Dagur - 19.09.1989, Qupperneq 7
£88? tðdfQðíUðð ,0! *!líöl5ÍliliíöÍ\Q — J-IUOAC1 — 0
Þriðjudagur 19. september 1989 - DAGUR - 7
Islandsmótið í knattspyrnu:
Þór áfram í 1. deild
„Ég var mjög ánægöur með
strákana í þessum leik. Þeir
léku af skynsemi og baráttu-
vilja og áttu sigurinn fyllilega
skilið. Ég vil senda kveðju til
allra Ieikmannanna fyrir
skemmtilegt tímabil og segi
fyrst að við náðum að halda
okkur upp núna þá er framtíð-
in björt hjá lelaginu með alla
þessa ungu og efnilegu leik-
menn innanborðs,“ sagði Milan
Duricic hinn júgóslavneski
þjálfari Þórs eftir að lið hans
hafði lagt ÍA að velli 2:1 á
Akureyrarvellinum á laugar-
daginn og þar með tryggt sér
áframhaldandi sæti í 1. deild.
Það var greinilegt frá fyrstu
mínútu að Þórsarar ætluðu sér að
selja sig dýrt í þessum leik. Þeir
léku með vindinn í bakið og strax
á fyrstu mínútunum áttu heima-
piltarnir ágæt marktækifæri.
Kristján Kristjánsson, Luca
Kostic og Árni Þór Árnason áttu
allir skot á markið en besti maður
ÍA í ieiknum, Ólafur Gottskálks-
son markvörður, varði allt sem á
hans yfirráðasvæði kom.
Skagapiltarnir komust lítið
áleiðiðs gegn sterkri vörn Þórsara
og í þau fáu skipti sem boltinn
komst alla leið að markinu átti
Baldvin Guðmundsson markvörð-
ur í litlum erfiðleikum að hand-
sama knöttinn.
Veðrið var ekki upp á marga
fiska én Þórsstrákarnir létu það
ekki á sig fá og sóttu stíft að
marki ÍA. Þeir uppskáru laun
erfiðis síns er Árni Þór slapp inn
fyrir vörnina rétt fyrir leikhlé og
Ólafur markvörður felldi hann
þannig að vítaspyrna var dæmd.
En því miður var skot Júlíusar
Tryggvasonar ekki nógu hnitmið-
að og Ólafur varði mjög vel.
Þannig að staðan var 0:0 er geng-
ið var til búningsherbergja.
Nokkuð fór um hina rúmlega
Lokastaðan
í 1. deild
ÍBK-KA 0:2
Þór-ÍA 2:1
FH-Fylkir 1:2
Valur-KR 1:0
Fram-Víkingur 1:0
KA 18 9-7- 2 29:15 34
FH 18 9-4- 4 26:16 32
Fram 18 10-2- 6 22:16 32
KR 18 8-5- 5 28:22 29
Valur 18 8-4- 6 21:15 28
ÍA 18 8-2- 8 19:20 26
Þór 18 4-6- 8 20:30 18
Víkingur 18 4-5- 9 24:31 17
Fylkir 18 5-2-1118:31 17
ÍBK 18 3-6- 9 18:29 15
Markahæstir:
Hörður Magnússon FH 12 Kjartan Einarsson ÍBK 9
Guðmundur Steinsson Fram 9 Pétur Pétursson KR 9 Antony Karl Gregory KA 8
- sigraði IA 2:1 í ágætum leik á laugardaginn
300 áhorfendur sem mættu á leik-
inn, bæði vegna kulda, og svo að
Þórsarar léku gegn sterkum vindi
í síðari hálfleik. En þeirra menn
sýndu það og sönnuðu að þeir
eiga fullt erindi í 1. deildinni.
Sævar Árnason skoraði fyrsta
mark leiksins eftir nokkurra mín-
útna leik í síðari hálfleik með fal-
legri spyrnu aftur fyrir sig eftir að
Þorsteinn Jónsson hafði nikkað
boltanum til hans eftir horn-
spyrnu Ólafs Þorbergssonar.
Skagamenn komu nú meira inn
í leikinn og Þórsarar sluppu með
skrekkinn er Sigurður B. Jónsson
renndi knettinum fram hjá í
dauðafæri. En inn á rnilli áttu
Þórsarar ágæt upphlaup og úr
einu þeirra skaut Sævar Árnason
rétt frant hjá.
Síðustu fimmtán mínútur
leiksins þyngdist sókn Skaga-
manna til muna og var spennan
nánast óbærileg fyrir áhorfendur
því vitað var að Fylkismenn voru
yfir gegn FH þannig að jafntefli
hjá Þór þýddi fall í 2 deild.
'Baldvin Guðmundsson hafði þá í
nógu að snúast og tvívegis varði
hann frábærlega, í fyrra skiptið
frá Guðbirni Tryggvasyni en í
það síðara frá Stefáni Viðarssyni.
