Dagur - 01.12.1989, Blaðsíða 16

Dagur - 01.12.1989, Blaðsíða 16
M3W Akureyri, föstudagur 1. desember 1989 Bautinn getur séÖ um allt til veislunnar Húsnæði, veitingar og starfsfólk. Tökum á móti bókunum fyrir JAÐAR og Laxdalshús. Hafið samband í síma 21818. Þessa dagana er verið að vinna af krafti við Otur EA 162 hjá Slippstöðinni á Akureyri, en viðgerðum á að ljúka 20. janúar. Búið er að skipta um brú eins og sést á myndinni, en Gunnar Arason, framleiðsiustjóri, segir að vistarverur áhafnarinnar verði einnig innréttaðar frá grunni, skipt um rafkerfi í brú og íbúðum o.fl. Otur EA er 19 ára, hann var lengdur á Akureyri fyrir þremur árum. Mynd: kl Golfklúbbur Akureyrar: Rætt um að bjóða erlendum kylfingum aðild að klúbbnum - stöndum á bremsunni og vonumst eftir auknum tekjum, segir Gunnar Sólnes, formaður Golfklúbbs Akureyrar „Ég held að staða okkar sé ekki verri en margra annarra íþróttafélaga. Við höfum verið að velta skuldum á undan okk- ur vegna mikilla framkvæmda og fjármagnskostnaðurinn hef- ur reynst þungur. Við erum búnir að stíga á bremsuna og gerum okkur góðar vonir um auknar tekjur,“ segir Gunnar Sólnes, formaður Golfklúbbs Akureyrar Að sögn Gunnars Sólnes eru skuldir Golfklúbbs Akureyrar um 25 milljónir króna. Hann seg- ir þá tölu vissulega háa en bendir á að fleiri golfklúbbar búi við erf- iða fjárhagsstöðu vegna mikilla framkvæmda. í því sambandi nefnir Gunnar Golfklúbb Suður- nesja. „Við búumst við tekjum af auglýsingum og þá munum við halda mót sem koma til með að gefa okkur vel í aðra hönd. Ég nefni í því sambandi Arctic Open Slysið á Öxnadalsheiði: Nafn hins látna Flutningabílstjórinn sem slasaðist á Öxnadalsheiði að kvöldi þriðjadagskvölds lést í fyrrakvöld á sjúkrahúsi í Reykjavík. Hinn látni hét Sveinn Stefánsson, 49 ára gamall, til heimilis að Ægis- byggð 6 í Ólafsfirði. Sveinn hefur á undanförn- um árum annast vöruflutninga milli Reykjavíkur og Ólafs- fjarðar. Hann lætur eftir sig eigin- konu og fjórar dætur á aldrin- um fimm tii tuttugu og þriggja ára. óþh og Landsmótið í golfi sem verður haldið á Jaðarsvelli næsta sumar,“ segir Gunnar. Tekjur af mótum sem þessum segir formaður golfklúbbsins umtalsverðar, bæði vegna móts- gjalda og veitingasölu tengdri mótunum. Þátttökugjaldið á Arctic Open verður 100 pund á kylfing. Arctic Open golfmótið nýtur vaxandi vinsælda að sögn Gunn- ars og þátttakendur verða með mesta móti sumarið 1990. Sem dæmi nefnir hann að frá Kanada komi að öllum líkindum um 100 manna hópur kylfinga. Kanada- mennirnir áætla að leigja þotu til Frónferðar og lenda hér á Akur- eyri. „Ekki er ólíklegt að við náum samningum við erlenda aðila um aðild að Arctic Open. Hugmyndin er að þeir fái nöfn sín á mótið en í staðinn greiði þeir verulegar fjárupphæðir," segir Gunnar. Þá segir hann það einnig hafa verið rætt að bjóða erlendum aðilum aðild að Golf- klúbbi Akureyrar og þannig megi Eins þreps 24,5% virðisauka- skattur kemur í stað núgild- andi söluskattskerfis um næstu áramót samkvæmt samkomu- lagi ríkisstjórnarflokkanna síð- degis í gær. Forsætisráðherra tilkynnti þetta í umræðum á Alþingi í gærkvöld um van- traust á ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar. Virðisaukaskatturinn verður endurgreiddur að hluta á algeng- auka fastar tekjur klúbbsins. „Það kann að skapa okkur umtalsverðar tekjur að bjóða erlendum kylfingum aðild að klúbbnum. Þetta hefur verið rætt innan stjórnar. Við vitum að margir aðilar erlendis hafa sýnt áhuga á aðild að klúbbnum.