Dagur - 09.09.1989, Qupperneq 6
PA6UR - J^SSSBR|=..*fWMR
Fréttagetraun
liðins mánaðar
Dagsprent og Asprent og gefa
Dag út í dagskrárformi.
(X) Til greina kom að sameina
Dagsprent og POB og selja hús-
næði Dags og Dagsprents við
Strandgötu.
(2) Háværar raddir kröfðust þess
að Dagur og Tíminn rynnu sam-
an í eitt blað sem yrði prentað
samtímis í Reykjavík og á Akur-
eyri.
Ágúst er liðinn, dimmur og drungalegur. Fréttir
mánaðarins voru þó sem betur fer ekki allar í
samræmi við veðurfarið og skulum við nú rifja
nokkrar þeirra upp. Þar með er komið að frétta-
getraun ágústmánaðar með 12 nýjum spurning-
um og að vanda eru þrír svarmöguleikar við
hverja spurningu en aðeins eitt svar rétt. Vin-
samlegast fyllið út svarseðilinn hér að neðan og
sendið okkur fyrir 3. október næstkomandi.
Dregið verður úr réttum lausnum og nöfn vinn-
ingshafa birt í helgarblaðinu 7. október ásamt
nýrri fréttagetraun.
1) Hvaða einstaklingar röðuðu
sér í þrjú efstu sætin yfir skatta-
kónga á Noröurlandi eystra?
(1) Birgir Ágústsson, Skúli
Ágústsson og Vilhelm Ágústs-
son.
(X) Oddur C. Thorarensen,
Gunnar Ragnars og Gísli Kon-
ráðsson.
(2) Oddur C. Thorarensen, Hall-
dór Baldursson og Jónas
Franklín. •
2) Sköntmu fyrir rokkhátíðina í
Húnaveri blossaði upp „stríð“.
Um hvað sperist það?
(1) Jón ísberg vildi gera allt
áfengi upptækt en það sættu
Stuðmenn sig ekki við. Þetta var
kallað áfengisstríð á síðum Dags.
(X) Petta var kallað hamborgara-
og samlokustríð, sem blossaði
upp í kjölfar þess að stjórn
Húnavers keypti þessi matvæli
frá Reykjavík en ekki af heima-
mönnum.
(2) Deilurnar snerust um kaup á
salernispappír. Stuðmenn settu
fram kröfur um fjólubláan fjöl-
notapappír frá Sýrlandi en stjórn
Húnavers vildi kaupa íslenskan
einnota pappír.
3) Hvaða hugmyndir voru settar
fram vegna fjárhagsvanda Dags
og Dagsprents?
(1) Rætt var um að sameina
Vinmngs-
hafar í
júlígetraun
Góð þátttaka var í fréttaget-
raun júlímánaðar og bárust
svör frá áskrifendum víða á
Norðurlandi og reyndar Aust-
urlandi einnig. Nöfnin þrjú
sem komu upp úr kassanum
eru þessi: Þórey Arnadóttir,
Lönguhlíð 7b, Akureyri. Arni
Friðriksson, Brekku, Önguls-
staðahreppi. Gunnsteinn
Sæþórsson, Presthvammi,
Húsavík.
Vinningshafarnir fá hljóm-
plötuverðlaun og fá þeir senda
sérstaka úttektarseðla þar að lút-
andi.
Rétt röð í fréttagetraun júlí-
mánaðar lítur svona út:
1) 2 1)2
2) 1 8) X
3) X 9) 1
4) X 10) 2
5) 1 11)2
6) 2 12) 1
Dagur þakkar lesendum sínum
fyrir þátttökuna í júlígetrauninni
og hvetur þá jafnframt til að
spreyta sig á fréttagetraun ágúst-
mánaðar. SS
4) Hvaða gullvægu setningu lét
Jón ísberg sér um munn fara að
Húnavershátíðinni lokinni?
(1) „Það voru minni pústrar
þarna en á venjulegum stórdans-
leik.“
(X) „Ekki sást vín á nokkrum
manni og það var engu líkara en
maður væri mættur á skátamót."
(2) „Unglingar í ölvímu veltust
ósjálfbjarga um svæðið, sjálfum
sér og foreldrum sínum til
skammar."
5) Hver var fyrsti ávöxturinn af
átaksverkefni Vestur-Húnvetn-
inga?
(1) Dreifing og sala á
broddmjólk.
