Dagur - 19.09.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 19. september 1989
ií:». •>:sw? -
„Ólýsauleg tilfimimg“
- sagði Örn Viðar Arnarson sem skoraði fyrra mark KA
meistaratitilinn.
Örn er nú ekki ókunnugur
markaskorun því hann lék áður
með Reyni á Árskógsströnd og
var helsti markaskorari Reynis-
liðsins. Hann er 23 ára og gekk til
liðs við KA-menn í fyrra. En
hvernig tilfinning var það að
koma að nýju inn í liðið og skora
þetta ntikilvæga mark?
„Þetta var ólýsanleg tilfinning.
Boltinn kom þarna inn á mig og
ég hugsaði um það eitt að skjóta
niðri á Þorstein og skora þannig
og það tókst,“ sagði Örn Viðar
eftir leikinn. En hver er munur-
inn á því að leika í 3. og svo 1.
deild. „Það eru tveir ólíkir heim-
ar,“ sagði Örn. Það er miklu
mciri hraði, harka og samkeppni
I. deildinni. Það er ekkert gaman
að sitja oft á bekknum, en það
geta bara 11 leikmenn spilað í
einu og maður verður að sætta sig
við það. En á svona degi gleymist
það allt saman,“ sagði Örn Viðar
og lyfti íslandsmeistarabikarnum.
Örn Viðar Arnarson hefur
þurft að sætta sig við að sitja á
varamannabekk KA í mest allt
sumar, en hann kom inn í liðið
í leiknum gegn ÍBK í stað Þor-
valdar Örlygssonar sem var í
leikbanni. Örn Viðar gerði sér
þá lítið fyrir og skoraði fyrra
mark KA og má segja að það
mark hafí fært KA íslands-
Örn Viðar Arnarson skoraði fyrra mark KA gegn ÍBK.
Mynd: Jakofc
íþróttir
Ormarr í lögreglu-
fylgd á flugvöllimi
- gat ekki klárað leikinn
Ormarr Örlygsson KA-maður
fór út af þegar tæpar fímmtán
mínútur voru til leiksloka og
hljóp þá sem fætur toguðu til
Ormarr Örlygsson íslandsmeistari
tvö ár í röð.
búningsherbergja. Þar snarað-
ist hann í sturtu og skaust að
því loknu upp í lögreglubíl
með fullum Ijósum sem brun-
aði í burt frá íþróttpvellinum.
Hvað var að gerast? Hafði
varnarmaðurinn knái brotið
eitthvað af sér eða þoldi hann
ekki pressuna og liafði verið
hringt í lögregluna til þess að
láta fjarlæga hann? Nei, stað-
reyndin var sú að Ormarr var á
leið til Frakklands á gærusýn-
ingu og flugvélin átti að fara í
loftið kl. 16.00.
Málið leystist farsællega því
þegar var búið að fara með
farangur Ormars upp á tlugvöll
og Ormarr náði að stökkva inn í
vélina áður en landgöngubrúin var
færð frá vélinni. Á hlaupunum
heyrði hann tilkynnt að KÁ hefði
orðið fslandsmeistari og gat því
varpað öndinni léttar í vélinni á
leið til Frakklands.
Þess má geta að Ormarr varð
íslandsmeistari með Fram í fyrra
og það eru ekki margir leikmenn
sem hafa orðið Íslandsmeistarar
tvö ár í röð, með sitt hvoru lið-
inu!
Hætta á toppnum
- segir Jón Kristjánsson, íslandsmeistari
í knattspyrnu og handknattleik árið 1989
Jón Kristjánsson vann það
afrek á þessu ári að verða bæði
íslándsmeistari í handknattlcik
með Val og Islandsmeistari í
knattspyrnu með KA. En hvor
titilinn var nú ánægjulegri?
„Það var gaman að vinna í
handboltanum, en ég verð að
segja að knattspyrnutitillinn með
KA er ánægjulegri. KA er jú allt-
af mitt gamla félag,“ sagði Jón
kampakátur eftir að titillinn var í
höfn á laugardaginn.
„Ég var að dekka mann og sá
þá að boltinn fór til okkar. Ég
tók þá á rás og þegar boltinn kom
til mín gerði ég mér grein fyrir að
ég var á auðum sjó, þrátt fyrir að
vera á eigin vallarhelmingi,"
sagði Jón þegar hann var spurður
um aðdragandann að síðara
marki KA.
