- að nægilega fram í tímann en hlutunum þarf að fara að breyta þarna all verulega. Og hvað laug- inni viðkemur þá er hún nógu stór eins og hún er en ég hef þá hugmynd fram að færa varðandi hana að stálþil sem í lauginni er Hundaeigandi á Akureyri skrifar: „Ég get ekki annað en kvartað yfir lausum hundum í bænum. Ég er sjálf með hund sem er merktur eiganda og heimilisfangi með tvöfaldri merkingu, auk síma- númers. Hundurinn fær aldrei að vera út: öðruvísi en bundinn eða í ól. Því miður virðast margir hunda- eigendur vanrækja þá skyldu að merkja hundana. Þetta verð ég oft vör við, því lausir og ómerktir hundar ganga í flestum bæjar- hverfum. verði framlengt alveg yfir laugina og í minni hlutanum verði byggð- ir pallar og hún notuð sem barna- laug. Þannig gætu börnin haft laug útaf fyrir sig og þeir sem vilja synda geta fengið nóg pláss. Þetta kostar ekki mikið og kostar ekki mikla röskun á starfsem- inni.“ Hundaeigendur ættu að vita betur en að láta dýrin ganga þannig laus. Einn óábyrgur hundaeigandi getur skemmt fyrir öðrum, sem sinna sínum skyldum. Þetta kærulausa fólk ætti að athuga að lögreglu er heimilt að lóga ómerktum og lausum hundum. Vill þetta fólk kannski missa hundana þannig? Þetta er algjörlega bannað af bæjaryfirvölduni í reglugerð um hundahald. Fólk tekur ábyrgð á sig með því að hafa hund á heim- ilinu, en þeirri ábyrgð bregðast sumir, því miður. Kvartað yfír lausum hundum Umdeild lóð við Hlíðarlund 2: íbúar Lundahverfis ekki allir á móti byggmgimni íbúi í Lundarhverfi hringdi... ...og vildi láta það koma skýrt fram að ekki mætti setja alla íbúa hverfisins undir sama hatt í mót- mælum gagnvart fyrirhugaðri byggingu verslunar og gistiíbúða á lóð við Hlíðarlund 2. íbúinn sagði að íbúar við Heiðarlund hafi átt frumkvæði að undir- skriftalista þar sem byggingunni var mótmælt og hann hafi ein- ungis verið borinn í hús í þeirri götu. Líklegt mætti telja að flest- um öðrum en íbúum Heiðarlunds stæði á sama um fyrirhugaða byggingu og væru meira að segja henni heldur hlynntir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.