Dagur - 19.09.1989, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 19. september 1989
Verkfræðingafélag íslands:
Árbók 1988 komin út
Fyrsta Árbók Verkfræðingafé-
lags íslands lítur nú dagsins ljós.
Gert er ráð fyrir að Árbókin
taki við því hlutverki sem Tíma-
rit Verkfræðingafélags íslands
hefur gegnt allt frá stofnun
félagsins 1912. Auk þess að vera
vettvangur faglegrar umræðu
verður í Árbókinni birtur Tækni-
annáll, sem er annáll tækni og
verklegra framkvæmda ársins
sem hún nær til. í því sambandi
má minna á að fram á fjórða ára-
tuginn birtist í Tímariti VFÍ
árlega yfirlit yfir verklegar fram-
kvæmdir á íslandi á undan-
gengnu ári. Með Tækniannálnum
fá lesendur Árbókarinnar von-
andi góða yfirsýn yfir þróun og
framfarir á sviði tækni, vísinda og
verklegra frantkvæmda. Jafn-
framt því sem hann varðveitir
ýmsan fróðleik sem ella er hætt
við að færi í glatkistuna. Á eftir
annálnum er kynning á starfsemi
ýmissa fyrirtækja og stofnana á
árinu 1988. Þessir aðilar styrktu
einnig útgáfu bókarinnar. Loks
eru tíu tækni- og vísindagreinar
um fjölbreytileg efni.
Áhugamenn urn tækni og
framfarir eiga að geta flett upp í
Árbókum VFÍ í framtíðinni sér
til gagns og ánægju.
Áhugamenn geta fengið bók-
ina keypta á skrifstofu Verk-
fræðingafélags íslands að Engja-
teigi 9, gegnt Hótel Esju, sími
688505. Skrifstofan er opin kl.
10-12 og 14-16. Verð bókarinnar
er kr. 1.900,-
Nánari upplýsingar veitir rit-
stjóri Árbókar VFÍ, Birgir
Jónsson, í síma 83600.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Glerárgata 34, vörug. á bakl. A-hl.,
þingl. eigandi Tryggvi Rúnar Guð-
jónsson, föstud. 22. sept. kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Gunnar
Sólnes hrl.
Gránufélagsgata 35, Akureyri þingl.
eigandi Ingimar Harðarson ofl„
föstud. 22 sept. '89 kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Skúli J. Pálmason hrl., Veðdeild
Landsbanka íslands og Ólafur Birg-
ir Árnason hdl.
íbúðarhúsið Sílastöðum, Glæsibæ-
jarhr. þingl. eigandi Eiríkur Sigfús-
son, föstud. 22. sept. '89 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnaðarbanki íslands hf.
ísborg EA-159, Hrísey, þingl. eig-
andi Borg hf., föstud. 22. sept. '89
kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Tryggingastofnun ríkisins.
Langahlíð 9a, e.h., Akureyri, þingl.
eigandi Svavar Sigursteinsson,
föstud. 22. sept. ’89 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Birgir Árnason hdl., Gunnar
Sólnes hrl„ Landsbandi íslands,
Ásgeir Thoroddsen hdl. og Ólafur
Gústafsson hrl.
Óseyri 16, Akureyri, þingl. oigandi
Vör hf„ föstud. 22. sept. ;89 kl.
15.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnlánasjóður.
öldugata 1, Árskógssandi, þingl.
eigandi Anton Harðarson föstud.
22. sept. '89 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Tryggingastofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Heiiræði
Hvar er barnið þitt
að leika sér?
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Aðalstræti 14, n.h. n-endi, Ak„
þingl. eigandi Áslaug Magnúsdóttir,
föstud. 22. sept. '89 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnaðarbanki íslands hf. og Ólafur
Gústafsson hrl.
Fagrasíða 11a, talinn eigandi Elsa
Pálmadóttir, föstud. 22. sept. '89 kl.
14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Glerárgata 34, 1. hæð Akureyri,
þingl. eigandi Haraldur Gunnars-
son, föstud. 22. sept. '89 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Verslun-
arbanki íslands.
Hamarstígur 30, Akureyri, þingl.
eigandi Friðný Friðriksdóttir, föstud.
22. sept. '89 kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Birgir Árnason hdl. og Jón
Ingólfsson hdl.
Langahlíð 21, Akureyri talinn eig-
andi Sigurlaug K. Pétursdóttir,
föstud. 22. sept. '89 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins, Ingvar
Björnsson hdl„ Guðmundur Krist-
jánsson hdl.
