Dagur - 16.09.1989, Síða 5
tómstundir
Laugardagur 16. september 1989 - DAGUR - 5
- Sæunn Guðmundsdóttir, safnari á Sauðárkróki,
í tómstundaspjalli
Það blundar í mörgum okkar
sú árátta aö safna að okkur öli-
um mögulegum hlutum, allt
frá smæstu frímerkjum til gam-
alla bíla og allt þar á milli. Enn
fleiri hafa þaö að tómstunda-
gamni að safna hlutum og
keppast við að safna sem
mestu að sér. Sumir einbeita
sér að cinhverju sérstöku til að
safna, t.d. frímerkjum, en aðr-
ir safna hinu og þessu. A Sauð-
árkróki býr ung kona að nafni
Sæunn Guðmundsdóttir sem
safnar í tómstundum sínum og
hefur gaman af. Hún á orðið
myndarlegt safn hinum ýmsu
hlutum, en leggur núna mikla
áherslu á að safna spilum. Það
eru nokkur ár liðin síðan hún
byrjaði á því og á orðið um
5000 spilategundir. Sæunn
fékkst til að spjalla örlítið um
þessa iðju sína við útsendara
Dags.
Þegar Sæunn bjó á Akureyri
fyrir nokkrum árum, fékk hún
„bakteríuna" fyrir því að safna.
Hún byrjaði á að safna servíett-
urn, steinum, barmmerkjum,
spilum o.fl. Var hún komin með
myndarlegt safn, sérstaklega af
barmmerkjunum og servíettum.
Barmmerkin hefur hún gefið til
annara safnara og servíettusafnið
brann inni í eldi. Fyrir fimnt
árum flutti hún til Sauðárkróks
en hefur komist í lítil kynni við
safnara þar. Það var svo fyrir
nokkru sem hlutirnir fóru að
ganga, eftir að hún hafði hringt í
„Þarfaþingið" á Rás 2 og „aug-
lýst“ sig. Símhringingum linnti
ekki, Sæunn komst í sambönd
við marga safnara, milli 20 og 30,
og er komin á fullt í spilasöfnun-
ina. Frá því hún hringdi hefur
henni hlotnast hátt í 1000 spila-
tegundir. Það var ekki úr vegi að
spyrja Sæunni fyrst að því hvað
hefði fengið hana til að byrja á
því að safna.
Er með söfnunaráráttu
„Ég er með söfnunaráráttu, ég
safna eins miklu að mér og ég
get. Á Akureyri voru margir
að safna spilum. Það var eigin-
lega litli bróðir minn sem byrjaði
á þessu, í skólanum hjá honum
voru allir í spilasöfnun. Síðan
gafst bróðir minn upp og ég tók
við safninu hjá honum. Annars
hefur þetta verið svona hjá mér,
ég hef safnað öllu sem ég hef get-
að komist í,“ sagði Sæunn, og
bætti því við að lítill sonur
hennar, ekki orðinn 5 ára, væri
þegar farinn að safna frímerkjum
og fleiru. „Þetta virðist vera
eitthvað í blóðinu," sagði Sæunn.
Þarfaþingið hleypti öllu
á fullt
- Hvað er gaman við það að
safna?
„Það er bara að fylla eitthvað
upp sem mann vantar í lífinu.
Maður kemst í samband við aðra,
ég hef kynnst mörgum í gegnum
þessa söfnun sem hafa sömu
áhugamál. Það er gaman að
dunda við þetta, sjá eitthvað
nýtt. Ég má ekkert fara öðruvísi
en að sjá einhver sérkennileg
spil, sem ég verð að kaupa. Þetta
er ekki svo kostnaðarsamt, það
er mikið um býtti hjá söfnurum.
Þó ég kaupi einn stokk þá fæ ég
hann til baka.“
- Þekkirðu marga safnara út
um allt land?
„Já, já. Ég var fyrst mest með
söfnunina á Akureyri. En eftir að
ég hringdi í „Þarfaþipgið" þá hef
ég komist í kynni við safnara alls
staðar, s.s. frá Húsavík, Höfn í
Hornafirði, Reykjavík, Ólafs-
firði, Blönduósi, Akureyri og
víðar. Ég hef komist í samband
við safnara á öllum aldri, allt frá
ungum krökkum upp í vel full-
orðið fólk. Sumir hafa safnað í
fjöldamörg ár, alveg frá því þeir
voru börn.
Kona á Dalvík á 14
þúsund spilategundir!
