Dagur - 19.09.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 19.09.1989, Blaðsíða 16
Óvíst um upphaf loðnuvertíðar - Krossanesverksmiðjan löngu tilbúin Útgerðarmenn og forstöðu- menn loðnuverksmiðja hafa undanfarið búið sig undir loðnuvertíðina, sem senn fer í að taka á móti hönd. Rcyndar ríkir meiri óvissa um loðnuveiðarnar nú en á sama tíma í fyrra, því ekk- ert er vitað hvar loðnan heldur Lögreglan: Meistara- helgin ákaflega róleg Nýliðin helgi var með eindæm- um róleg á Akureyri að sögn lögreglunnar þar og fóru t.d. öll hátíðahöld í kringum íslandsmeistara KA mjög vel fram. „Við urðum ákaflega lítið varir við þetta, nema auðvitað úti á flugvelli. Strákarnir komu í Sjall- ann og voru ákaflega prúðir og stilltir þar. Okkur þóttu hátíðar- höldin fara mjög vel fram,“ sagði varðstjóri á Akureyri í gær. VG Egilsstaðir: slökkvistöðvar í augsýn Akveðið hefur verið að reisa áhaldastöð og slökkvistöð á Egilsstöðum. „Þetta hefur ver- ið gamall draumur, en þetta mál hefur verið í gangi Iengi,“ sagði Sigurður Símonarson bæjarstjóri á Egilsstöðum. I upphafi hafði verið búið að ákveða að byggja áhaldahús af ákveðinni stærð og kom þá fram vilji frá Bunavörnum á Héraði um að vera í samfloti með bygg- ingu slökkvistöðvar í huga. Að sögn Sigurðar er lítill vandi að bæta við einingum fyrir slökkvi- stöð í húsinu og hefur nú verið tekin endanleg ákvörðun um þetta. Brunavarnir á Héraði sjá um brunavarnir allt frá Jökuldal og inn á Skriðdal, en aðstaða þcirra nú er mjög léleg og ófullkomin. „Þeir hafa lítið getað endurnýjað tækjakost af þessum sökum, því ekki hefur verið hægt að geyma hann. Pað er því bráðnauðsyn- legt að ljúka þessu sem fyrst,“ sagði Sigurður. VG sig. Grænlendingar leigðu fyrir nokkru færeyskt skip til loðnu- leitar, en ekki er vitað til að nein loðna hafi fundist ennþá í leið- angrinum. Geir Zoéga, forstjóri Krossa- nesverksmiðjunnar, segir að menn séu löngu tilbúnir til að taka á móti loðnu til bræðslu. Fyrsta loðnan kom til Krossaness með færeyskum skipum fyrir nokkru, en ekkert hefur borist eftir það. „Staðan í dag er sú að menn eru ekki hrifnir af að flengjast um allan sjó til að leita loðnunnar. Hins vegar eru nokkur af þeim skipum sem við teljum að muni landa hérna að gera sig klár fyrir loðnuvertíðina," sagði Geir. Örninn KE 13 er hættur á rækjuveiðum, en ekki er vitað nánar hvenær hann fer út. Súlan EA 300 er að koma frá Englandi, þar sem hún var til viðgerða. Skipið fer væntanlega á veiðar fljótlega upp úr næstu mánaða- mótum. „I fyrra vissu menn að loðnan væri Grænlandsmegin við mið- línu, þar sem færeysk og norsk skip voru að veiða hana. Núna eru þeir ekki að veiða neitt og einu fréttirnar sem maður fær eru að loðnan liggi djúpt við botninn, á rækjuslóð, því þeir sem eru á rækjuveiðum verða mikið varir við loðnuna. í því ástandi er hún ekki veiðanleg í nót. En þessi tími, rétt fyrir upphaf loðnuver- tíðar, er alltaf versti tíminn fyrir verksmiðjurnar,“ sagði Geir. Ungir og gamlir skákmenn gripu fegins hendi tækifæri til að tefla við skákmann eins og Bent Larsen. Mynd: kl Fjöltefli á sal Gagnfræðaskólans: Akureyringar velgdu Larsen undir uggum - þrír sigruðu hann og sex náðu jafntefli Danski stórmeistarinn Bent Larsen tefldi tjöltefli á sal Gagnfræðaskóla Akureyrar síðastliðinn sunnudag. Teflt var á 33 borðum og voru þátt- takendur á öllum aldri, sá yngsti 8 ára. Larsen hafði 27 vinninga upp úr krafsinu. Hann sigraði í 24 skákum, 6 lyktaði með jafntefli og 3 skákmenn náðu þeim ágæta árangri að sigra stórmeistar- ann. Pað voru þrír góðkunnir félagar úr Skákfélagi Akureyrar sem lögðu Bent Larsen að velli; þeir Gylfi Þórhallsson, Jakob Kristinsson og Jón Björgvins- son. Þeir sem gerðu