Skíðabraut 11, Dalvík, þingl. eig-
andi Svavar Marinósson, föstud.
22. sept. '89 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins, Ólafur
Birgir Árnason hdl„ Jón Ingólfsson
hdl„ Veðdeild Landsbanka íslands,
Sigríður Thorlacíus hdl. og Gunnar
Sólnes hrl.
Smárahlíð 4f, Akureyri, þingl. eig-
andi Jón Pálmason, föstud. 22.
sept. '89 kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ásgeir Thoroddsen hdl„ Veðdeild
Landsbanka íslands, Landsbanki
íslands, innheimtumaður ríkissjóðs,
Sveinn Skúlason hdl. og Guðríður
Guðmundsdóttir.
Svarfaðarbraut 32, Dalvík, þingl.
eigandi Vignir Þór Hallgrímsson,
föstud. 22. sept. '89 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Ólafur Birgir Árnason hdl., Gunnar
Sólnes hrl. og Benedikt Ólafsson
hdl.
Sæból, Sandgerðisbót, Akureyri,
þingl. eigandi Jóhann Sigvaldason,
föstud. 22. sept. '89 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Valgarður Sigurðsson hdl. og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Rauða krossinum
Þessar stelpur héldu nýlega hlutaveltu til styrktar
Rauða krossi íslands. Álls söfnuðust 850 krónur og
hefur peningunum verið komið til skila. Stúlkurnar
heita Ásdís Inga Birgisdóttir og Anna Rut Jónsdótt-
ir og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir. Mynd: kl
Héldu hlutaveltu til
styrktar Sólborg
Þessar stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til styrktar
Sólborg á Akureyri. Alls söfnuðust 1.400 krónur og
hefur þeim verið komið til skila. Stúlkurnar heita
Borghildur Sif Maríusdóttir og Árný Elva Ásgríms-
dóttir og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir.Mynd: kl
Amnesty International:
Fangar mánaðarins
IVIannréttindasamtökín Amnesty
International vilja vekja
athygli almennings á máli þess-
ara þriggja samviskufanga.
Fjórði fangi mánaðarins,
blaðamaðurinn Emmanuel
Kalavvole frá Benin, hefur ver-
ið látinn laus, og því eru fanga-
málin að þessu sinni aðeins
tvö, þ.e. til Singapore og
Tékkoslóvakíu. Amnesty von-
ar að fólk sjái sér fært að skrifa
bréf til hjálpar þessum mönn-
um og skipi sér á bekk með
þeim, sem berjast gegn mann-
réttindabrotum á borð við þau,
sem hér eru virt að vettugi.
Islandsdeild Amnesty gefur
einnig út póstkort til stuðnings
föngum mánaöarins. Hægt er
að gerast áskrifandi að þessum
kortum með því að hringja til
skrifstofunnar, Hafnarstræti
15, virka daga frá 16-18 í síma
91-16940.
Singapore: Vincent Cheng og
Teo Soh Lung er haldið í ein-
angrun í krafti neyðarlaga, en
samkvæmt þeim er heimilt að
hafa menn í haldi um ótiltekinn
tíma án opinberrar ákæru eða
dóms. Vincent Cheng, ritari
Réttlætis- og friðarnefndar erki-
biskupsins í Singapore, og Teo
Soh Lung, lögfræðingur, voru
meðal þeirra 22 menntamanna,
sem handteknir Voru í maí og
júní 1987 fyrir meinta aðild að
„marxísku samsæri" til að steypa
ríkisstjórn Singapore af stóli.
Amnesty telur alla fangana 22
santviskufanga, þar sem þeir
voru handteknir fyrir það eitt að
nota tjáningar- og félagafrelsi á
friðsamlegan hátt.
Ríkisstjórn Singapore telur
Vincent Cheng aöalhugsuðinn á
bak við „samsærið". Hann hefur
verið í einangrun allt frá því hann
var handtekinn í maí 1987. í árs-
lok 1987 höfðu allir aðrir verið
lcystir úr haldi, þar á meðal Teo
Soh Lung. Hann var þó handtek-
inn aftur ásamt 8 öðrum eftir að
hafa gefið út fréttatilkynningu
þar sem þeir neituðu öllum sakar-
giftum og fullyrtu, að þeir hefðu
verið pyntaðir við yfirheyrslur
árið 1987. Fimm föngum var
sleppt í desember 1988 og í kjöl-
far þess fóru Teo Soh Lung og
þrír aðrir fangar fram á úrskurð
um lögmæti frelsissviptingarinn-
ar. Áfrýjunardómstóll studdi
beiðni þeirra og voru þeir látnir
lausir en jafnhliða voru gefnar út
nýjar handtökuskipanir og þeir
félagar umsvifalaust handteknir á
ný.
