Dagur - 01.12.1989, Síða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 1. desember 1989
HöUursf.
BflASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
Vélsleðar
Polaris Yndi Cross country
upptekinn vél. Verð 300.000.
Eigum á söluskrá
Artic Cat El Tigre ’87.
Artic Cat Cougar ’89.
Artic Cat Cheetah ’87.
Artic Cat Cheetah ’89.
Polaris 400 SKS ’88.
★
Greiðslukjör
við allra hæfi
'mÆíUMM
Höldursf.
BIIASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
Artic Cat Cheetah 97 HÖ., árg.
’87, ek. 500 míl. Verð 420.000.
Artic Cat Wild Cat árg. ’89, ek.
2000 míl. Verð 620.000.
Artic Cat JAG árg. ’89, ek. 900
míi. Verð 430.000.
Yamaha SRV árg. ’83, ek. 2600
km. Verð 350.000.
Alnæmi og æska -
alþjóða alnæmisdagur í dag
Á alþjóðlegri ráðstefnu gegn
alnæmi sem haldin var í
London snemma árs 1988, var
ákveðið að 1. desember það ár
skyldi helgaður alnæmisvörn-
isstofnunarinnar í maí 1989 var
ákveðið að gera þennan dag að
árlegum viðburði. í dag, 1. des-
ember, verður þema dagsins
alnæmi og æska.
Landsnefnd um alnæmisvarnir,
í samvinnu við heilbrigðisráðu-
neytið og landlæknisembættið, sá
um að undibúa það að alnæmi og
æsku yrðu gerð skil þann dag í
fjölmiðlum og annars staðar með
þeim hætti sem kosið er og eðli-
legt þykir.
í fræðsluhefti sem Alþjóða-
heilbrigðisstofnunin gerði fyrir
fjölmiðla koma fram ýmsar
brennandi spurningar um
alnæmi, einkenni þess, smitleið-
ir, varnir gegn því o.fl.
Til að fræða lesendur um efni
heftisins fara hér á eftir nokkrar
spurningar og svör úr því.
Hvernig get ég varið sjálfan
mig alnæmissmiti?
Tryggast er að eiga einn trú-
fastan maka. Annars skal ætíð
nota smokk við kynmök og forð-
ast tíð skyndikynni.
Hvenær á að nota smokk?
Nota skal smokk í hvert sinn er
höfð eru mök við einhvern sem
ekki er fastur maki og þegar höfð
eru mök við einhvern sem kann
að vera smitaður.
Ef ég er smitaður, get ég þá
haft kynmök?
Pað er algerlega óhætt að
faðma, strjúka og nudda. En all-
ar kynlífsathafnir, sem hafa í för
með sér að sýktur líkamsvessi
kemst í snertingu við slímhúð
kynfæra hjá ósýktum einstakl-
ingi, hefur smithættu í för með
sér.
Get ég séð á fólki hvort það er
smitað af alnæmi eða ekki?
Nei það er ekki nokkur leið að
sjá utan á fólki hvort það er smit-
að eða ekki. Mjög margir sem
eru smitaðir af alnæmisveirunni
líta hraustlega út og líður vel í
langan tíma, þ.e. eru frískir smit-
berar og gera smitað aðra.
Get ég verið smitaður af
alnæmi en samt ekki verið veik-
ur?
Já inargir sem eru smitaðir af
alnæmisveirunni eru alls ekki
veikir af hennar völdum. Þeir
munu að öllum líkindum veikjast
seinna, en liðið geta mörg ár
þangað til.
Ef ég er smitaður og ekki veik-
ur, hvert er þá vandamálið?
Það eru tvö vandamál. í fyrsta
lagi munt þú sennilega veikjast
seinna meir, mánuðum eða
mörgum árum seinna. í öðru lagi
þá getur þú smitað aðra með kyn-
mökum og með blóði þínu.
Hvernig veitir smokkur vörn
við alnæmi og öðrum kynsjúk-
dómum?
Sé smokkur notaður rétt, þá
nær hvorki sæði né slím úr leg-
göngum (sem og blóð) að berast
milli einstaklinga í samförum.
Þar sem alnæmisveiran er í þess-
um vökvum, þá kemur smokkur í
veg fyrir að vökvarnir berist frá
einum einstaklingi yfir í annan.
Er hættulegt að snerta eða vera
nálægt smituðum, s.s. að takast í
hendur eða sitja saman yfir glasi?
Nei, alls ekki. Alnæmi smitast
ekki manna á milli í daglegum
samskiptum. T.d. þá smitast
alnæmi ekki með handabandi eða
við aðra snertingu, ekki með
hnerra eða hósta, ekki af salern-
um, ekki með mætvælum eða
matarílátum og ekki við að sitja
saman og spjalla.
um.
Á vorfundi Alþjóðaheilbrigð-
Ólafsfirðingar í starfskynningu
Þessir rösku strákar heimsóttu okkur á Degi fyrr í vikunni til að kynna
sér í hverju starf blaðamannsins er fólgið. Þeir eru nemendur fram-
haldsdeildar Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar og var heimsóknin hluti af
starfskynningarverkefni skólans. Strákarnir létu sig ekki muna um að
skrifa nokkrar fréttir meðan þeir stöldruðu við, m.a. fréttina hér að
ofan. Auk þess kynntu þeir sér vinnsluferil blaðsins gaumgæfilega.
Þessir upprennandi blaðamenn eru 17 ára gamlir og heita Sigurbjörn
Gunnarsson og Eggert Óskarsson. Mynd:KL
bœkur
TÓNLIST
Tónlist og
hljóðfæri
í bókinni Tónlist og hljóðfæri,
sem Vaka-Helgafell sendir nú á
markað er fjallað um hljóðfærin
og hvernig þau eru notuð til að
túlka tónlistina - allt frá einföld-
ustu flautum og bumbum til
flóknustu hljóðfæra nútímans.
Tónlist og hljóðfæri er þriðja
bókin sem Vaka-Helgafell gefur
út í fjölfræðibókaflokknum
Heimur í hnotskurn. Bækurnar
eru unnar í samvinnu breskra og
franskra bókaforlaga og hafa
hvarvetna hlotið lof og alþjóð-
lega viðurkenningu fyrir nýstár-
lega framsetningu og myndrænar
útskýringar.
Brautryðjendaverk hefur verið
unnið við þýðingu bókarinnar.
Hana önnuðust tólf sérfræðingar,
hver á sínu sviði, en Guðmundur
Emilsson tónlistarstjóri var rit-
stjóri þýðingarinnar og Árni
Böðvarsson málfarsráðunautur
var til ráðuneytis um málfar. Hér
er gerð tilraun til að þýða á
íslensku orð sem ekki hafa verið
til áður og samræma hugtaka-
notkun.
Sólejjarsumar
Út er komin hjá Bókaútgáfunni
Hildi bókin Sóleyjarsumar eftir
Guðmund Halldórsson frá Bergs-
stöðum.
Guðmundur frá Bergsstöðum
hefur fyrir löngu fest sig í sessi
sem vinsæll sagnahöfundur, enda
sækir hann yrkisefni sín beint til
daglegs strits og stríðs fólksins í
byggðum landsins. í þessari bók
lýsir höfundur lífi ungra manna á
fyrri hluta þessarar aldar, sem í
dag myndu vera kallaðir fram-
kvæmdamenn.
Sóleyjarsumare r 160 blaðsíður
að stærð.
Iifsþræðir
Út er komin verðlaunaskáldsag-
an Lífsþræðir, eftir Sigríði Gunn-
laugsdóttur. Þetta er fyrsta bók
höfundar en áður hefur birst eftir
hana smásaga í safninu Haukur í
horni.
Sigríður hlaut 1. verðlaun í
smásagnasamkeppni IOGT fyrir
þessa athyglisverðu sögu. í
umsögn dómnefndar var lögð
áhersla á frumlegan stíl og já-
kvætt lífsviðhorf höfundar.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: ,,„Átturnar“ voru þær kall-
aðar, átta skólasystur á Laugar-
vatni. Samheldinn hópur en leið-
ir skildu eftir stúdentspróf. Hver
hélt í sína átt. Síðan eru liðin 20
ár. Ein úr hópnum býður hinum
heim. Minningar vakna. Ýmis-
legt hefur á daga drifið; margt
farið öðruvísi en ætlað var; ann-
að eins og að var stefnt. Það er
tilhlökkunarefni að hittast. Samt
reynist sumum það sárt. Lífs-
þræðir eru stundum einkennilega
ofnir ..."
Árni í Hólminum
- Engum líkur!
Út er komin bókin Árni í Hólm-
inum - Engum líkurl, æviþættir
Árna Helgasonar í Stykkishólmi,
fyrrum sýsluskrifara og póst-
meistara, en hann er einnig
kunnur sem höfundur bráð-
skemmtilegra og landsfleygra
gamanvísna. Eðvarð Ingólfsson
skráði.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Margir munu fagna því að loks-
ins er komin út samtalsbók við
Árna, þjóðsagnapersónu í
lifanda lífi, þar sem hann segir
frá því helsta sem á daga hans
hefur drifið. Ýmsum mun leika
forvitni á að vita að hve miklu
leyti sögurnar, sem um hann eru
sagðar, eru sannar. Það skýrist í
bókinni.
Árni hefur kynnst þeim fjölda
fólks að ótrúlegt er. Hann á ótal
vini um allt land. Honum hafa
staðið að heita má allar dyr opnar
- ef ekki, hefur hann opnað þær
sjálfur.“
Bókin er 229 bls. að stærð.
Útgefandi er Æskan.
Rás 2 kl. 14.00 1 2 3
Spilakassinn l Spilakassinn, getraunaleikur ^ Rásar 2 er á dagskrá á 4 sunnudag. 5 Umsjónarmaður er Jón Gröndal og dómari Adolf Petersen. ° Svör sendist til: 7 Spilakassinn 8 Ríkisútvarpið g Efstaleiti 1 150 Reykjavík. ^