Dagur - 01.12.1989, Page 5
Föstudagur 1. desember 1989 - DAGUR - 5
Ferðamálaráð fær aðeins 20%
af lögbimdnum tekjustofni í ár
- fær 35 milljónir til ráðstöfunar á næsta ári
en ætti að fá 145 milljónir
í ár fær Ferðamálaráð íslands
aðeins tæp 20% af lögboðnum
tekjustofni sínum. Samkvæmt
frumvarpi til fjárlaga fyrir árið
1990 fær það aðeins 36 milljón-
ir til ráðstöfunar en ætti sam-
kvæmt áætlunum um vörusölu
Fríhafnarinnar á næsta ári að
fá í sinn hlut um 145 milljónir.
Á fundi í Ferðamálaráði, sem
haldinn var 22. nóvember sl. var
sífelldri skerðingu á tekjustofni
ráðsins mótmælt. Samkvæmt 8.
gr. laga nr. 79/1985, ber Ferða-
málaráði að fá 10% af sölu Frí-
hafnarinnar á Keflavíkurflug-
velli. Krafðist fundurinn þess að
farið yrði að lögum í þessum
efnum, bæði um upphæð greiðslu
og tilhögun hennar, en í sömu
lögum eru ákvæði um að Fríhöfn-
in skili fénu beint til ráðsins.
í greinargerð, sem lögð var
fram á fundinum segir m.a.:
„Þegar lög um skipulag ferða-
mála voru sett árið 1976 var
Ferðamálaráði markaður ákveð-
inn tekjustofn, sem var 10% af
árlegri sölu Fríhafnarinnar í
Keflavík. Til þess að ríkissjóður
missti ekki spón úr sínum aski
var um leið verð í Fríhöfninni
hækkað um 10%. Þegar á fyrsta
ári var gengið gegn þessu ákvæði
laganna og hefur svo verið allar
götur síðan.
Fjársvelti
Við endurskoðun laganna árið
1985 reyndi Alþingi að tryggja
Ferðamálaráði þennan tekju-
stofn með sérstöku ákvæði þess
efnis, að Fríhöfnin greiddi „gjald
þetta beint til Ferðamálaráðs af
sölu hvers mánaðar". Allt kom
fyrir ekki, og hefur hlutur Ferða-
málaráðs farið lækkandi hin síð-
ari ár.
Fjársvelti hefur gert Ferða-
málaráði gjörsamlega ókleift að
gegna hlutverki sínu og sinna
þeim verkefnum sem kveðið er á
um í lögum, en samkvæmt þeim
skal Ferðamálaráð verja ráð-
stöfunarfé sínu á eftirfarandi
hátt:
a) Til að veita einkaaðilum og
opinberum aðilum styrki til að
koma upp eða endurbæta að-
stöðu fyrir ferðamenn.
b) Til landkynningaverkefna á
vegum Ferðamálaráðs.
c) Til Ferðamálasjóðs til
styrkveitinga.
Verkefni Ferðamálaráðs eru
enn frekar sundurliðuð og talin
upp í 13 atriðum, þar sem ráðinu
er m.a. ætlað að hafa frumkvæði
að fegrun umhverfis og góðri
umgengni á viðkomu- og dvalar-
stöðum ferðafólks, skipuleggja
nám og þjálfun fyrir leiðsögu-
menn og aðra aðila í ferðaþjón-
ustu, taka þátt í fjölþjóðlegu
samstarfi um ferðamál, veita
ráðgjöf, aðstoð og upplýsingar
o.s.frv., o.s.frv.
Það er alkunna, að fjöldi er-
lendra ferðamanna hefur farið
sífellt vaxandi á síðustu árum.
Þannig hefur aukningin numið
um 60% á síðustu 5 árum, og
gæti áframhaldandi aukning orð-
ið um 7% á hverju ári ef rétt er á
málunum haldið. Jafnframt ferð-
ast íslendingar í síauknum mæli
um eigið land.
Kaka Ferðamálaráðs. Litla sneiðin
sýnir fjárframlagið sem ráðið fær í
ár en kakan öll táknar það sem lögin
ætla Ferðamálaráði.
Engin skipuleg uppbygging
hefur átt sér stað til þess að mæta
þessari gífurlegu aukningu, og er
nú svo komið að margir fjölsóttir
ferðamannastaðir eru í hættu,
auk þess sem aðstaða til móttöku
ferðamanna er víða til Iítils
sóma.
Vaxandi vægi
ferðaþjónustu
Vægi ferðaþjónustu er sívaxandi
í atvinnulífi landsmanna. Gjald-
eyristekjur af erlendum ferða-
mönnum nema um 9% af allri út-
fluttri vöru og þjónustu fslend-
inga og gætu beinar tekjur af
ferðamönnum orðið um eða yfir
10 milljarðar á þessu ári. Fjöldi
ársverka hefur aukist stöðugt
undanfarin ár og mun nú vera
rúmlega 5 þúsund. Fjárfesting á
bak við hvert starf í ferðaþjón-
ustu er lítil í samanburði við
flestar aðrar atvinnugreinar.
í ferðaþjónustu er margir kost-
ir ónýttir og ekki vafamál að
margfalda má gjaldeyristekjur af
greininni, ef rétt er á málum
haldið. Mikilvægt er að vinna
markvisst að nýtingu þessara
kosta og gæta þess jafnframt að
vernda þá auðlind, sem greinin
byggir fyrst og fremst á, þ.e.
landið sjálft og dýrmæta náttúru
þess.
Ferðamálaráð mótmælir enn
því fjársvelti, sem það hefur mátt
sæta alla tíð og skorar á fjárveit-
ingavaldið að tryggja ráðinu lög-
boðnar tekjur þess. Að öðrum
kosti getur Ferðamálaráð enga
ábyrgð borið á þróun ferðamála
né afleiðingum hennar."
VIRÐISAUKASKATTUR Á VEITINGAHÚS Á
NORÐURLÖNDUNUM OG í LÖNDUM EB
FJÖLDl ERLENDRA FERÐAMANNA
TIL ÍSLANDS 1960-1988
Borðápantanir í síma 22200
HOTEL KEA
Hótel KEA
Laugardagurinn 2. desember
Hin frábæra hljómsveit
INGIMARS EYDAL
leikur fyrir dansi.
ATH! Síðasti dansleikur ársins
á Hótel KEA
S^ksti