Dagur - 19.09.1989, Qupperneq 15
Þriðjudagur 19. september 1989 - DAGUR - 15
myndasögur dags
ARLAND
Friðrikka, þú þarfnast hjálpar,
Viðhorf þín og metnaður á heim;
á miððldum.
Ef þú ætlar að eiga einhverja
möguleika úti í hinum stóra
unarhætti þinum.
Hvernig veit
ég þá að ég
er ég?
/
ANDRES ÖND
HERSIR
• íbað
fyrir gesti
Einu sinni enn skemmtir
Rósa Ingólfsdóttir sér við
að vekja athygli og umtal,
eftir að myndskreytt viðtal
við hana birtist í nýjasta
tölublaði Mannlífs. Nú duga
Rósu greyinu ekki lengur
eintóm stóryrðin um menn
og málefni eða að klæða
einhverja laglega bossa úr
vaðmálsbuxunum fyrir
sjónvarpsupptöku. Til að
raska almennilega við
almenningsálitinu, á hvað
sé smekklegt og hvað hall-
ærislegt, dugar aumingja
Rósu ekki annað en að taka
á móti Ijósmyndara blaðs-
ins á nærklæðunum og nátt-
klæðunum, og drífa svo allt
í einu í að skrúbba af sér
skítínn að honum viðstödd-
um.
# Uppvöskun-
arviðrini
Rósa lætur fjúka nokkur
stóryrði yfir blaðamanninn
en það kemur ekki fram
hvort þau voru sögð á und-
an eða eftir baðinu. Tökum
nokkur dæmi af ummælum
Rósu: „Kvennalistakonur
og rauðsokkur hafa subbað
út heimilin.“ „Ég vil ekki sjá
karlmenn vera að ryksuga
eða vaska upp eins og ein-
hver viðrini.11 Á þá bara að
láta subbuskapinn á heimil-
unum eiga sig? Á einum
stað segir Rósa: „Dýrmæt-
asti starfskraftur þjóðfélags-
ins eru konurnar sem eru
búnar að skila af sér börn-
unum sínum. Konurnar sem
hafa unnið heima og alið
upp börnin sín í tuttugu ár.
Þessar konur hafa gifurlega
reynslu og þekkingu og
þegar þær vilja koma út á
vinnumarkaðinn á að bjóða
þær velkomnar með lúðra-
þyt og söng. Það að hafa
alið upp börnin jafnast á við
hvaða háskólapróf sem er.
En þessar konur lenda oft-
ast í verstu stöðunum, þær
eru settar í uppvöskun og
skúringar." Ef karlar verða
eins og viðrini við uppvask-
ið og konur eiga bara að
sitja undir lúðraþyt og söng,
hver á þá að vaska upp,
skúra, skrúbba og bóna?
# Að hætta að
djöflast
Rósa ætti bara að prufa
hvað það er notalegt að
ganga um í haustnæðingn-
um í rúllukragapeysu upp
að eyrum og vaðmálslopa-
peysu utanyfir. Og meðan
karlinn viðrinast við upp-
þvottinn, að læsa að sér á
baðherberginu, þurrka af
sér andlitsfarðann og bera
nærandi maska á húðina
áður en farið er í baðið. Fara
svo í náttkjól, er ekki hefur
verið vinkað framan í alþjóð,
losa viðrinið frá ryksugunni,
leyfa því að skreppa í baðið
og hætta að djöflast út í karl-
mennþann daginn.
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Þriðjudagur 19. september
17.50 Múmíndalurinn.
18.15 Kalli kanína.
18.20 Ferðir Róberts frænda.
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Fagri Blakkur.
19.20 Barði Hamar.
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Pétur og úlfurinn.
Frá fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Flutt verður verkið Pétur
og úlfurinn eftir Sergey Prokofieff.
21.00 Nick Knatterton.
Seinni hluti.
21.15 Eyðing.
(Wipe Out.)
Lokaþáttur.
22.05 Stefnan til styrjaldar.
(The Road to War.)
Þriðji þáttur - Japan.
23.00 Seinni fréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
Þriðjudagur 19. september
15.25 Hertogaynjan og bragðarefurinn.
(The Duchess and the Dirtwater.)
Ósvikinn vestri með gamansömu ivafi þar
sem Goldie Hawn fer með hlutverk dans-
ara i næturklúbbi sem vill feta sig upp
metorðastigann en hefur orðið litið
ágengt í þeim efnum. Á vegi hennar verð-
ur útséður flakkari og tekst með þeim
fremur stormasamt samband, vægt til
orða tekið.
Aðalhlutverk: George Segal, Goldie
Hawn, Canrad Janis og Thayer David.
Bönnuð börnum.
17.05 Santa Barbara.
17.55 Elsku Hobo.
(The Littlest Hobo.)
18.20 Veröld - Sagan í sjónvarpi.
18.50 Klemens og Klementína.
19.19 19:19.
20.30 Visa-sport.
21.30 Undir regnboganum.
(Chasing Rainbows.)
Ný kanadísk þáttaröð sem gerist frá lok-
um heimsstyrjaldarinnar fyrri til kreppu-
ára þriðja áratugarins.
23.15 Kúba í dag.
(Castros Cuba.)
