Dagur - 01.08.1989, Blaðsíða 3
e8fcitiðjudagur 1. ágú«K*8B9 fUffiA©tDR 9 3
fréftir
Breyting á miðbæ Akureyrar á næstu árum:
Húsgögnin hverfa en gata kemur í staðinn
- líklegt að hús nr. 7 við Strandgötu verði rifið fyrir 1991
Á komandi árum mun miðbær
Akureyarar taka miklum
breytingum. Hús hverfa, nýjar
götur og opin svæði koma í
þeirra stað. Eitt þeirra húsa
sem kemur til með að hverfa er
nr. 7 við Strandgötu, þar sem
nú er húsgagnaverslunin Aug-
sýn. Kaupfélag Eyfirðinga á
það hús og segir Sigfús
Jónsson, bæjarstjóri, að í
gangi séu samningaviðræður
um niðurrif þess.
Byggðastofnun hefur fengið
úthlutað hornlóðinni austan
Háskólinn á Akureyri:
Svipaður
umsóknaríjöldi
á allar brautir
Ásókn í nám við Háskólann á
Akureyri hefur verið nokkuð
mikil og fjöldi umsókna borist
í sumar. Boðið er upp á þrjár
brautir og er umsóknafjöldi
svipaður á þær allar en sú
nýjasta, Sjávarútvegsfræði
virðist þó vera vinsælust.
Um nám í hjúkrunarfræði hafa
25 manns sótt og þar af eru 3 sem
flytja sig milli skóla og fara inn á
2. og 3. ár.
Umsóknir í rekstrardeild eru
22 fyrir 1. ár en þar er boðið upp
á tvær leiðir.
Verið er að ganga frá umsókn-
um um Sjávarútvegsfræði en nám
í henni mun hefjast í haust. Bor-
ist hafa á milli 20-30 umsóknir og
enn eru einhverjar á leið í pósti.
KR
Vædderen
kemur til
Akureyrar
Danska eftirlitsskipið Vædder-
en mun leggjast að bryggju á
Akureyri nk. föstudag, en það
hefur að undanförnu verið í
eftirlitsferð fyrir norðan og
vestan landið.
Ákveðið er að gefa almenningi
kost á að skoða þetta glæsilega
skip um næstu helgi, á laugardag
og sunnudag. Á þessu stigi er
ekki frekar ákveðið með tíma-
setningar á kynningunni. Frá
þeim verður greint síðar.
Vædderen er sannarlega eitt af
flaggskipum danska flotans og
ætti að vera íslendingum að góðu
kunnugt. í því sambandi er vert
að minnast þess að Vædderen
flutti handritin heim til íslands
árið 1971. óþh
Landsbanka, þar sem nú er skýli
Strætisvagna Ákureyrar. Um leið
og bygging húss á þeirri lóð fer
í gang, sem ætla má að verði á
árinu 1991, þarf „Augsýnar-húsið“
að víkja. Norðvesturhorn lóðar
Byggðastofnunar skagar út í
núverandi Geislagötu. Loka
þyrfti því þeirri götu jafnskjótt
og framkvæmdir hefjast á lóð-
inni. í stað Geislagötu er sam-
kvæmt deiliskipulagi miðbæjar-
ins, frá 1981, gert ráð fyrir að
komi ný gata með stefnu norð-
vestur - suðaustur og kemur
tenging þeirrar götu við Strand-
götu í vesturenda „Augsýnarhúss-
ins“. Pað vill segja að ný gata í
miðbænum mun koma þar sem
umrætt hús stendur nú.
Að sögn Sigfúsar Jónssonar er
stefnt að miklum breytingum á
miðbænum á næstu árum. Hugs-
anlegt er að strax á næsta ári
verði byrjað á framkvæmdum við
Ráðhústorg og Skátagil, en eins
og kunnugt er var samkeppni á
meðal húsa- og landslagsarki-
tekta um þetta svæði.
Sigfús segir að menn séu
almennt sammála um að gera
þurfi átak í að breyta ásýnd mið-
bæjarins. Þá sé ekki endilega
verið að tala nákvæmlega um
hjarta bæjarins, heldur anga út
frá því. Sem dæmi nefnir hann
Strandgötu, hluta Geislagötu og
Hafnarstræti fyrir innan Hótel
KEA. „Það má orða það svo að
við þurfum nauðsynlega að
stækka það svæði sem er okkur til
sóma í miðbænum. Um þetta eru
aliir sammála en til þess þarf
verulegar fjárhæðir." óþh
Besta
lambakjötið
beint á grillið
Þannig
er bcst
að grilla
og marinera
lambakjöt
M*m
t&am*
Grillbœkling með
uppskriftum og
góðum ráðum
fœrðu ókeypis bjá
kjötborðinu
„Lambakjöt á lágmarksverði" er
tilbúið á grillið. Það er búið að
skera það í sérstakar grillsneiðar;
framhryggjasneiðar, rif, kótilettur
og lærissneiðar. Einnig getur þú
fengið lærið heilt ef þú vilt og
grillað það þannig.
Hvað er þá eftir? Jú, marineringin.
Marineruð, grilluð lambasteik er
lostæti og í nýja grillbæklingnum,
sem þú færð í næstu verslun,
sérðu hversu auðvelt er að blanda
sinn eiginn kryddlög og marinera. Þannig sparar
þú enn frekar.
Hagkvæmustu kaupin
á lambakjöti
„Lambakjötið á lágmarksverði" er selt í Vi
skrokkum og það eru og verða ávallt hag-
kvæmustu kaupin á lambakjöti.
Þegar þú kaupir lambakjöt á
lágmarksverði er hægt
að borða eitthvað strax,
þíða hluta þess í kæli
og frysta afganginn.
Grillveisla er ósvikin
Svo geturðu tekið jjöiskyiduhátíð.
reglulega
úr frystinum
og flutt í kælinn.
Ekkert af kjötinu skemmist og einstaklingar
og fjölskyldur geta nýtt það allt. Sem dæmi
má nefna að fyrir fjögurra manna fjölskyldu
dugar 6 kg meðalpoki í 6-7 (grill)máltíðir
og 6 kg kosta aðeins 2.190 kr. Sparaðu
- kauptu lambakjöt á lágmarksverði
og grillaðu.
SAMSTARFSHOPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS