Dagur - 01.12.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 1. desember 1989
fréttir
Samvinna KEA og jólasveinanna:
Böm sem þess öska fá
jólakort frá sveinumim
- efnt verður til sýningar á jólamyndum barna
Avallt hefur verið gott sam-
band milli jólasveinanna og
KEA og munu þessir aðilar
hafa nána samvinnu fyrir jólin
er nú nálgast óðfluga. Sam-
starfssamningurinn felur í sér
að jólasveinarnir munu senda
bömum jólakort, spUa og
syngja fyrir þau og standa fyrir
sýningu á jólamyndum barn-
anna.
Áskell Þórisson, blaðafulltrúi
KEA, hefur eytt töluverðum
tíma með jólasveinunum uppi á
reginfjöllum en fyrir skömmu
kom hann með samninginn til
byggða. En hvað felst í þessum
samningi?
„Öll börn á félagssvæði KEA
geta skrifað jólasveinunum og þá
munu þau fá jólakort frá þeim. í
bréfi barnanna verður að koma
fram nafn og heimilsfang, aldur,
sími, póstnúmer og undirskrift
foreldris eða forráðamanns.
Utanáskriftin er: Fulltrúi jóla-
sveinanna, KEA aðalskrifstofa,
600 Akureyri, og bréfin verður
að póstleggja í síðasta lagi mið-
vikudaginn 6. desember," sagði
Áskell.
Áskell gat þess einnig að dreg-
ið verður úr nöfnum krakka sem
óska eftir jólakorti og 25 börn fá
En
sérstaka jólagjöf frá KEA.
það hangir fleira á spýtunni.
„Já, hvert barn sem sendir
okkur ósk um að fá kort frá jóla-
sveinunum getur um leið sent
eina mynd í stærðinni A-4.
Myndin verður að tengjast jólun-
um og vera vandlega merkt eig-
anda. Myndirnar verða síðan til
sýnis í Vöruhúsi KEA, Svarfdæla-
búð á Dalvík, verslunum KEA í
Ólafsfirði, Hrísey, á Dalvík og
Grenivík frá 18.-23. desember.
Listamennirnir skulu taka fram á
bakhlið myndanna á hvaða stað
myndin óskast sýnd,“ sagði
Áskell að lokum. SS
Dagvistarbyggingin við Þverholt á Akureyri:
Kostar fullbúin 17,4 milljómr króna
Vegna fréttar um kostnaö við
dagvistarbyggingu sem Möl og
sandur hf. á Akureyri er verk-
taki að við Þverholt hefur Ein-
ar Jóhannsson hjá bygginga-
deild Akureyrarbæjar upplýst
að áætlaður kostnaður við
bygginguna sé 17 milljónir og
400 þúsund krónur, en það eru
kr. 77.300.- á fermeter fyrir
fullbúið hús.
Einar upplýsir að vegna 50%
þáttökú ríkissjóðs í byggingar-
kostnaði dagvista hafi dagvista-
deild Menntamálaráðuneytisins
samþykkt sem viðmiðun fer-
metraverð einbýlishúss auk 10%
álags. Á verðlagi í nóvember geri
þetta kr. 74.400.-
Forsenda fyrir 10% álagi á ein-
býlishúsakostnað er sú að í dag-
vistarbyggingu er hvert rými háð
hámarksstærð og krefst nýting
byggingarinnar þess að öll rými
séu með vönduðum frágangi.
Einar bendir í þessu sambandi á
að í einbýlishúsinu sem lagt er til
grundvallar í útreikningi sé 60
fermetra bílskúr og 142 fermetra
íbúðarrými.
„í öðru lagi vil ég upplýsa að í
áætlunum um dagvistina við
Þverholt er reiknað með fullfrá-
genginni byggingu sem þýðir t.d.
að fullkomin lýsing er í húsinu.
Áætla má að um 60 lampa sé að
ræða. Meðalkostnaður við hvern
uppsettan lampa er kr. 8.000,-
eða alls kr. 480.000,- Á móti er
lampabúnaður í vísitöluhúsinu
reiknaður kr. 13 til 15.000.- fyrir
hvern lampa.
Svona mætti skýra marga fleiri
þætti og nægir að benda t.d. á
snyrtiherbergi.
• Varast ber að taka þessi út-
gefnu verð á svokölluðum vísi-
töluhúsum og yfirfæra þau á
aðrar byggingar sem algild sann-
indi um verð. Hinsvegar geta þau
verið ágæt verkfæri fyrir þá sem
þurfa að gera áætlanir á mismikið
mótaðar hugmyndir þar
hönnun liggur ekki fyrir,“ segir
Einar. EHB
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Fráleitt að leggja MSKÞ niður
um
Alyktun
hagræöingu
nefndarálit
i rekstri
um
innan
Dalvík:
Nýráðinn
húsvörður
ráðinn
deildarstjóri
Ekki alls fyrir löngu greindi
Dagur frá því að einn aðaleig-
enda Tréverks hf. á Dalvík,
Bragi Jónsson, hefði verið ráð-
inn húsvörður við Dalvíkur-
skóla. Fljótt skipast veður í
lofti og nú hefur Bragi verið
ráðinn deildarstjóri bygginga-
vörudeildar útibús Kaupfélags
Eyfirðinga á Dalvík.