“ Bruni skála Golfklúbbs Akur- eyrar í janúar 1988 hefur reynst klúbbnum erfiður. Endurbygging skálans tók sinn fjárhagslega toll og segir Gunnar að sú fram- kvæmd sé mikill baggi á klúbbnum. „Vegna brunans misstum við skálann úr rekstri um tíma og misstum um leið af umtalsverðum tekjum.“ Gunnar bendir á að í umræðu um fjárhagsstöðu Golfklúbbs Akureyrar megi menn ekki gleyma því að eignir hans séu umtalsverðar og langt umfram skuldir. „Brunabótamat húseigna á svæðinu er yfir 40 milljónir króna og ég hygg að ef völlurinn yrði metinn til fjár væri mat hans á bilinu 50-100 milljónir króna,“ segir Gunnar Sólnes. óþh ustu innlendu matvælunum, fiski, dilkakjöti, mjólk og fersku græn- meti. Gert er ráð fyrir að þessar vör- ur lækki um 7-8% en vörur lækki almennt um sem næst 2%. Tekju- skattur hækkar á móti um 2% og þá er einnig miðað við hækkun á persónuafslætti og helmingi tekna ríkisins vegna hækkunar á tekjuskatti verði varið til hækk- unar barnabóta. óþh Samkomulag stjórnarflokkanna í gær: 24,5% „vaskur“ um áramótin - algengustu nauðsynjar lækka um 7-8% Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson: Endurtekið útboð vegna viðgerðarinnar? Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson bíður ennþá við- gerðar, og er ekki vitað hvaða innlend skipasmíðastöð mun fá verkið. Samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun var samin álitsgerð hjá stofnuninni um hvernig að málinu skuli staðið, og var álitsgerð þessi send sjávar- útvegsráðuneytinu til athugunar. Ekki hefur neitt verið gefið upp um innihald þess plaggs, og er það trúnaðarmál að sögn starfs- manna stofnunarinnar. Undanfarið hafa þær raddir heyrst að efnt verði til nýs útboðs vegna viðgerðanna á Árna Friðrikssyni, og reynt að fá fram lægra tilboð með samkeppni milli innlendra aðila. Þetta hefur þó ekki fengist staðfest, en viðgerð- inni verður að ljúka í apríl á næsta ári. Til að ná því markmiði verður að hefjast handa fljótlega, því vinnan við skipið tekur fjóra mánuði. EHB Þrotabú Vinkils sf. á Akureyri: Engin tilboð enn í eignir - vitað af nokkrum á leiðinni Engin formleg tilboð hafa bor- ist í eignir þrotabús Vinkils sf. á Akureyri, en að sögn bústjóra, Ásgeirs Björnssonar, hefur hann spurnir af því að von sé á nokkrum tilboðum í eignir þrotabúsins, húsnæði og vélar. Ásgeir kvað of snemmt að spá um hvort tækist að selja allar eignir þrotabúsins til eins aðila, en hann vonaðist til að það yrði niðurstaðan. „Það kom fjöldi manns að skoða eignir þrotabúsins þegar þær voru auglýstar til sölu á dögunum og margir þeirra tjáðu mér að þeir myndu gera tilboð í eignirnar. Það tekur hins vegar tíma fyrir menn að reikna dæmið til hlítar,“ segir Ásgeir. Hann segir að bæði heimamenn og utanaðkomandi aðilar hafi sýnt eignum þrotabúsins áhuga. Eink- um hafi aðili utan Akureyrar sýnt áhuga á að kaupa vélarnar. „Eg er nú á fullu í að setja mig í samband við veðhafa því ég get ekkert gert nema í fullu samráði við þá,“ sagði Ásgeir. Stærstu veðhafarnir eru Byggðastofnun, Alþýðubankinn, Akureyrarbær og lífeyrissjóðir. óþh STOÐUGLEIKI OGTRAUST -----------•---------- Undirstaða arðbærs sparnaðar -----------•---------- Fjárfestingarfélag íslands h.f. var stofnað 1971 skv. lögum frá Alþingi. -----------•---------- Hluthafar í Fjárfestingarfélagi íslands h.f. eru yfir 400 talsins. Peirra stærstir eru: HF. EIMSKIPA- FÉLAG ÍSLANDS, VERSLUNARBANKI ÍSLANDS HF. og LÍFEYRISSJÓÐUR VERSLUNARMANNA. Ob FJÁRFESTINGARFÉLAG ÍSIANDS HF. Ráðhústorgi 3, Akureyri, sími 25000

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.