Dagur - 02.08.1989, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 2. ágúst 1989 - DAGUR - 5
kvikmyndarýni
Umsjón: Jón Hjaltason
Melanie Griffith, Harrison Ford og Sigourney Weaver.
Syndum bera gjöld
Borgarbíó sýnir: Ein útivinnandi
(Working Girl.)
Leikstjóri: Mike Nichols.
Höfundur handrits: Kevin VVade.
Helstu leikcndur: Mclanie GrifTith,
Harrison Ford og Sigourney Weaver.
Twenticth Century Fox 1988.
Þegar öllu er á botninn hvolft er
söguþráður Einnar útivinnandi
ekki ýkja stórbrotinn. Myndin
fjallar um hugsanleg kaup risa-
fyrirtækis á meðalstórri útvarps-
stöð. En í höndunum á Mike Nic-
hols verður þessi hálfgerða
„naglasúpa“ að ansi spennandi
kvikmynd um fjörugt ástalíf,
pretti og misfrómar persónur.
Melanie Griffith leikur þrítuga
útivinnandi konu sem er staðráð-
in í því að verða eitthvað annað
og meira en einkaritari og veiði-
bráð karlkyns yfirmanna sinna.
Hún starfar hjá stóru fjármála-
fyrirtæki en gengur ekki sem best
að ná markinu. Henni lyndir ekki
við karlana, enda neitar hún að
tengjast þeim náið neðan mittis.
Vegna þessa „samstarfsörðug-
leika“ er hún rétt í þann veginn
að missa vinnuna, fær þó eitt
tækifæri enn, er færð til innan
fyrirtækisins og gerist eikaritari
Sigourney Weaver. Par lærir
Griffith á sársaukafullan hátt að
hver er sjálfum sér næstur. Hún
trúir Weaver fyrir hugdettu sinni
um kaup og sölu á fyrirtækja-
markaðinum. Weaver stelur hug-
myndinni og aðeins tilviljun kem-
ur í veg fyrir að áform hennar
verði að veruleika. Sama tilvilj-
unin veldur því að Griffith er allt
í einu komin í þá aðstöðu að geta
látið eitthvað að sér kveða í við-
skiptaheiminum, að vfsu undir
fölsku flaggi. Þegar hún kemst á
snoðir um óheiðarleika yfir-
manns síns grípur hún gæsina.
Svolítið gróf fyndni Kevins
Wade nýtur sín vel í Einni úti-
vinnandi og hvort sem það er til-
viljun eða annað þá undirstrikar
hún vel þá erfiðu stöðu sem
kvenmenn virðast geta lent í á
vinnumarkaðinum. Þær eru ekki
teknar alvarlega. - „Ég er ekkert
kjötstykki sem þú getur pantað,“
segir Griffith við kærastann þeg-
ar hann biðlar til hennar við
óheppilegar kringumstæður. Og
þegar einn yfirmanna hennar ger-
ist melludólgur snýst hún til varn-
ar á sannfærandi hátt. Þessari
kímni eru þó settar þröngar
skorður þar sem er hin banda-
ríska rómantík innpökkuð í
bandaríska drauminn um göng-
una úr fátækt í ríkidæmi. Óneit-
anlega liggur við að þessi hrist-
ingur verði væminn í Einni úti-
vinnandi en það er passandi
væmni og hæfir því sem á undan
fer.
ið í notkun 200 fm húsnæði í
suðurálmu, þar verður fundar-
aðstaða í framtíðinni, húsnæði
fyrir hið eiginlega félagsstarf
verkalýðsfélaganna. Breyting-
ar sem gerðar voru á húsnæðinu
sem tekið hefur verið í notkun
annaðist Norðurvík hf, ásamt
ýmsum undirverktökum.
