Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 1

Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, þriðjudagur 1. ágúst 1989 144. tölublað _. ^ J ] xV LACOSTE Peysur • Bolir gN jm HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri ■ Sími 23599 Protabú Þorsteins Aðalsteinssonar á Dalvík: Ekkert tflboð komið en menn leita upplýsinga - fyrsti skiptaílindur í þrotabúinu 13. september n.k. Enn sem komið er hefur ekk- ert tilboð borist í eignir þrota- bús Þorsteins Aðalstcinssonar á Dalvík. Hins vegar hcfur ver- ið spurst fyrir um sölu ein- stakra eigna þrotabúsins, að sögn Arna Pálssonar, sem gegnir stöðu bústjóra til bráða- birgða. Loðdýrabú Porsteins, Pólar- pcls á Böggvisstöðum við Dalvík, var lýst gjaldþrota sl. vor og hef- ur þrotabúið nú auglýst eignir úr því til sölu. Um er að ræða hús- eignir á Dalvík, Mímisveg 17 og Akureyri: Ölvun og ekið á dreng Helgin var fremur róleg hjá lögreglunni á Akureyri. Það bar hæst að fjórir ökumenn voru teknir grunaðir um ölvun við akstur aðfaranótt laugar- dags og drengur á reiðhjóli varð fyrir bíl á mótum Hamar- stígs og Asvegar á sunnudag. Betur fór þó en á horfðist og fékk drengurinn að fara heim strax að lokinni skoðun á slysa- deild FSA. Umferðin gekk að öðru leyti áfallalaust í umdæmi Akureyrar- lögreglu. Hringtorgið nýja virðist almennt ekki vefjast fyrir Akur- eyringum. Pó er alltaf einn og einn sem ekki hefur lesið reglur um akstur á hringtorgum nógu vel. Þannig hefur borið á því að menn velji sér ytri hring þrátt fyr- ir að farið sé fram hjá fleiri en einum gatnamótum. Slíkt er ekki lögum samkvæmt og er rétt að menn hafi það í huga. Þá er rétt að minna ökumenn á að nota stefnuljósin á hringtorgum. Ef einhvern tímann er þörf á stefnu- ljósum er það einmitt á hring- torgum! óþh Bjarkarbraut 3, jörðina Ytra- Holt við Dalvík og loðdýrabú að Böggvisstöðum. Pá eru einnig til sölu um 27 þúsund minkar, þar af 5000 fullorðin dýr og 22 þúsund hvolpar. Árni Pálsson segir að allir möguleikar verði skoðaðir í sölu á eignunum. Æskilegast sé auð- vitað að selja dýrin í einu lagi en ekki sé lokað á þann möguleika að selja þau til margra aðila. „Veðhafarnir ráða rniklu um hvernig við högum sölu eign- anna,“ segir Árni. Engin fornileg tilboð hafa enn komið í eignir þrotabúsins en hins vegar hafa menn spurst fyrir um einstakar eignir þess. Til dæmis segir Árni að margir hafi spurst fyrir um Ytra-Holt. Fyrsti skiptafundur í þrotabú- inu hefur verið ákveðinn 13. september nk. „Ef ekki verður búið að selja eignirnar fyrir þann tíma verða þær trúlega boðnar upþ,“ segir Arni Pálsson. óþh Haldið upp á 50 ára afinæli Höföahrepps Skagstrendingar fögnuðu 50 ára afmæli Höfðahrcpps með veglegum hátíðarhöldum sem stóðu frá síðastliðnum föstudegi og fram á sunnudag. Margt var gert til skemmtunar og m.a. sýndu félagar úr Lcikklúbbi Skagastrandar, sem sjást á myndinni hér aö ofan, atriði úr söngleiknum „Síldin kemur síldin fer“. En leiksýning þeirra var ekki ncma brot af viðaniikilli dagskrá sem nánar veröur sagt frá í máli og myndum í blaðinu á niorgun. JÓH - Mynd:bjb Álagningarskrá fyrir Norðurland eystra 1989: Tólf „hákarlar44 á Akureyrl greiða samtals 27,6 milljónir Oddur Carl Thorarensen, lyf- sali á Akureyri, greiðir hæstu gjöld einstaklinga á öllu Norðurlandi samkvæmt álagn- ingarskrá 1989, en gjaldahæsta fyrirtækið er Kísiliðjan hf við Mývatn. Oddur greiðir sam- kvæmt álagningarskránni kr. 3.342.108 í opinber gjöld vegna tekna fyrra árs, en Kísil- iðjunni er gert að greiða kr. 109.317.299. Röð skatthæstu einstaklinga á - Oddur C. Thorarensen skattakóngur að venju Akureyri er sem hér segir: (1) Oddur Carl Thorarensen kr. 3.342.108, (2) Halldór Baldurs- son kr. 2.709.061, (3) Jónas Franklín kr. 2.567.666, (4) Stef- án Sigtryggsson kr. 2.362.789, (5) Gauti Arnþórsson kr. 2.134.824, (6) Margrét Snorradóttir kr. 2.004.974, (7) Gunnar Ragnars kr. 1.966.490 og (8) Gísli Kon- ráðsson með kr. 1.952.109. Jafnir í 9. til 11. sæti eru Guðmundur Gunnarsson, Heiðar f>. Jóhanns- son og Jóhann Oddgeirsson með kr. 1.925.371. Ef Norðurland eystra er skoð- að í heild verður röð einstaklinga þannig: Efstir Oddur C. Thorar- ensen og Halldór Baldursson, Jónas Franklín í þriðja sæti, Stef- án Sigtryggson í fjórða, (5) Haukur Halldórsson Sveinbjarn- argerði, kr. 2.279.486, (6) Jónas Halldórsson Sveinbjarnargerði kr. 2.209.346, (7) Vigfús Guð- mundsson, Húsavík, kr. FSA og Sjúkrahúsið á Húsavík: Viðvarandiskortur á hjúknmarfræðingum Undanfarið hafa birst auglýs- ingar frá Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri og Sjúkrahús- inu á Húsavík þar sem óskað er eftir hjúkrunarfræðingum til starfa. Viðvarandi skortur mun hafa verið á hjúkrunar- fræðingum undanfarin ár og auglýsingarnar því árlegur við- burður. Svava Aradóttir hjúkrunar- framkvæmdastjóri FSA sagði hjúkrunarfræðinga oft hugsa sér til hreyfings á haustin og því væri farið að stað með átak á þessunt tíma. „Pað er ekki meiri skortur hér en annars staðar því um við- ¥' & varandi skort mun vera að ræða á hjúkrunarfræðingum. Okkur hef- ur gengið þokkalega að manna stöður í sumar en þar kemur auð- vitað á móti lokun á deildum. Við höfum reynt nýjar leiðir til að auglýsa okkur og gáfum út kynningarbækling uin starfsemi FSA sem er eitt af stærstu sjúkra- húsum landsins. Við bindum miklar vonir við að ástandið batni þegar farið verður að út- skrifa hjúkrunarfræðinga frá Háskólanum á Akureyri. Pað er vonandi einhver breyting í aðsigi því aðsókn í hjúkrunarfræði hef- ur aukist bæði hér og fyrir sunnan.“ Hér er ástandið ekki verra en það hefur oft verið,“ sagði Aldís Friðriksdóttir hjúkrunarforstjóri á Sjúkrahúsinu á Húsvík. „Petta er árlegt vandamál sem best gengur að leysa yfir sumarið. Yfirleitt hefur gengið mjög vel að ráða í afleysingar á sumrin og fleiri óskað eftir að koma en hægt hefur verið að taka. Þunglega gengur aftur á móti á veturna og við höfum haft heldur færri en þarf og erum alltaf aðeins undir. Það er líka erfiðara að vinna á Iitlum spítala en stórum og eintiig gæti skortur á dagheimilisplássi fyrir börn hjúkrunarfræðinganna verið stórt atriði.“ KR 2.147.150, (8) Gauti Arnþórsson, (9) Margrét Snorradóttir Akur- eyri, kr. 2.004.974 og (10) Gunn- ar Ragnars Akureyri. Fimrn hæstu fyrirtækin röðuð- ust þannig að Kísiliðjan er í fyrsta sæti, eins og áður sagði, með rúmar 109 milljónir króna, Kaupfélag Eyfirðinga er í öðru sæti með 100,6 milljónir, Álafoss hf í þriðja með 81,2 milljónir, Útgerðarfélag Akureyringa hf. með 25,6 milljónir og Höldur hf.greiðir 22 milljónir króna í skatta. í heildaryfirliti um skuldajöfn- un og staðgreiðslu opinberra gjalda á Norðurlandi eystra kem- ur fram að álagður tekjuskattur nemur 1.356,5 milljónum króna, frádregin staðgreiðsla til greiðslu tekjuskatts er 1.072,6 milljónir, ógreiddur tekjuskattur nemur 283,7 milljónum, reiknaðar verð- bætur 50,8 milljónum, frádregin skuldajöfnun frá nraka 35,4 millj- ónir, sem gerir liðlega 299 millj- ónir króna til innheimtu. Álagt útsvar var 1.047,5 millj- ónir króna, skattaafsláttur til greiðslu útsvars var 231,5 millj- ónir, frádregin staðgreiðsla til greiðslu útsvars alls 725,9 millj- ónir. Ógreitt útsvar nemur 90,2 milljónúm, reiknaðar verðbætur 16,2 - milljónum, frádregin skuldajöfnun frá mökum er 6,4 milljónir, alls til innheimtu kr. 99.964.349,- EHB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.