Dagur - 01.12.1989, Blaðsíða 13

Dagur - 01.12.1989, Blaðsíða 13
OSSO ?■ '4<£aH^«cfc‘9>£*H f — t1 f’ -í Hvað er að gerast Pflukastssalur opnaður á Akureyri Á morgun laugardag kl. 17.00, verður formlega opnaður pflu- kastssalur í húsi Knattborðsstof- unnar Gilið í Kaupvangsstræti á Akureyri. Pflukast á vaxandi vinsældum að fagna á Islandi en þessi íþrótt er fyrir alla aldurshópa. Til að byrja með, verða sett upp 5 spjöld og fyrst um sinn verður sérstakt kynningarverð í gangi fyrir almenning. Við hvert spjald geta spilað 2-6 í einu og munu aðstandendur salarins Aðstandendur pílukastssalarins, bræðurnir Birgir og Ólafur Torfa- synir. Mynd: KL □ HULD 59891247 VI 2. Kristniboðsfélag kvenna heldur fund í Zíon laugard. 2. des. kl. 15.00. Ath. gengið inn um suður dyr. Allar konur hjartanlega velkomnar. Grundarkirkja: Sunnudaginn 3. des. sunnudaga- skóli Akureyrarkirkju kemur í heimsókn kl. 11.00. Kaupvangskirkja: Sunnudaginn 3. des. messa kl. 13.30. Aðalsafnaðarfundur. Kaupvangssóknar að lokinni messu. Sóknarprestur. Möðruvallaprestakall. Aðventukvöld í Möðruvalla- klausturskirkju sunnudagskvöldið 3. des. kl. 21.00. Ræðumaður verður Jóhannes Sig- valdason. Kórsöngur, helgileikur og almennur söngur. Sóknarprestur. Glerárkirkja. Barnasamkoma sunnudaginn 3. des. kl. 11.00. Aðventukvöld sunnudaginn 3. des. kl. 20.30. Fjölbreytt dagskrá. Ræðumaður Margrét Jónsdóttir forstöðumaður Löngumýrarskóla. Sr. Bolli Gústavsson flytur eigin ljóð. Hljóðfæraleikur - Blandaður kór, karlakór, tvísöngur og einsöngur. Ljósin á kertunum kveikt. Hefjum aðventuna í húsi Guðs. Pétur Þórarinsson. Akureyrarprestakall: Sunnudagaskólinn fer fram að Grund. Mæting við Akureyrar- kirkju kl. 10.30. Öll sunnudaga- skólabörn og foreldrar velkomin. Messað verður í Akureyrarkirkju n.k. sunnudag kl. 14.00. Flautusveit leikur undir stjórn Lilju Hallgríms- dóttur. Sálmar: 59 - 60 - 41 - 57 - 531. B.S. Kvenfélag Akureyrarkirkju verður með súkkulaði og heitar kleinur í kapellunni eftir messu. Byrjum jólaundirbúninginn með kirkjugöngu. Aðventukvöld verður í kirkjunni kl. 20.30. Ræðumaður verður Ólafur H. Oddsson héraðslæknir. Mikill söngur og hljóðfæraleikur. Helgistund og hin vinsæla ljósa- hátíð. Sóknarprestarnir. Fatnaður. Föt fást gefins föstudaginn 1. des. kl. 13.00-17.00. Komið og sjáið. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn, Hvannavöllum 10. Minningarkort Akureyrarkirkju fást í Bókvali og Blómabúðinni Akri í Kaupangi. KFUM og KFUK, 4 Sunnuhlíð. Sunnudaginn 3. des., almenn samkoma kl. 17.00. Ræðumaður Bjarni Guðleifsson. Tekið á móti gjöfum í hússjóð. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn, Hvannavöllum 10. IFöstudaginn kl. 17.30, opið hús. Kl. 20.00, æskulýður. Sunnudaginn kl. 11.00, helgunar- samkoma. Kl. 13.30, sunnudagaskóli. Kl. 19.30, bæn. Kl. 20.00, almenn samkoma. Mánudaginn kl. 16.00, heimilissam- bandið. Þriðjud. kl. 17.30, yngriliðsmanna- fundur. Allir eru hjartanlega velkomnir. HVÍTA5Ut1t1UKIfíKJAt1 ^hahdshlío Föstud. 1. des. kl. 20.30, bænasam- koma kvenna og kl. 22.00, almenn bænasamkoma: Laugard. 2. des. kl. 20.30, safnaðar- samkoma (brauðsbrotning). Sunnud. 