Dagur - 01.12.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 01.12.1989, Blaðsíða 3
Föstudagur 1. desember 1989 - DAGUR - 3 fréftir Jólaverslun byrjuð á Akureyri: Fundartwð Samdráttartítmnn er ekki liðirni - segir Birkir Skarphéðinsson hjá Amaró „Þetta fer ívið hægar af stað en venjulega og ég er hræddur um að það megi alveg búast við einhverjum samdrætti,“ sagði Birkir Skarphéðinsson hjá Amaró aðspurður um jóla- verslunina í ár. Hann sagði samdráttartímann ekki liðinn og ef ekkert yrði að gert yrði botninum vart náð fyrr en á næsta ári. Annars væru kaup- menn á þessu svæði ekki þeir verst settu og ætti eftir að kreppa duglega að á suðvestur horninu í vetur. fólk myndi t.d. kaupa ódýrari jólagjafir. „Þá hefur sala í vefn- aðarvöru verið mjög góð, svo kannski er farið að heimasauma jólafötin í meira mæli á ný.“ Þá sagði hann það sitt álit að fárán- legt væri að breyta úttektartíma- bili greiðslukortanna. „Rétt skal vera rétt og tímabilið verður ekki fært til hjá okkur. Þetta er bara vitleysa og á ekki að eiga sér stað.“ Þórhalla Þórhallsdóttir versl- unarstjóri í Hagkaup sagði að þegar væri farið að kaupa jóla- steikurnar úr kjötborðinu hjá þeim, en hvort fólk ætlaði að geyma þær til jóla, eða hafa strax í matinn vildi hún ekki fullyrða um. Hún sagði að í versluninni hafi nú verið sett upp grænmetis- borð sem setti skemmtilegan svip á verslunina fyrir jóiin. „Ég hef heyrt á fólki að það sé byrjað að kaupa jólagjafirnar, en þetta byrjar á svipuðum tíma og venju- lega,“ sagði Þórhalla. Hún sagði marga hafa spurt hvenær nýtt kortatímabil hefjist í versluninni, en það byrjar á sama tíma og í öðrum verslunum Hagkaups þann 11. desember. VG Sérfræðinganefnd um Mývatnsrannsóknir kynnir starf sitt og rannsóknir. Framsöguræður verða haldnar og stuttar fyrir- spurnir leyfðar. Fundurinn verður í Hótel Reynihlíð, sunnud. 3. desember, kl. 13.30. Allir velkomnir. Sérfræðinganefnd Mývatnssókna. I Slys gera ekki££> B $C F m F ■ ÖKUM EINS OG MENN! [boð a undan ser \ ^ Hjá Amaró var heldur minna keypt inn fyrir þessi jól ef eitt- hvað er, „við keyptum a.m.k. ekki meira,“ sagði Birkir. Aðspurður um á hverju sam- drátturinn væri helst merkjanleg- ur sagðist hann reikna með að FH á Húsavík: Fastráðningu sagt upp ÖIIu starfsfólki Fiskiðjusam- lags Húsavíkur, um 120 manns, hefur verið sagt upp fastráðningarsamningum og taka uppsagnirnar gildi um jól. Venja er að fólkinu sé sagt upp á þessum árstíma, en ráðning- arsamningar endurnýjast síðan strax og fiskur berst tii fyrir- tækisins eftir áramót, að sögn Hallgríms Valdimarssonar, verkstjóra. Aðspurður sagði Hallgrímur að sér sýnist að næg vinna haldist fram að jólum. Kolbeinsey er nú í sínum síðasta túr fyrir jól, mun væntanlega landa á Húsavík um helgina og verður þá búin með kvóta sinn. Júlíus Havsteen er við rækjuveiðar og á eftir að landa tvisvar fyrir jólin. IM Ólafsfjörður: Rætt um að ráða félags- málastjóra Líkur eru á að Ólafsfjarðarbær muni á næsta ári ráða félags- málastjóra. Bjarni Kr. Grímsson, bæjarstjóri, segir að um þetta hafi verið rætt eft- ir að fyrrverandi æskulýðsfull- trúi lét af störfum nýverið. Fyrir lægi að ráða mann í hans stað og til greina kæmi að útvíkka starfssvið nýs æskulýðs- fulltrúa í 100% stöðu félags- málastjóra. Á síðasta bæjarstjórnarfundi var tómstundanefnd bæjarins fal- ið að semja drög að starfslýsingu fyrir starf félagsmálastjóra. „Við viljum fyrst taka ákvörðun um starfið og starfslýsingu áður en það verður auglýst laust til umsóknar,“ segir Bjarni. Auk æskulýðs- og íþróttamála gæti hugsanlegur félagsmálafull- trúi Ólafsfjarðarbæjar haft með öldrunar- og dagvistunarmál að gera. Við gerð draga að starfslýsingu félagsmálastjóra verður m.a. litið til byggðarlaga þar sem til er starf félagsmálastjóra. Þar má nefna Siglufjörð, Sauðárkrók, Selfoss og ísafjörð. óþh Kynning í dag kl. laucyardagr kl. 14.00-19.00 og 10.00-14.00 Myndbönd: Fjarstýrð, HQ-gæði, 356 daga minni og fl. Super VHS með HI-FI stereo. Verð frá kr. 39.810,- st.gr. Hljómtækja- 3 gerðir Verð frá kr. 28.800,- m/hátölurum. m ár ■ : ■■ Sjonvorp 14“ og 20“ mono ★ 25“ og 33“ stereo Verð frá kr. 34.685,- st.gr. Örbylgjuofnar 600 watta, 21 lítra, 3 gerðir Verð frá kr. 21.670,- st.gr. Ferðatæki - Bíltæki - Útvarpsvekjarar o.fl. o.fl. O O er japönsk hágæða vara á góðu verði AKURVIK ÍS HF. - GLERÁRGÖTU 20 - AKUREYRI - SÍMI 22233 SANYl og Helly Hansen vetrarfatnaður

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.