Það þarf ekki að segja neinum
íþróttaáhugamanni frá því að
hann gerði ekki nein mistök þrátt
fyrir að þurfa að hlaupa með
boltann unt 50 metra vegalengd.
Hann skoraði örugglega og gull-
tryggði þar með sigur KA í leikn-
um.
Jón segir að öllum líkindum
hafi hann nú leikið sinn síðasta
leik með KA í knattspyrnunni.
„Það er varla hægt að vera í
tveimur íþróttagreinum ef maður
ætlar að ná árangri í annari
hvorri. Er ekki líka sagt að hætta
eigi á toppnum," sagði Jón um
leið og Érlingur rétti honum
íslandsmeistarabikarinn.
Örn Viðar ér ekki eini að-
komumaðurinn í liði KA. Hauk-
ur Bragason markvörður og
Gauti Laxdal eru báðir uppaldir
Framarar, en hafa leikið með
KA-liðinu undanfarin ár. Antony
Karl Gregory gekk til liðs við KA
í fyrra frá Val og í vor kom félagi
hans Jón Grétar Jónsson hingað
norður. Allir þessir leikmenn
hafa fallið frábærlega inn í gamla
KA-kjarnann; Þorvald, Erling,
Bjarna og Halldór, sem hefur
verið saman að mestu óbreyttur
síðan 1984. Síðan koma Ormarr
og Jón Kristjánsson inn aftur og
þessi blanda hefur reynst sigursæl
á þessu keppnistímabili.
KA-liðið sér nú líklega á eftir
Þorvaldi Örlygssyni fyrir næsta
keppnistímabil, en eins og flest-
um er kunnugt, hefur hann gert
samning við enska stórliðið Nott-
ingham Forest og fer hann til
Englands í næstu viku.
„Farðu frá, ég ætla að skora,“ gæti Jón Kristjánsson KA-maður verið að segja við
Keflvíkinginn Ingvar Guðmundsson. Jón skoraði síðan annað mark KA.
Mynd: Jakob
Það var leiðindaveður í Keflavík er
leikurinn fór fram, hávaðarok og
völlurinn rennblautur, en það var ékk-
ert rok í hjörtum KA-manna. Þeirléku
sinn bolta af skynsemi og virtust ekki
láta það hafa áhrif á sig að íslands-
meistaratitillinn væri í augsýn.
Leikurinn var í jafnvægi í fyrri hálf-
leik en KA-menn voru þó mun spræk-
ari í öllum sóknaraðgerðum sínum.
Það var strax á 10. mínútu að Árskógs-
strendingurinn í liði KA, Örn Viðar
Arnarson, fékk knöttinn eftir góða
sóknaruppbyggingu sinna manna og
renndi knettinum örugglega í netið hjá
Þorsteini Bjarnasyni.
Kelfvíkingar reyndu að klóra í bakk-
ann en komust lítið sem ekkert gegn
hinni sterku vörn norðanmanna. Þeir
reyndu nokkrar háar sendingar inn í
teiginn en þar var Haukur Bragason
sem kóngur í ríki sínu og hirti alla
bolta.
Síðari hálfleikur þróaðist svipað og
sá fyrri. KA-menn voru meira með
boltann en Kelfvíkingar börðust ágæt-
lega án þess þó að ná að skapa sér nein
sérstök færi.
Um miðjan hálfleikinn virtust þó
gestirnir missa taktinn um tíma og
sóttu þá heimamenn af meiri móð. Þá
átti Kjartan Einarsson m.a. skot í slá
KA-liðsins og Halldór Halldórsson
bjargaði á marklínu á snilldarlegan
hátt nokkru síðar.
En Keflvíkingar gleymdu sér í sókn-
araðgerðum sínum og allt í einu var
Kampakátir KA-strákar í Keflavík eftir aö íslandsmeistaratitillinn var í höfn ásamt Gnðjói
syni formanni knattspyrnudeildar og Sigmundi Þórissyni formanni KA.
TITILLl
„Það var tími til kominn að heppnin
væri með okkur,“ sagði Guðjón
Þórðarson, kampakátur þjáifari
KA-manna, eftir að piltarnir hans
höfðu tryggt sér Islandsmeistaratitil-
inn með því að leggja ÍBK að velli
2:0 í Keflavík á laugardaginn. Með
heppni átti hann ekki við sigurinn á
ÍBK, því sá sigur var fyllilega verð-
skuldaður, heldur að Fylkir hafði
lagt FH að velli og þar með fór
íslandsmeistaratitillinn norður um
heiðar í fyrsta skipti.