Safnarar hafa ekki með sér nein
samtök og sagði Sæunn að þörfin
fyrir slíkt væri kannski ekki svo
mikil, en sagðist alls ekki vilja
koma í veg fyrir að samtök af því
taginu yrðu stofnuð. Sæunn vill
meina að þátturinn „Þarfaþing-
ið“ á Rás 2 hafi breytt miklu fyrir
safnara, þeir geti orðið víðtækari
í þessari áráttu sinni. Margir
safnarar hafa náð samböndum út
í lönd, en Sæunn sagðist ekki
vera komin svo langt. Sæunn veit
um fullorðna konu á Dalvík,
Birna heitir hún og hefur safnað
spilum frá unglingsaldri og er
komin með um 14 þúsund spila-
tegundir! Sæunn sagðist halda að
það væri mesta safn hér á landi,
og þó víðar væri leitað. Hún hef-
ur lengi ætlað sér að heimsækja
Birnu, því spil eru víst ekki það
eina sem hún safnar.
- Tekur það langan tíma að
safna að sér hlutum eins og t.d.
spilum?
„Ég veit Jíað ekki, en ég hef
verið fljót. I það heila er það um
eitt og hálft ár sem ég hef gefið
mig í þetta að ráði. Þetta fer auð-
vitað eftir því hvað þú kemst í
samband við marga, sumir eru
lengi og aðrir fljótir.“
Söfnun er ekki tímafrek
tómstundaiðja
- Þarftu að halda einhverja skrá
yfir spilin?
„Nei, það hefur ekki verið nein
skriffinnska, ég er alveg farin að
þekkja hvaða spil ég á og hver
ekki. Ég man nokkurn veginn
hvar og hvenær ég fékk hverja
spilategund fyrir sig.“
Sæunn stefnir ekki á neinn sér-
stakan fjölda af spilum, hún seg-
ist ætla að safna eins miklu og
hún mögulega getur. Hún
skreppur fljótlega til Þýskalands
Slys gera ekki<£>
■ $C r m r m ÖKUM EINS OG ME
boo a undan ser! «r-
og þar býst hún örugglega við að
bæta við safnið. Sæunn mælir
með því að fólk eyði tómstund-
um sínum í að safna, það sé ekki
svo tímafrek iðja. Hún segist
geta ráðið tímanum alveg sjálf,
sleppt því að safna í nokkra mán-
uði þess vegna, og tekið svo rassíu
á ný. „Þetta hentar ágætlega fyrir
heimavinnandi húsmóður eins og
mig, fullorðið fólk sem hefur lítið
við að vera, og fyrir unga krakka.
Fólk kynnist með þessu og viss
stemmning skapast. Það er hægt
að safna öllu milli himins og
jarðar, það er bara að nota hug-
myndaflugið,“ sagði Sæunn
Guðmundsdóttir, safnari á Sauð-
árkróki, að lokum í stuttu spjalli
við Dag. -bjb
Sæunn með hluta af spilasafni sínu, sem hún hefur komið fyrir í venjulegum
myndaalbúmum. Mynd: -bjb
Við komum í heimsókn
Hótel KEA
17. september
Kl. 14:00-17:30
Spnte
Spnte
AÐAJÁ Ðtt f Jf
miMAKF Ftj
Lágmúla 7, sími 84477
Við komum fljiigandi
Við lyftum okkur til flugs frá
Reykjavíkurflugvelli og hefj-
um sérstakt kynningarátak
utan borgar á starfseminni
og ferðum þeim sem við
höfum að bjóða.
Við komum á Dornier-vélinni
okkar sem jafnframt verður
til sýnis að utan og innan á
meðan á hverri heimsókn
stendur.
Velraráætlun okkar
Við ætlum að kynna fyrir-
tækið, vetraráætlun okkar,
borgirnar sem við fljúgum til
og ferðamöguleika út frá
þeim. Auk sölufólks verða á
staðnum tveir flugmenn og
ein flugfreyja sem ætla að
kynna störf sín.
Frúin (Hamborg
Sú ágæta frú verður með í
för og mun hefja upp raust
sína og syngja fyrir við-
stadda og eflaust gera
eitthvað fleira óvænt og
skemmtilegt. Henni til að-
stoðar verður stúlka afyngri
kynslóðinni.
Ferðatilboð - ferðagetraun
Við gerum ykkur Ifka sér-
stakt ferðatilboð sem gildir
aðeins þann dag sem kynn-
ingin stendur. Þar að auki
efnum við einnig til ferða-
getraunar á öllum sjö
stöðunum með farmiðum til
Amsterdam í vinning.
„Safna öllu
sem ég kemst í“