3. des. kl. 11.00, sunnu- dagaskóli og sama dag kl. 16.00, vakningasamkoma. Mikill og fjölbreyttur söngur. Fórn tekin til kirkjubyggingarinnar. Allir eru hjartanlega velkomnir. leiðbeina byrjendum. Pílurnar er einnig hægt að fá á staðnum. Fljótlega á nýja árinu er síðan stefnt að því að halda fyrsta mót- ið í pílukasti hér norðanlands. Hlífarkonur á Akureyri: Selja jólakort til styrktar Bamadeild FSA - halda basar á morgun Kvenfélagið Hlíf og Minningar- sjóður Hlífar hafa gefið út jóla- kort og rennur allur ágóði af sölu kortanna til barnadeildar Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Kortin prýða myndir af lista- verkum eftir Eggert Pétursson myndlistarmann, einnig er mynd af skírnarfonti, skorinn af bræðr- unum Kristjáni og Hannesi Vig- fússonum frá Litla-Árskógi og mynd af altaristöflu úr íslenskum steini, sem gerð er af Ágústi Jónssyni. Kortin fást í Bókabúðinni Eddu og Bókabúð Jónasar og þau verða einnig til sölu á basar Hlífarkvenna í Verslunarmið- stöðinni Sunnuhlíð á morgun laugardag kl. 14. Par verða til sölu m.a. kökur, jólakort og fl. Bændur - Bændur Boðað er til fundar allra mjólkurframleiðenda á samlagssvæði KEA mánudaginn 4. des. kl. 21.00 að Hótel KEA Akureyri. Fundarefni: Samskipti afurðastöðva og bænda. Frummælendur: Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri og Haukur Hall- dórsson, formaður Stéttarsambands bænda. Stjórn félags eyfirskra nautgripabænda. Ný verslun opnar í dag, föstud. 1. desember að Hólabraut 11 kl. 10.00 (í gömlu Fatahreinsuninni) og mun versla með föt, jólaskraut og margt fleira allt á alveg ótrúlegu verði. T.d. buxur á kr. 1490,- og ýmislegt frá kr, 100,- uppí 500,- kr. Marksf. Holabraut 11-Sími 26171 Hólabraut 11 -Sími 26171. Föstudagur 1. desember 1989 - DAGUR - 13 AKUREYRARB/tR Ritari Laus er til umsóknar Vi staða ritara við Síðu- skóla frá 1. janúar 1990. Laun samkvæmt kjarasamningi STAK og Akur- eyrarbæjar. Upplýsingar um starfið gefa starfsmannastjóri í síma 21000 og skólastjóri í síma 22588. Umsóknarfrestur er til 8. desember. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild. í þróttaken nar i Vegna forfalla vantar íþróttakennara í heila stöðu við Síðuskóla frá áramótum. Um er að ræða 34 stunda kennslu í íþróttum og sundi. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri Jón Baldvin Hannesson í síma 22588. Bæjarstjórinn á Akureyri. Illl framsóknarmenn llll AKUREYRI Bæjarmálafundur verður haldinn mánudaginn 4. desember að Hafnarstræti 90 kl. 20.30. Rætt um dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar. Þeir, sem sitja í nefndum hjá Akureyrarbæ fyrir Framsóknarflokkinn, eru eindregið hvattir til að mæta og einnig varamenn. Eiginkona mín og móðir okkar, MARZELÍNA KJARTANSDÓTTIR, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 30. nóvember. Helgi H. Haraldsson og börn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, AÐALHEIÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR, frá Arnarnesi. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur S. Árnason, Guðmundur S. Guðmundsson, Gunnhildur S. Guðmundsdóttir, Stefán Pórisson, Sesselija B. Guðmundsdóttir, Jón H. Pálsson, Unnur Guðmundsdóttir, Birgir H. Þórhallsson, Svava F. Guðmundsdóttir, Júltus H. Kristjánsson, Heiðbrá Guðmundsdóttir, Sigurður M. Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.