En IA-strákarnir gleymdu sér í
sókninni og fimm mínútum fyrir
leikslok fékk Bojan Tanevski,
sem komið hafði inn á sem vara-
maður fyrir Kristján Kristjáns-
son, góða stungusendingu frá
Sævari Árnasyni og skoraði
örugglega fram hjá Ólafi í mark-
inu.
Þar með tryggði Tanevski Þór
áframhaldandi sæti í 1. deild að
ári. Reyndar skoraði Sigursteinn
Gíslason fyrir ÍA rétt fyrir leiks-
lok 2:1, en sigur Þórs var stað-
reynd og fagnaðarlæti áhorfenda
og leikmanna voru mikil.
Það er erfitt að gera upp á milli
einstakra leikmanna Þórs að
þessu sinni; Árni Þór Árnason
átti frábæran leik í fyrri hálfleik
og réðu Skagamenn ekkert við
hraða hans og leikni. Sævar
Árnason var drjúgur og góð
frammistaða hans í síðari hálfleik
skipti sköpum fyrir liðið. Nói
Björnsson var geysilega sterkur í
vörninni og Baldvin var öruggur í
markinu. Það bar e.t.v. ekki eins
mikið á Kostic í þessum leik eins
og oft áður en hann batt miðjuna
vel saman og vann vel með varn-
armönnunum. En eins og áður
sagði átti allt Þórsliðið góðan dag
og var þessi sigur fyllilega verð-
skuldaður.
Dómari var Guðmundur S.
Maríasson og dæmdi hann ágæt-
lega. Hann sýndi fjórum leik-
mönnum gult spjald; Hlyni Birg-
issyni og Birgi Karlssyni hjá Þór
og Sigursteini Gísiasyni og Alex-
ander Högnasyni frá ÍA.
Liö Þórs: Baldvin Guðmundsson.
Luca Kostic, Nói Björnsson. Birgir
Karlsson, Ólafur Þorbergsson (Valdimar
I’álsson 75. mín.), Kristján Kristjánsson
(Bojan Tanevski 60. mín.), Hlynur Birg-
isson, Júlíus Tryggvason. Sævar Árna-
son, Árni Þór Árnason. Þorsteinn
Jónssoh.
Liö ÍA: Ólal úr Gottskálksson. Guö-
björn Tryggvason. Siguröur B. Jónsson
(Örn Guðmundsson), Alexander Högna-
son, Hcimir Guðmundsson, Aöalstcinn
Víglundsson. Karl Þórðarson. Sigur-
steinn Gíslason, Haraldur Ingólfsson.
Bjarki Pélursson (Bjarki Gunnlaugsson),
Stefán Viðarsson.
Sævar Árnason kom mikið við sögu í lciknum gegn í A. Hann skoraði lýrra mark Þórs og átti sendingu á Tanevski,
sem Júgóslavinn skoraði síðan úr. Tanevski sést í bakgrunninum. Mynd: kl
Kristján hættur
með Þór
- hefur leikið 116 leiki í 1. deild
inni. Síðan gekk hann til liðs við
Þórsara árið 1984 og hefur ein-
ungis misst af tveimur leikjum á
þessum fimm árum og það var í
bæði skiptin vegna meiðsla.
Kristján er 29 ára og hefur
leikið 116 leiki í 1. deild og skor-
að 27 mörk. Einungis Nói Björns-
son og Jónas Róbertsson hafa
leikið fleiri leiki fyrir Þór og
aðeins Halldór Áskelsson skorað
fleiri mörk fyrir félagið. Nói hef-
ur nú leikið 147 leiki og sýndi það
og sannaði í sumar að hann hefur
sjaldan eða aldrei verið sterkari.
Jónas Róbertsson lék 122 leiki
fyrir Þór. Halldór Áskelsson
hafði leikið 105 leiki fyrir félagið
og skorað 31 mark.
Kristján Kristjánsson lék sinn síðasta leik með Þór í 1. deild gcgn í A.
Mynd: Kl.
Kristján Kristjánsson, knatt-
spyrnumaðurinn knái úr Þór,
hefur ákveðið að hætta að
leika með 1. deildarliði Þórs.
„Þetta er búinn að vera góður
tími en ég tel að mínu hlut-
verki sé nú lokið. Það eru að
koma upp sterkir leikmenn og
framtíðin er svo sannarlega
björt hjá félaginu,“ sagði
Kristján.
Kristján er Hafnfirðingur að
ætt og uppruna og lék með Hauk-
um í gegnum alla yngri flokka og
einnig með meistaraflokki Hauka
í 1. deild árið 1979. Þaðan lá leið-
in til Húsavíkur og lék hann með
Völsungum í nokkur ár í 2. deild-