Teo Soh Lung fór aftur fram á
úrskurð um lögmæti frelsissvipt-
ingarinnar en Hæstiréttur vísaði
málinu frá í apríl 1989. Yfir-
heyrslur í málinu standa nú yfir
fyrir Áfrýjunardómstóli Singapore
ríkis. Hinum þrem föngunum var
sleppt í mars sl., viku eftir að þeir
drógu til baka beiðni um úrskurð
um lögmæti frelsissviptingarinn-
ar. Vincent Cheng og Teo Soh
Lung eru í einangrun í Whitley
Road fangelsinu.
Vinsamlegast sendið kurteisleg
bréf og farið fram á að Vincent
Cheng og Teo Soh Lung verði
látnir lausir tafarlaust og án skil-
yrða.
Skrifið til: Lee Kuan Yew -
Prime Minister- Prime Minister’s
office - Istana Annexe - Orchard
Road - Singapore 0922.
Tékkoslóvakía: Frantisek
Starek, 36 ára ritstjóri óopinbers
menningartímarits, sem nefnist
Vokno (Gluggi), var dæmdur í 30
mánaða fangelsi og í kjölfar þess
2 ára „strangt eftirlit" af rétli í
Usti nad Orlici 28. júní sl. Hann
hafði veriö í varðhaldi síðan 23.
febrúar 1989.
Frantisk var dæmdur sekur um
„undirróður" og ákærður fyrir
útgáfu og dreifingu á Vokno
(sem er eitt af þekktustu sjálf-
Vetrarstarf kórs Akureyrar-
kirkju er að hefjast um þessar
mundir. I kvöld, þriðjudaginn
19. september, verður æfing
hjá kórnum og hefst hún kl.
20.30. Æfingar verða á þriðju-
dagskvöldum í vetur og þeir
sem hafa áhuga á kórstarfinu
geta haft samband við aðstand-
endur kórsins.
Björn Steinar Sólbergsson er
stjórnandi kórs Akureyrarkirkju
og Margrét Bóasdóttir mun sjá
um raddþjálfun. Björn sagði í
stæðu tímaritunum í Tékkoslóv-
akíu), og Voknoviny, sem er
mánaðarlegt fréttablað er fjallar
um það sem er efst á baugi á lista-
sviðinu. Húsleit var gerð á heim-
ili Frantisek Starek og meðal
þeirra fjölda hluta, sem gerðir
voru upptækir, voru skjalasafn
Vokno, ýmisleg óopinber ritverk
og fjölritunarvél.
Ásakanir um „undirróður"
hafa verið tíðar gegn fólki, sem
fæst við skriftir, fjölfaldar, dreifir
eða hefur undir höndum efni,
sem tékkneska ríkisstjórnin telur
að beinist gegn sér.
Amnesty telur Frantisek Starek
samviskufanga, þar sem hann er í
haldi fyrir að nota rétt sinn til
frjálsra hugsana og skoðanafrels-
is í friðsamlegum tilgangi. Hann
er í haldi í Hradec Kralove
fangelsinu.
Starek hefur undirritað stefnu-
yfirlýsingu óopinberu mannrétt-
indahreyfingarinnar Karta 77.
Hann hefur áður setið þrjú ár í
fangelsi sem samviskufangi.
Hann var fyrst fangelsaður 1976
vegna menningarstarfsemi sinnar
og 1981 var hann dæmdur í 30
niánaða fangelsi fyrir útgáfu og
dreifingu á Vokno.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að Frantisek
Starek verði tafarlaust látin laus
og án skilýrða.
Skrifið til: Judr Jan Pjesack -
Generalni Prokurator Cssr -
Nam Hrdinu 1300 - 1400 Praha
4-Nusle - Czechoslovakia.
samtali við Dag að margt
skemmtilegt væri á döfinni hjá
kórnum í vetur. Nýtt safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju verður
tekið í notkun og mun kórinn
syngja við vígsluna og þá mætti
nefna aðventukvöld og fleira.
Björn sagði að starf kórsins
hefði verið mjög öflugt á síðasta
vetri. Kórinn söng á Kirkjulista-
viku í Akureyrarkirkju og einnig
á kirkjulistahátíð í Hallgríms-
kirkju, svo það helsta sé nefnt.
SS
Kór Akureyrarkirkju:
Vetrarstarfið að heíjast