Dagur - 19.09.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 19. september 1989 - DAGUR - 5
Þeir virðast hálf niðurdregnir, en sennilega er
bara verið að fela tárin. Mynd: kl
Gamlar kempur fagna meisturunum á Akureyrarvelli
þeir Haraldur M. Sigurðsson og Tómas Steingrímsson
fyrsti formaður KA. Mynd: kl
Á efri myndinni eru þeir kampakátir formaðurinn, fyrirliðinn og bæjarstjórinn í hófi bæjarstjórnar. Bikarana þrjá
hefur KÁ unnið í sumar, Akureyrarmeistarar, íslandsmeistarar og Taktik-meistarar. Á neðri myndinni má sjá
mannfjöldann sem beið spenntur á flugvellinum. Myndir: vg og ap
Einhver hafði á orði að aldrei fyrr hafi önnur eins stemmning ríkt á Akureyri enda um 800-1000 manns saman komn-
ir til að hylla íslandsmeistarana. Mynd: kl
Bridgefélag Akureyrar
Startm
Vetrarstarfið hefst í kvöld, þriðju-
dagskvöld, með tvímennings-
keppni, eitt kvöld.
Allir velkomnir.
BRIDGEFÉLAG AKUREYRAR.
FÉLAG MÁLMIÐNAÐARMANNA
\KUREYRI
Félag málmiðnaðar-
manna Akureyri
heldur félagsfund þriðjudaginn 19. sept. 1989 kl.
20.00 í Alþýðuhúsinu, 4. hæð.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosning fulltrúa á 21. þing Alþýðusambands
Norðurlands.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Viðvörun til telex-
og telefaxnotenda
Póst- og símamálastofnunin vill af gefnu
tilefni taka fram:
Telex- og telefaxnotendur sem fengið hafa reikn-
inga fyrir skráningu í telex- og telefaxskrám frá
erlendum útgáfufyrirtækjum sem ekki tengjast
símastjórnum eru varaðir við að greiða slíka
reikninga nema þeir hafi óskað eða óski sérstak-
lega eftir skráningu.
Póst- og símamálastofnunin tekur einungis að
sér að panta síma-, telex- og telefaxskrár frá
símastjórnum og sendir notendum reikning þar að
lútandi, en aðrar útgáfur síma-, telex- og telefax-
skráa eru stofnuninni óviðkomandi.
Póst- og símamálastjórnin.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftirfar-
andi:
RARIK-89005 33 kV Switchgear Cubicles „RIMA-
KOT“
Opnunardagur: Þriðjudagur 31. október 1989 kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun-
artíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
þriðjudegi 19. september 1989 og kosta kr. 300,00
hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118 105 Reykjavík.