Dagur


Dagur - 27.10.1989, Qupperneq 5

Dagur - 27.10.1989, Qupperneq 5
Föstudagur 27. október 1989 - DAGUR - 5 Akureyri - miðstöð stjórnsýslu í sjávar- útvegi á íslandi Eðlilegt er að ríða á vaðið með byggðastefnu á þessum nótum með því að velja Akureyri og Eyjafjörð sem miðstöð rann- sókna, fræðslu og stjórnunar í sjávarútvegi. Við Eyjafjörð er blómleg útgerð af ýmsum toga, margvísleg sjávarútvegsfyrirtæki og fullvinnsla sjávarfangs. Þá er öflugur þjónustuiðnaður við sjáv- arútveg og annar iönaður, sent framleiðir vörur fyrir sjávar- útveg. Samgöngur eru góðar til flestra staða og á Akureyri er, þrátt fyrir allt, nógu öflug byggð til þess að taka við slíku verkefni. Fyrsta skrefið í byggðastefnu af þessu tagi hefur þegar verið tekið, þótt það hafi kannski verið tekið óvart. Stofnun Háskólans á Akureyri og sú áhersla sem þar er lögð á sjávarútvegsfræði er í raun besti stökkpallur. sem hægt er að hugsa sér til að hrinda byggðastefnu at' þessu tagi í framkvæmd. Við Háskólann á Akureyri verða kenndar greinar sem spanna öll sérkenni sjávarút- vegs og starfsmcnn skólans munu leggja stund á ranrtsóknir sem tengjast kennslunni. Forsvars- menn rannsóknastofnana sjáv- arútvegsins hafa lýst yfir vilja til náins samstarfs, og ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að unnt sé að tengjast fleiri stofnunum, sem fara með sjávarútvegsmál. Ef stjórnmálamenn meina eitthvað með sínum háttstemmdu ræðum um byggðastefnu, ættu þeir að fylgja stofnun Háskólans á Akureyri eftir með skýrum og virkum hætti. Alþingi þarf að samþykkja tillögu til þingsálykt- unar þar sem kveðið er á um að á Akureyri vCrði miðstöð opinberr- ar stjórnsýslu í sjávarútvegi. Þeirri ályktun yrði fylgt eftir ineð því að gera áætlun um flutning stofnana ríkisins á þessu sviði. Útibúum yrði strax komið á fót á Akureyri og þeim, eins hratt og eðlilegt er, falin aukin verkefni. Að lokum verði svo höfuðstöðv- ar viðkomandi stofnana fluttar til Akureyrar. Á þennan hátt ætti að vera hægt að flytja stofnanir svo sem Hafrannsóknastofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins, Fiskifélagið, Ríkismat sjáv- arafurða, Fiskveiðasjóð o.s.frv. án þess að um verulega röskun á starfi stofnananna yrði að ræða. Yerkefni annarra landshluta Jafnframt því að hrinda í gang áætlun fyrir Akureyri og Eyja- fjörð á þessum nótum þarf að móta stefnu gagnvart öðrum landshlutum. Það hefur dregist lengi að koma raunverulegri byggðastefnu í gang og yfirvöld þurfa að hugsa og framkvæma hratt, svo að markviss flutningur ríkisstofnana geti hafist hið fyrsta. Þegar verkefnum er valinn staður þarf að hafa það að leið- arljósi að viðkomandi byggðarlag hafi forsendur til þess að valda verkefninu, og að það hafi ein- hverja eðlilega skírskotun til staðarins. Jafnframt því þarf að tryggja að viðkomandi stofnun hafi fullan möguleika á að annast þjónustuhlutverk sitt, t.d. með rekstri útibúa þar sem það á við. Hlutur Reykjavíkur Þær aðgerðir sem hér hefur verið fjallað um miða að því að dreifa störfum á vegum ríkisins á niark- vissan hátt á fleiri staði en Reykjavík. Þær miða ekki að því að taka allt frá Reykjavík. Eftir sem áður verða flestir ríkisstarfs- menn í Reykjavík. Margar stofn- anir, svo sem ráðuneytin o.fl., eiga eðlis síns vegna að vera í Reykjavík (að mestum hluta a.m.k.). Og