jafntefli við kappann voru Jóhann Snorra- son, Ólafur Kristjánsson, Rún- ar Berg, Stefán Jónsson, Svein- björn Sigurðsson og Þór Valtýs- son. Þetta verður að teljast góður árangur hjá Akureyringum. Þarna sáust margar skemmtileg- ar og spennandi skákir og vildu menn meina að Larsen hefði verið hætt kominn í fleiri skák- um en náð að bjarga sér fyrir horn. Að sögn Páls Hlöðvessonar, formanns Skákfélags Akureyr- ar, tókst fjölteflið vel og var Larsen ánægður með komuna til Akureyrar. Páll sagðist þó hafa viljað sjá fleiri þátttakend- ur, en hægt var að tefla á alls 50 borðum þannig að fleiri hefðu auðveldlega getað komist að. Páll ávarpaði Larsen fyrir mótið og færði honum gjafir frá Skákfélagi Akureyrar og síðan kynnti Albert Sigurðsson skákdómari reglurnar. Larsen samþykkti að stýra hvítu og svörtu mönnunum til skiptis á borðunum, en stundum eru þeir sem tefla fjöltefli með hvítt á öllum borðum. SS Silfurstjarnan hf. í Öxarfirði: Töluvert tjón varð er seiði drápust í eldisstöðinni ólag á símakerfinu lamaði viðvörunarkerfið Nokkur þúsund seiði drápust í eldisstöð Silfurstjörnunnar hf. í Öxarfírði aðfaranótt laugar- dags og telur Björn Benedikts- son, stjórnarformaður fyrir- tækisins, að fjárhagslegt tjón sé eitthvað á aðra milljón króna. Þetta voru 300 gramma seiði en einnig voru stærri seiði í stöðinni og sagði Björn að hér hefði getað orðið mun meira tjón, en á hinn bóginn hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta óhapp ef símakerfíð hefði virkað. Uppbygging fiskeldisstöðvar Silfurstjörnunnar í Sandfellshaga er að komast á lokastig. Þar er beitt nýstárlegri sjódælingu úr sandlögum og verið er að þróa Ókeypis línubeitmg í Ólafsfírði Sú nýbreytni hefur verið tekin upp í hraðfrystihúsinu í Ólafs- firöi að bátar og trillur, sem landa hjá húsinu, fá tilbúnar línur með beitu, bátunum að kostnaðarlausu. Hér mun vera um tilraun að ræða í skamman tíma. Útgerðir bátanna leggja línur inn hjá frystihúsinu og fá þær síðan beitt- ar og tilbúnar aftur, án nokkurra útgjalda. Hér er um verulega kjarabót að ræða, því alkunna er að aukinn kostnaður fylgir því fyrir báta að hafa beitningafólk í vinnu. Erfitt hefur verið að ráða beitningafólk á staðnum undan- farið. EHB þessa aðferð. Hún er háð sjávar- föllum og fleiri atriðum og til að koma í veg fyrir óhapp er við- vörunarkerfi í stöðinni, en að þessu sinni kom það ekki að full- um notum og seiðin sem drápust fengu ekki nóg vatn. Þetta er fyrsta óhappið sem Silfurstjarnan hefur orðið fyrir. „Við erum með öryggiskerfi sem varar við ef vatnsrennsli minnkar, hitabreytingum, raf- magnsleysi og fleiri atriðum. Þetta hefur komið að góðum not- um og sannað gildi sitt. Fyrst fara blikkljós og flauta af stað í stöð- inni og síðan hringir róbófónn í þrjú ákveðin númer þangað til einhver svarar. En síminn sem kerfið er tengt við var alls ekki virkur þessa nótt og hann var dauður þangað til seinnipartinn á sunnudag,“ sagði Björn. Hann sagði að svo óheppilega hefði viljað til að maður sem að öllu jöfnu sefur í stöðinni hefði ekki verið við þessa nótt og því hefði enginn heyrt í viðvörunar- flautu stöðvarinnar. Hún fór í gang en það var símakerfið sem brást og sagði Björn að það hefði verið ólag á símanum í Öxarfirði síðastliðin þrjú ár, öllum til ama og nú til tjóns. Alls voru um 60 þúsund seiði í stöðinni en aðeins hluti af þeim sem drapst því flest fengu nægi- legt súrefni. Björn sagði að trygg- ingar myndu væntanlega ekki bæta þetta tjón en hann vonaði hins vegar að Póstur og sími myndi sjá sér fært að lagfæra langvarandi truflanir á símakerf- inu, truflanir sem sumir vilja rekja til rafmagnsgirðingar í Presthólahreppi. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.