Bragi tekur við stöðu deildar-
stjóra sem Friðþjófur Þórarins-
son hefur gegnt mörg undanfarin
ár. Sveinbjörn Steingrímsson,
bæjartæknifræðingur á Dalvík,
segir að Braga hafi staðið óvænt
til boða staða deildarstjóra hjá
ÚKED og hann hafi ákveðið í
fullu samráði við bæinn að taka
því boði, þrátt fyrir að stutt sé
síðan hann tók við starfi húsvarð-
ar Dalvíkurskóla. Sú staða hefur
nú aftur verið auglýst til umsókn-
ar. óþh
mjólkuriðnaðarins var sam-
þykkt samhljóða á fundi
Bæjarstjórnar Húsavíkur fyrir
skömmu og er hún svohljóð-
andi:
„Bæjarstjórn Húsavíkur mót-
mælir tillögu afurðastöðvanefnd-
ar um að leggja MSKÞ niður og
flytja starfsemina til Mjólkur-
samlags KEA sem Örökstuddri.
MSKÞ er vel rekið fyrirtæki
sem stenst fyllilega samanburð
við það besta sem gerist í þessum
iðnaði á landinu og hefur sýnt
frumkvæði í vöruþróun og
vinnslu afurða, en stillt fjárfest-
ingum í hóf. Fráleitt er að leggja
niður slík fyrirtæki til þess eins að
auka vinnslu og veltu hjá hlið-
stæðum fyrirtækjum sem fallið
hafa í gryfju offjárfestingar.
Það að leggja MSKÞ niður
tryggir á engan hátt hagkvæmni í
rekstri mjólkuriðnaðarins og
skýrsla nefndarinnar tekur á eng-
an hátt tillit til þeirra byggða- og
þjóðfélagslegú áhrifa sem fækk-
un mjólkursamlaga hefur í för
með sér. Hagræðing er nauðsyn,
en gæta þarf þess að hagræða
ekki á þann hátt að það stofni
búsetu á landsbyggðinni í hættu.“
IM
Bjarni Kr. Grímsson,
bæjarstjóri í Ólafsfirði:
Sveitarstjómarmenn
óttast virðisaukann
- engin reglugerð og menn vita því
„ekkert í sinn haus“
„Sveitarstjómarmenn eru mjög
uggandi um hvernig virðis-
aukaskatturinn kemur við fjár-
hag sveitarfélaganna. Reglu-
gerð um virðisaukaskatt og
sveitarfélög er ekki Ijós og á
meðan hún liggur ekki fyrir
eru menn hræddir um að
ávinningur af verkaskiptingu
ríkis og sveitarfélaga um ára-
mót verði tekinn til baka,“
segir Bjarni Kr. Grímsson,
bæjarstjóri í Ólafsfirði.
Virðisaukaskatturinn kom
m.a. til umræðu á fjármálaráð-
stefnu sveitarfélaga í fyrri viku.
Þar kom skýrt fram að margir
endar eru lausir í þessu máli hvað
sveitarfélögunum viðkemur og í
því ljósi lýstu sveitarstjórnar-
menn áhyggjum af gangi mála.
„Maður veit ekkert í sinn haus og
meðan svo er óttast maður að
niðurstaðan verði á versta veg
fyrir sveitarfélögin. Auðvitað
urðum við margs fróðari á fjár-
málaráðstefnunni. En eftir sem
áður finnst mér æði margt svífa í
lausu lofti. Við héldum m.a. að
með virðisaukaskatti myndum
við losna við þennan fræga skatt
af snjómokstri. Ég fæ hins vegar
ekki annað séð en að virðisauka-
skattinum sé ætlað að leggjast af
fullum þunga á snjómokstur,“
segir Bjarni. óþh
Húsavík:
Sitt sýnist hveijmn
um hraðahindranir
Umferðarmál og hraðahindr-
anir komu til umræðu á fundi
Bæjarstjórnar Húsavíkur fyrir
skömmu. A síðasta fundi
bæjarstjórnar kom fram tillaga
frá Valgerði Gunnarsdóttur
um uppsetningu hraðahindr-
ana í bænum og var málinu vís-
að til bæjarráðs, umferðar-
nefndar og bygginganefndar.
Bæjarráði hefur borist erindi
frá Slysavarnadeild kvenna á
Húsavík, þar sem lýst er yfir
stuðningi við tillögu Valgerðar.
Málið var tekið fyrir í bæjar-
ráði og kom Þröstur Brynjólfs-
son, yfirlögreglumaður, til við-
ræðna á þann fund. Haft var eftir
Þresti að það væru 25-40 manns í
bænum, sem hafa þyrfti afskipti
af vegna hraðaksturs en lögregl-
an væri illa í stakk búin til að
beita aðgerðum vegna tak-
mörkunar á yfirvinnu. Hugsan-
lega yrði þó breyting þar á með
nýjum yfirvinnukvóta 10. des.
Einnig var haft eftir Þresti að
hraðahindranir drægju úr
umferðarhraða þar sem þær væru
settar, en vandinn gæti flust til,
þannig að hraðakstur ykist ann-
arsstaðar í bænum.
Á bæjarstjórnarfundinum lýsti
Valgerður yfir furðu sinni á bók-
un umferðarnefndar, en nefndin
var sammála um að hraðahindr-
anir skapi fleiri vandamál en þær
leysi. Beinir nefndin því til lög-
reglu að fylgja hraðatakmörkun-
um betur eftir. Fram kom ábend-
ing frá Guðmundi Salómonssyni
þess efnis, að ef ástandið sé jafn
alvarlegt og af sé látið, sé full
ástæða til að athuga með gerð
nokkurra undirganga.
Á fundi umferðarnefndar
bókaði nefndin ábendingu til
bæjaryfirvalda um hættu sem
stafaði af runnagróðri við gatna-
mót Stóragarðs og Miðgarðs að
norðanverðu. Vill nefndin að
athugað sé hvort ekki megi lækka
eða fjarlægja þessa runna. IM