stofnanir með höfuð- stöðvar úti á landi hefðu útibú í Reykjavík, ef þörf væri á. Það vær því ástæðulaust fyrir Reyk- víkinga að óttast þá byggða- stefnu, sem hér er lögð til. Miklu frekar er ástæða til þess að óttast framhald óbreyttrar þróunar. Verkefni alþingismanna Andstæðurnar í þjóðfélaginu, landsbyggðin annars vegar og höfuðborgasvæðið hins vegar, eru stöðugt að fjarlægjast hvor aðra. Landsbyggðin hefur enn þá meiri hluta þingsæta þrátt fyrir að vera orðin minni hluti þjóðarinn- ar. Landsbyggðasjónarmið hafa líka átt tiltölulega mikinn hljóm- grunn meðal íbúa höfuðstað- arins vegna þess að rætur flestra íbúa hans liggja út á land. Hins vegar er þetta hvorutveggja að breytast. Misvægi atkvæða minnkar og þar með pólitískur máttur landsbyggðarinnar . og þeim Reykvíkingum, sem telja sig eiga sterkar rætur að rekja út á land fækkar hlutfallslega. Skiln- ingur t'yrir nauðsyn jafnvægis í byggð landsins mun því minnka. Raunhæfar aðgerðir í byggða- málum þarf því að gera nú. Alþingismenn landsbyggðar- innar þurfa að vinna verkin sín. Nú þegar þarf að hefja vinnu við mótun byggðastefnu með lang- tímamarkmið í huga. Dreifa þarf störfum á vegum hins opinbera markvisst, þar sem landshlutum og einstaka stöðum eru ætluð ákveðið hlutverk, og aðgerðir næstu ára og áratuga við það miðaðar. Hefja þarf verkið með því að fylgja stofnun Háskólans á Akureyri eftir á þann hátt að beina störfum á sviði stjórnunar, rannsókna og fræðslu í sjávarút- vegi til Akureyrar. Látum skilið við klisju- og slag- orðabyggðastefnu síðustu ára og hefjum byggðastefnu, sem treyst- ir byggð um allt land. Lokaorð Rétt er að benda á að^árið 1975 skilaði nefnd á vegum forsætis- ráðuneytjsins ítarlegri skýrlu um flutning ríkisstofnana. Nefndin kom með róttækar tillögur um flutning ríkisstofnana og eflingu og uppsetningu útibúa á þeirra vegum. Ekkert hefur verið gert með niðurstöður nefndarinnar enn sem komið er. Hins vegar sitja tveir af höfundum skýrslunn- ar, þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Jón Baldvin Hannibalsson, í ríkisstjórn auk þess að vera for- menn sinna flokka. Það hlýtur að mega búast við að þeir veiti máli af þessu tagi brautargengi. Akureyri, 24. október, 1989, Pétur Bjarnason Höfundur cr markaössljóri ístess hf. VÍSINDARÁÐ auglýsir styrki úr Vísindasjóði árið 1990 til rannsókna í - náttúruvísindum - líf- og læknisvísindum - hug- og félagsvísindum Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Vísindaráðs, Báru- götu 3,101 Reykjavík og hjá sendiráðum íslands erlendis. Umsóknarfrestur er til 1. desember 1989, og skal umsókn- um skilað á skrifstofu ráðsins, sem veitir upplýsingar dag- lega kl. 10-12 og 14-16 (sími 91-10233). FRAMSÓKNARMENN AKUREYRI Bæjarmálafundur verður haldinn að Hafnarstræti 90, mánudaginn 30. októ- ber kl. 20.30. Rætt um atvinnuhorfur og stöðu fyrirtækja á Akureyri í vetur. Þá verður rætt um væntanlega stóriðju á höfuðborgarsvæð- inu og virkjanir. Félagsmenn framsóknarfélaganna eru hvattir til að fjöl- menna. Stjórnin. Sýnum föstudaginn 27. nóvember hljómtæki frá Pioneer og sjónvörp og videótæki frá Sharp og Salora Hátalarar frá Jamo verða á sýningunni Sýnum myndgeislaspilara Komið og skoðið vörur í háum gæðaflokki PIOMEER SHARP SALORA jamo sImi (96) 21400

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.