Dagur - 01.12.1989, Blaðsíða 14

Dagur - 01.12.1989, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 1. desember 1989 Hcstmvmr tiCpfyjcfa ★ Rdðskáímar ★ Reiðbuxur ★ Hnakkar ★ Stakkar ★ Reiðstígvél Gott úrvoí ★ Byggingavönir Lónsbakka Sfmi 96-21400 Sýnum Subaru Legacy 1,8 GL árg. 1990 í sýningarsal okkar að Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar, Óseyri 5, er sýningarbíll á staðnum. Einnig sýnum við: Nissan Sunny, Nissan Pathfinder og Nissan Patrol Sölxistjóri Ingvars Helgasonar verður á staðnnm á laugardag. Sýningin er opin milli kl. 2 og 5 laugardag og sunnudag. Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri. v_________________________________________/ Endurskinsmerki fZggif umferðinni. Dökkklæddur vegfarandi sést ekki fyrr en í 20 — 30 m. fjarlægö en meö endurskinsmerki sést frá lágljósum bifreiðar, hann í 120 —130 m. fjarlægð. Minning: scar Larsen fyrrum ræðismaður íslands í Álasundi Hinn 1. desember verður til moldar borinn í Álasundi í Nor- egi Oscar Larsen, framkvæmda- stjóri og fyrrum ræðismaður íslands. Hann andaðist 23. nóvember eftir stutta sjúkdóms- legu, áttatíu ára að aldri. Þegar Oscar Larsen baðst lausnar frá ræðisstarfinu 1986, hafði hann verið ræðismaður íslands í Álasundi síðan 1949, eða lengur en nokkur annar af kjörræðismönnum íslands í Nor- egi. Ungur að árum tók hann við stjórn fiskútflutningsfyrirtækis þess, sem faðir hans hafði rekið, og stýrði því áfram af dugnaði, festu og forsjálni. Oscar Larsen var mikill átt- hagavinur og tók virkan þátt í málefnum bæjarfélagsins. Eink- um var honum annt um að varð- veita hinn sérstæða svip og sögu- legar menjar Álasunds. Hann var fjársjóður af fróðleik um byggð- arlagið og íbúa þess, og kunni ógrynni af sögum og skrýtlum. Frásagnargáfa hans var orðlögð, og eru margar af sögum hans varðveittar á segulbandi í byggðasafni bæjarins. Hann var gleðimaður mikill, hafði yndi af tónlist, einkum kórsöng, og var söngmaður góður og söng bassa í karlakór staðarins, Heibergs Mandskor. Hann var á æfingu með kórnum tveimur vikum áður en hann dó, og Iék þá við hvern sinn fingur. Eins og að Iíkum lætur var Oscar Larsen mikill íslandsvinur og gerði sér annt um sambandið við ísland, og þá sér í lagi vina- bæinn Akureyri. Hann átti og drjúgan þátt í því að koma upp talsverðu safni af íslenskum bók- um í bókasafni Álasunds. Oscar Larsen var gjörvilegur ásýndum og var glæsileik þeirra hjóna beggja viðbrugðið. Voru þau höfðingjar heim að sækja, og margir eru þeir íslendingar sem notið hafa gestrisni þeirra og hjálpfýsi. Oscar Larsen var sæmdur stór- riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu, í viðurkenningarskyni fyrir margvísleg og ósérplægin störf í þágu íslands. Ég kynntist Oscari Larsen fyrir fjörutíu árum er ég starfaði í sendiráði íslands í Osló. Frá þeim tíma geymi ég minningar um drengskap, heiðarleika, hlýja vináttu og traust samstarf. Fyrir það samstarf þakka ég nú með þessum línum. Frú Hildu, ekkju hans, dætrum þeirra hjóna og barnabörnum vottum við hjónin fyllstu samúð. Osló, 28. nóvember 1989, Haraldur Kröyer. Norðurland eystra: Stofimn samtaka um sorg og sorgarviðbrögð - stofnfundur í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju á þriðjudagskvöld Nú um nokkurt skeið hefur verið stefnt að því að koma á fót sam- tökum sem hafa það markmið að styðja við bakið á þeim sem ýmissa hluta vegna eiga við sorg að glíma. Slík samtök hafa starf- að í tvö ár á suðvesturhorninu, og gert mjög góða hluti. Pað dylst engum sem fylgist með mannlífinu og umgengst annað fólk að þörfin fyrir slík samtök er mikil. Ástvinamissir, hvernig sem hann ber að, er alltaf sár og þeir einstaklingar sem misst hafa eiga oft á tíðum erfitt með að finna sig og fóta í samfélaginu á ný. Einnig eiga margir einstaklingar um sárt að binda eftir hjónaskilnaði, eða ólán innan fjölskyldunnar sem særir og meiðir. Brekka-Glerárhverfi Innbær-Brekka Ekið frá Þórunnarstræti á klst. fresti Tímatafla: Taflan sýnir mínútur yfir heilan tíma Þórunnarstræti 0,10 Skógarlundur 0,14 Ráðhústorg (tímajöfn.) 0,20 Höfðahlíð 0,25 Teigarsíða 0,28 Miðsíða (tímajöfn.) 0,32 Ráðhústorg (tímjöfn.) 0,40 Aðalstræti 0,45 Kaupvangsstræti 0,48 Hamarstígur 0,52 Skógarlundur 0,56 Þórunnarstræti 0,00 Hér í Norðurlandskjördæmi eystra hefur verið ákveðið að stofna Samtök um sorg og sorgar- viðbrögð nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30 í Safnaðarheimili Akureyr- arkirkju. Undirbúningsfundur var hald- inn fimmtudaginn 23. nóvember sl. og síðan hefur nefnd starfað og lagt grunn fyrir þennan stofnfund. Það hefur verið nokkuð út- breiddur misskilningur að þessi samtök séu einungis fyrir þá sem hafa nýverið orðið fyrir ástvina- missi og það mjög skyndilega. Slíkt er af og frá. Samtökin eru öllum opin, sem eiga við sorg að stríða eða vilja á einn eða annan hátt leggja sitt af mörkum til stuðnings þessum málum. Brekka-Oddeyri-Glerárhverfi Oddeyri-Brekka Ekið frá Þórunnarstræti á klst. fresti Tímatafla: Taflan sýnir mínútur yfir heilan tíma Þórunnarstræti 0,40 Skógarlundur 0,44 Ráðhústorg (timajöfn.) 0,50 Grenivellir 0,54 Hörgárbraut 0,57 Miðsíða (tímajöfn.) 0,01 Teigarsíða 0,04 Höfðahlíð 0,08 Grenivellir 0,15 Ráðhústorg (tímajöfn.) 0,18 Hamarstígur 0,24 Skógarlundur 0,26 Þórunnarstræti 0,30 Markmiðið er í raun að styðja syrgjendur og þá sem vinna að velferð þeirra. Þess vegna er allt áhugafólk um þessi mál á Norðurlandi eystra hvatt til að sækja þennan fund nk. þriðju- dagskvöld 5. desember, eða láta í sér heyra til undirbúningsnefnd- arinnar, sem einnig gefur allar nánari upplýsingar. í nefndinni eru: Éirgir Snæbjörnsson s. 23210, Valgerður Valgarðsdóttir s. 22839, Ásgeir Bragason s. 22829, Sigmundur Sigfússon s. 24078, Kristín Harðardóttir s. 21989, Ólöf Ananíasdóttir s. 27117, Ragnheiður Erla Bjarna- dóttir s. 51172, og Pétur Þórar- insson s. 27676. Leiðrétting í frétt á forsíðu Dags sl. miðviku- dag um vanda loðdýrabænda slæddist inn sú meinlega villa að búið væri að samþykkja á Alþingi frumvarp um skuldbreytingu lána loðdýrabænda. Hið rétta er að búið er að leggja frumvarpið fram í þinginu en það er enn óafgreitt. í desember verður ekið á laugardögum frá enda stöð við Þórunnarstræti á 30 mín. fresti. 2. desember frá kl. 9.10 til kl. 14.40. 9. desember frá kl. 9.10 til kl. 18.40. 16. desember frá kl. 9.10 til kl. 22.40. 23. desember frá kl. 9.10 til kl. 23.40.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.