Snær Karlsson, starfsmaður
verkalýðsfélaganna sagði þetta
vera í fyrsta sinn í 78 ára sögu
verkalýðsfélaganna sem þau
eignuðust eigið húsnæði, en hing-
að til hefði starfið að mestu farið
fram á heimilum stjórnarmanna
eða í leiguhúsnæði úti í bæ. Segja
mætti að tímabært hefði verið að
félögin eignuðust eigið húnæði
fyrir 80 ára afmælið, en ástæðan
fyrir hve seint að þessu kæmi væri
hve mikla áherslu félögin hefðu
lagt á atvinnuuppbyggingu. Þau
hefuð tekið þátt í öllum helstu
atvinnugreinum; sjávarútvegi,
fiskiðnaði og iðnaði.
Snær sagði alla vinnuaðstöðu á
nýju skrifstofunum mun betri en
verið hefði í helmingi minna
leiguhúsnæði sem flutt var úr og
því yrði vonandi hægt að skila
betri þjónustu. Snær starfar á
vegum verkalýðsfélaganna og
vinnumiðlunar Húsavíkur en auk
hans verður einn starfsmaður á
vegum Lífeyrissjóðsins Bjargar á
skrifstofunni.
Kári Arnór Kárason er útibús-
stjóri Alþýðubankans. Hann
sagðist ánægður með hvernig til
hefði tekist við breyingar á hús-
Anna Mb»> ía_ Karts-.. áttir, Kari A-
isdóJCv f mvndina ' * H-
•n.iarl i«
ir ,‘iistjóri og Jóhanna Guð-
Tarismann bankans sem var í
næðinu og vonast til að bankinn
gæti bætt og aukið þjónustu eftir
að vera kominn í sérhúsnæði á
góðum stað í bænum, en hann
var áður til húsa á skrifstofu
verkalýðsfélaganna. Alls vinna
þrír starfsmenn við útibúið en
stöðugildi eru tvö.
Kári Arnór sagði rniklar breyt-
ingar á bankamarkaði fyrirhug-
aðar. Reikna mætti með að úti-
búið yrði útibú frá íslandsbanka
þegar fram liðu stundir og það
mundi hleypa krafti í starfsemina
þar sem Isíandsbanki yrði mjög
stór, miðað við Alþýðubankann
sem væri lítill banki. IM
P.UOACS
Fyrir
verslunarmannahelgina
Tjöld 3ja til 5 manna.
Svefnpokar.
Bakpokar 65 og 75 I.
Vindsængur, tjalddýnur.
Kælitöskur 24, 32 og 40 I.
Tjaldborð, tjaldkollar.
Pottasett, diskasett.
Tjaldhælar, tjaldsúlur.
Viðskiptavinir vinsaml. ath.
að lokað verður laugardaginn 5. ágúst.
HH EYFtJÖRÐ
WPr Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
VöriJLkynnincf
í dag frá Osta- og smjörsölunni frá
kl. 15-18.30.
Kynntar verða 5 tegundir af ostum
og marmaraostakaka.
Kynningarverð
og með þessu er brauð frá
Brauðgerð KEA
/
A fimmtudag vörukynning
á Pizza-, vor- og kínarúllum og
Minute Maid frá Coca cola.
Á föstudag vörukynning
frá Kjötiðnaðarstöð KEA og Sanitas
Sjáumst í Sunnuhlíð
Opið mánudaga til föstudags frá kl. 9-20.
Laugardag frá kl. 10-20
Kjörbúö KEA
Sunnuhlíð
Önnumst öll verðbréfaviðskipti og veitum
hvers konar ráðgjöf á sviði fjármála
Tegund bréfs Vextir umfram verðtryggingu
Einingabréf 1,2 og 3 8,3-12,5%
Bréf stærri fyrirtækja 9,0-11,5%
Bréf banka og sparisjóða 7,0-8,0%
Spariskírteini ríkissjóðs ... 5,5-6,0%
Skammtímabréf 8,0-8,5%
Hlutabréf ?
Gengi Einingabréfa
26. júlí 1989.
Einingabréf 1 4.068,-
Einingabréf 2 .... 2.252.-
Einingabréf 3 .... 2.662,-
Lífeyrisbréf ..... 2.045.-
Skammtímabréf .. 1,398
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700
Verðbréfer eign
sem ber arð