Dagur - 30.11.1989, Side 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 30. nóvember 1989
Tilboð á frosnu lambakjöti
Mörg önnur tilboö í gangi til dæmis:
Pepsi, 2 lítrar 110 kr. Franskbrauö 93 kr.
Mjólk 2 lítrar 125 kr. og fl. og fl.
Hjá okkur er lágt vöruverð
og gott að versla
Verslunin
_ ÞDBFID _
Móasíðu 1 • Sími 27755. |.L-
Opib alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30.
Heimsendinsarþjónusta.
~N/j ^Mimrail! 1S
VERSLUNAI ■URN RIV j fllÐSTÖe MUB
fréttir
Dalvíkurhöfn þarf á auknu athafnarými að halda:
Fæst flárveiting tfl gerðar
nýs grjótgarðs á næsta ári?
- mjög brýn en dýr framkvæmd, segir formaður
hafnarnefndar Dalvíkur
Það er alkunna að Dalvíkur-
höfn gegnir æ stærra hlutverki
sem útflutningshöfn á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Flutningar um
höfnina hafa stóraukist ár frá
ári undanfarin ár og nú er svo
komið að til vandræða horfír
vegna plássleysis á hafnar-
svæðinu. Gámum hefur fjölg-
að gífurlega og m.a. vegna
þeirra þarf stóraukið athafna-
svæði við höfnina.
Að sögn Júlíusar Snorrasonar,
formanns hafnarnefndar Dalvík-
ur, liggur fyrir að vegna þeirrar
staðreyndar að á síðustu árum
hafi orði stórkostleg aukning á
flutningum um höfnina sé nauð-
synlegt að bæta aðstöðuna veru-
lega. Júlíus segir að nokkuð langt
sé síðan að menn byrjuðu að
ræða um þann möguleika að
stækka hafnarsvæðið norður af
núverandi austur-vestur garði.
Hann segir þá hugmynd hafa ver-
ið rædda að gera grjótgarð í aust-
ur til móts við hús Blika hf. og í
suður að hafnargarðinum og
þannig yrði svæði austur af hafn-
arvog lokað af og síðar fyllt upp.
Júlíus segir ljóst að hér sé um
mjög svo kostnaðarsama fram-
kvæmd að ræða sem skipta yrði
niður á mörg ár. Hins vegar sé
mjög brýnt að koma þessu máli
áfram í kerfinu og ýta á eftir fjár-
veitingum til þess.
Júh'us segir að fjárveitinga-
nefnd sé fullkunnugt um nauðsyn
þessarat framkvæmdar við Dal-
víkurhöfn en hins vegar sé spurn-
ingin hvaða verkefni í hafnamál-
um menn telji að eigi að hafa for-
gang á næsta ári. Þá bendir Júlíus
á að mikilvægt sé að ráðast í
þessa framkvæmd sem fyrst
vegna þess að grjótvörn við aust-
ur-vestur garð sé farin að gefa sig
og menn óttist að það geti haft
alvarlegar afleiðingar ef ekki
verði sem fyrst gripið í taumana.
óþh
Erum koimn í jólaskap
Búðir fullar af vörum
Frarn á torcfinu.:
Ingimar Eydal spilar jólalög.
Kökubasar og fleira.
★
Opið laugardag 2. desember
frá kl. 10-16
Næg bílastæði
P.S. Hittumst í Suxinuhlíð
Opnunartími
verslana í desember
umfram venju
Laugardagur 2. desember kl. 10-14.
Laugardagur 9. desember kl. 10-18.
Laugardagur 16. desember kl. 10-22.
Fimmtudagur 21. desember kl. 09-22.
Þorláksmessa 23. desember kl. 10-23.
Kaupmannafélag Akureyrar.
Kaupmannafélag
Akureyrar
Samstarfsnefnd atvinnurekenda í sjávarútvegi:
„Iifsnauðsynlegt að hafa hagkvæma
samninga við Evrópubandalagið“
í skýrslu sem út er komin um
þá hagsmuni sem tengjast
ísienskum sjávarútvegi í sam-
skiptum við Evrópubandalagið
segir að Ijóst sé að væntanlegar
viðræður EFTA og Evrópu-
bandalagsins tengist fyrst og
fremst frelsi í viðskiptum með
iðnaðarvörur, þjónustu, fjár-
magni og frelsi fólks til búsetu
og atvinnu. Sérstaða íslend-
inga sem sjávarútvegsþjóðar í
samskiptum við þessar þjóðir
skipti ekki síður máli.
Skýrsla þessi er samin af sam-
starfsnefnd atvinnurekenda í
sjávarútvegi. Þar er lögð mikil
áhersla á að í viðræðunum verði
undirstrikað mikilvægi sjávar-
útvegs á íslandi. íslendingar þurfi
frjálsan aðgang að mörkuðum
Evrópubandalagsins þar sem
sjávarafurðir séu iðnaðarvörur
íslendinga og sama eigi að gilda
um þær og iðnaðarvörur Evrópu-
bandalagsríkja.
Samstarfsnefnd atvinnurekenda
segir ljóst að leita þurfi eftir við-
bótarsamningi við fríverslunar-
samninginn við Evrópubandalag-
ið ef tollar bandalagsins eigi ekki
að hafa varanleg áhrif á lífs-
afkomu á íslandi. Leita þurfi
allra ráða til þess að tryggja hags-
muni íslendinga, bæði í væntan-
legum viðræðum EFTA og
Evrópubandalagsins og í beinum
viðræðum íslendinga við banda-
lagið.
„Forsendan fyrir viðunandi
lífskjörum á fslandi er að íslensk-
ur sjávarútvegur sé á hverjum
tíma samkeppnisfær við sjávar-
útveg þeirra þjóða sem harðast
keppa við okkur á erlendum
mörkuðum. Evrópubandalagið
er stærsti viðskiptaaðili íslensks
sjávarútvegs og þess vegna er
lífsnauðsynlegt að hafa hag-
kvæma samninga við það á öllum
sviðum sjávarútvegs,“ segir í
skýrslu samstarfsnefndar
atvinnurekenda. JÓH
SigluQörður:
ísafold gjaldþrota
ísafold hf. á Siglufírði hefur
verið lýst gjaldþrota, en for-
ráðamenn fyrirtækisins óskuðu
eftir að það yrði tekið til gjald-
þrotameðferðar hjá bæjar-
fógetaembættinu á þriðjudag.
Fiskverkunarhús ísafoldar er
metið á rúmar þrjátíu milljónir
króna, samkvæmt brunabóta-
mati, en óvíst er hvort svo mikið
fæst fyrir það við sölu. Allmörg
fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota á
Siglufirði undanfarin tvö ár, og
eru margir uggandi um atvinnu-
ástandið í bænum.
Gjaldþrot ísafoldar hefur að
öllum líkindum ekki bein áhrif á
atvinnuleysi í bænum því starfs-
fólkið, átta að tölu, fékk allt
vinnu þegar í stað hjá Þormóði
ramma hf, en þar vinna yfir tvö
hundruð manns. EHB