(X) Sala á tómötum og gúrkum
til Hollands.
(2) Ákveðið var að efna til mál-
þings um nauðsyn þess að koma á
fót sérhæfðri stofnun fyrir átta
vetra gamla og halta hesta í
Húnaþingi.
6) Á baksíðu Dags er greint frá
dönskum verkfræðinema. í
Hvaða gullvægu setningu lýt Jón ísberg sér uni munn fara að Húnavershátíðinni lokinni?
hvaða tilgangi kom hann til
Islands?
(1) Hann heimsótti flatfisk á
Hríseyjarmiðum og hugðist kafa
í Öskjuvatni og Jökulsárlóni.
(X) Hann var fenginn til að fjar-
lægja spenna sem innihéldu PCB
úr Kröfluvirkjun.
(2) Hann hafði séð auglýsingu í
einkamáladálki Dags þar sem
ung stúlka sóttist eftir félagsskap
ungra Dana.
7) „Fáheyrður atburður á
drengjaheimili“ segir í yfirfyrir-
sögn á baksíðu blaðsins einn dag-
inn í ágúst. Hvaða atburður var
þetta?
(1) í ljós kom að einn drengjanna
hafði komið á fölskum forsend-
um. „Hann" reyndist nefnilega
vera stúlka í dulargervi.
(X) Minkur kom í heimsókn og
eftir mikinn eltingarleik tókst
starfsmönnum og drengjunum að
króa hann af og vinna á honum.
(2) Af fimmtíu drengjum á heim-
ilinu vildu aðeins þrír borða
hafragraut í morgunmat og þóttu
það slæm tíðindi.
8) Hvaða kost helstan sjá gárung-
arnir við að hafa fjárlausar göng-
ur í Svarfaðardal?
(1) Þá geta menn sleppt réttunum
og farið heim og lagt sig að
göngunum loknum.
(X) Þá hafa menn meiri tíma til
að fitla við fleygana í réttunum.
(2) Þá þurfa þeir ekki að eltast
við neinar rollur.
9) Knattspyrnuinaður frá Akur-
eyri fór til æfinga hjá ensku stór-
liði. Hvað heitir enska félagið,
hvað heitir knattspyrnumaðurinn
og með hvaða liði á Akureyri
leikur hann?
(1) Nottingham Forest. Þorvald-
ur Örlygsson úr KA.
(X) Tottenham. Kristján Krist-
jánsson úr Þór.
(2) Port Vale. Jóhannes Bjarna-
son úr TBA.
10) „Þetta er eins og í Beirút.“
Hver mælti og af hvaða tilefni?
(1) Verslunarstjóri í Vöruhúsi
KEA vegna gífurlegs hamagangs
á stórútsölunni.
(X) Varðstjóri í lögreglunni á
Akureyri aðspurður um ástandið
í Miðbænum um helgina.
(2) Bjarni Arthúrsson í Kristnesi
vegna skothríðar gæsaveiði-
manna að næturlagi.
11) Hvað sagði Þorleifur Þór
Jónsson um yfirstjórn ferðamála
á íslandi?
(1) „Ferðamálaráð er gelt og
ferðamálasamtökin gagnslaus
vegna fjárskorts."
(X) „Þetta er rumpulýður upp til
hópa og sukkið og svínaríið slíkt
að ég hef aldrei orðið vitni að
öðru eins.“
(2) „Ferðamálaráð er pólitískt
bákn sem getur aldrei komið
neinu til leiðar vegna innbyrðis
deilna."
12) Litmynd á forsíðu Dags vakti
mikla athygli. Hvað sýndi þessi
mynd?
(1) Sigfús Jónsson bæjarstjóra
þegar hann kom í mark í Reykja-
víkurmaraþonhlaupinu.
(X) Kínverskar dverghænur á
bænum Bláhvammi í Reykja-
hverfi.
(2) Tvo laxa sem voru illa
útleiknir, líklega eftir net. SS
Hvaða fáheyrði atburður átti sér stað á drengjaheimili í ágúst?
1. Svarseðill (1, X eða 2) 7.
2. ... 8.
3. 9.
4. 10.
5. 11.
6. _ _ 12.
Nafn:
Heimilisfang:
Sími:
Utanáskriftin er: Dagur - fréttagetraun,
Strandgötu 31 Pósthólf 58 602 Akureyri