„Það fyrirfinnst hvorki kommúnismi né
marxismi í hugmyndafræði okkar - hún er
byggð á lýðræðislegum rétti og skipu-
lögðu hagkerfi.. . Ég kæri mig ekki um að
verða forseti...“ Þessi orð mælti ungur
byltingasinnaður maður, Fidel Castro, á
ráðstefnu Sierra Maestre þá 32 ára að
aldri. Maðurinn sem vildi ekki verða for-
seti átti eftir að lifa fimm Sovétleiðtoga og
sjö Bandaríkjaforseta. í þessum þætti
verður fjallað um valdatíma Castros og
hvaða afleiðingar seta hans í forsetastól
hafa á umheiminn í dag, rúmum þrjátíu
árum síðar.
00.10 Múmían.
(The Mummy.)
Myndin í kvöld var gerð árið 1959 og
greinir frá fomleifafræðingum í Egypta-
landi um aldamótin síðustu í leit að fjögur
þúsund ára gömlu grafhýsi prinsessunn-
ar Ananka.
Aðalhlutverk: Peter Cushing, Christopher
Lee, Yvonne Furneaux og Eddie Byrne.
Bönnuð börnum.
01.35 Dagskrárlok.
Rásl
Þriðjudagur 19. september
6.45 Vedurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Randveri Þorlákssyni.
Fréttayfirht kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku
að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. Lesið úr for-
ystugreinum dagblaðanna að loknu frétta-
yfirliti kl. 8.30.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
„Júlíus Blom veit sínu viti" eftir Bo
Carpelan.
Gunnar Stefánsson les þýðingu sína (16).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir Tilkynningar
Tónlist.
13.05 í dagsins önn - Alexanderstækni.
13.35 Miðdegissagan: „Myndir af Fidel-
mann" eftir Bernard Malamud.
Ingunn Ásdísardóttir byrjar lestur þýð-
ingar sinnar.
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Eftirlætislögin.
15.00 Fróttir.
15.03 Með múrskeið að vopni.
Fylgst með fornleifauppgreftri í Viðey á
Kollafirði.
16.00 Fróttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fróttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Mozart og Haydn.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
18.10 Á vettvangi.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Ljóðasöngur.
21.00 Al-Anon samtökin.
21.30 Útvarpssagan: „Vörnin" eftir Vladi-
mir Nabokov.
Illugi Jökulsson les þýðingu sína (15).
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veöurfregnir • Orð kvöldsins •
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Leikrit vikunnar: „Aldrei að vikja"
framhaldsleikrit eftir Andrés Indriðason.
Fyrsti þáttur af fjórum.
23.15 Tónskáldatími.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Þriðjudagur 19. september
7.03 Morgunútvarpið: Vaknið til lífsins!
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
9.03 Morgunsyrpa
Eva Ásrún Albertsdóttir.
- Neytendahorn kl. 10.05.
- Afmæliskveðjur kl. 10.30.
- Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur
kl. 11.03.
- Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttaýfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Gesti Einari Jónassyni.
14.03 Milli mála.
Árni Magnússon á útkikki og leikur nýju
lögin.
Hagyrðingur dagsins rétt fyrir þrjú og
Veiðihornið rétt fyrir fjögur.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Sigurður Þór Salvars-
son, Guðrún Gunnarsdóttir, Þorsteinn J.
Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Auður Haralds talar frá Róm.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins.
Við hljóðnemann eru Sigrún Sigurðar-
dóttir og Oddný Eir Ævarsdóttir.
22.07 Bláar nótur.
Pétur Grétarsson kynnir djass og blús.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fróttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11, 12, 12.20, 14,15, 16, 17, 18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
01.00 „Blítt og lótt... “
02.00 Fréttir.
02.05 Ljúflingslög.
03.00 Næturnótur.
04.00 Fréttir.
04.05 Glefsur.
04.30 Veðurfregnir.
04.40 Á vettvangi.
05.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
05.01 Áfram ísland.
06.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
06.01 „Blítt og létt... “
Ríkisútvarpið á Akureyri
Þriðjudagur 19. september
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Þriðjudagur 19. september
07.00 Páll Þorsteinsson.
Morgunþáttur athafnafólks sem vill hafa
fréttirnar á hreinu áður en það fer í vinn-
una.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Gömlu góðu lögin sem þú varst búinn að
gleyma, heyrirðu hjá Valdísi.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Hér er allt á sinum stað, óskalögin og
afmæliskveðjur allan daginn.
17.00 Hallgrímur Thorsteinsson. - Reykja-
vík síðdegis.
Fréttir og fréttatengd málefni.
í þessum þætti nær þjóðmálaumræðan
hámarki með hjálp hlustenda. Síminn í
Reykjavík síðdegis er 611111.
19.00 Snjólfur Teitsson.
Þægileg ókynnt tónlist í klukkustund.
20.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
Strákurinn er kominn í stuttbuxur og er i
stöðugu sambandi við íþróttadeildina
þegar við á.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16,
17 og 18.
Hljóðbylgjan
Þriðjudagur 19. september
17.00-19,00 M.a. er létt umræða um lífið og
tilveruna.
Stjórnandi er Pálmi Guðmundsson.
Fróttir kl. 18.00.