Dagur - 01.12.1989, Síða 11
bœkur
Föstudagur 1. desember 1989 - DAGUR - 11
-J
Hínsti heimur
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér skáldsöguna Hinsti heim-
ur eftir Austurríkismanninn
Christoph Ransmayr. Kristján
Árnason þýddi.
Ágústus keisari hefur fellt
dóm yfir skáldinu Óvíd og vísað
honum brott úr rómverska ríkinu
til útlegðar á enda veraldar - í
útkjálkaþorp við Svartahaf. Vin-
ur skáldsins - Kotta - heldur
þangað mörgum árum síðar til að
fregna um afdrif útlagans. En
Óvíd er horfinn. Er hann látinn
eða hefur hann endanlega sagt
skilið við samfélag manna?
í kynningu Forlagsins segir
m.a.: „Hinsti heimur er stórbrot-
ið skáldverk sem hlaut óskipta
athygli þegar það kom út haustið
1988. Sagan hefur hlotið lof sem
minnir helst á undirtektirnar sem
Ilmurinn hlaut í Þýskalandi á sín-
um tíma. Urn þessar mundir
kemur Hinsti heimur út á öllum
helstu þjóðtungum Evrópu og
Christoph Ransmayr er hylltur
sem eitt af öndvegisskáldum sam-
tímans.“
Hinsti heimur er 256 bls.
Guðrún Ragnarsdóttir hannaði
kápu.
hér & þar
Fallegi flug-
hvalurinn
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér bókina Fallegi flughvalur-
inn eftir Ólaf Gunnarsson rithöf-
und. Bókin er fagurlega mynd-
skreytt af bandarísku listakon-
unni Joan Sandin. Hún hefur
samið og myndskreytt um sextíu
bækur og unnið til margvíslegra
verðlauna fyrir list sína. Ólafur
Gunnarsson er lesendum að góðu
kunnur fyrir skáldsögur sínar og
þætti í blöðum og tímaritum, en
Fallegi flughvalurinn er fyrsta
barnabókin frá hans hendi.
Þetta er sagan um litla hvalinn
sem uppgötvaði einn góðan veð-
urdag sér til mikillar furðu að
hann gat flogið um allan heim.
Og þegar sólinni ofbauð vonska
heimsins og ákvað að hætta að
skína, þá flaug litli flughvalurinn
upp til hennar og bað hana að
miskunna sér yfir mennina og
byrja aftur að skína. Það gerði
hún en með einu skilyrði . . .
Þetta gullfallega ævintýri ferð-
ast víða um þessar mundir - rétt
eins og litli flughvalurinn - því
sagan kemur samtímis út á
íslensku, dönsku, norsku og
sænsku.
Fallegi flughvalurinn er.32 bls.
Bókin er prentuð í Portúgal og
gefin út í samvinnu við Carlsen
forlag í Kaupmannahcfn.
I
Týndar slóðir
Iðunn hefur gefið út nýja bók
sem nefnist Týndar slóðir og er
eftir Pyllis A. Whitney. Þetta er
sextánda bókin sem út kemur á
íslensku eftir þennan vinsæla höf-
und og fjallar á óvenjulegan og
spennandi hátt um ástir og örlög
ungrar konu.
Jennifer Blake er staðráðin í
að komast að sannleikanum,
þrátt fyrir gömul leyndarmál og
óvænt ástarævintýri. Hún getur
ekki gleymt þeim afdrifaríka degi
þegar þriggja ára dóttir hennar
hvarf sporlaust. Öll leit reynist
árangurslaus, en nú sjö árum síð-
ar fær hún símhringingu sem
kveikir aftur vonir hennar. Hin
auðuga frú Arles hringir í hana.
Svo virðist sem hún hafi séð ljós-
mynd af dóttur hennar og álíti að
ef til vill sé litla stúlkan undir
sínu þaki - vegna aðstæðna sem
hún vill skýra fyrir Jennifer aug-
liti til auglitis . . . Frá þeirri
stundu flækist Jennifer inn í
atburðarás sem hún fær litlu um
ráðið og margt fer öðruvísi en
ætlað er.
Þórey Friðbjörnsdóttir þýddi.
Er barnið þitt undrabam?
Hefur barnið þitt leynda hæfi-
leika? Samkvæmt áliti sérfræð-
inga geta foreldrar komist að því
mjög snemma hvort börn þeirra
eru gædd miklum gáfum, þeir
þurfa aðeins að vita að hverju
þeir eiga að leita.
Flestir niuna eftir að hafa heyrt
fréttir af „súper-börnum"; börn-
um með yfirnáttúrulegar gáfur.
Þau leynast alls staðar og sér-
fræðingarnir segja aðeins helm-
ing þeirra uppgötvast.
Ýmislegt í fari barna getur
bent til greindar. Sumir halda því
fram að ungabörn sem snemma
geta stjórnað höfuðhreyfingum
sínum séu mjög greind, aðrir að
börn sem byrja snemma að tala
og ganga en um þann þátt eru
skiptar skoðanir. Vísindamaður-
inn Einstein byrjaði t.d. ekki að
ganga fyrr en um 3ja ára aldur
sem vissulega þykir mjög seint.
Læknir að nafni David Lewis
heldur því fram, að öll börn sem
fæðast hcilbrigð séu mjög greind.
„Vandamálið er að foreldrar
örva börn sín ekki nóg og gefa
þeim ekki svigrúm til að
þroskast.“ Hann mælir mcð því
að foreldrar útbúi fullkomlega
öruggt herbergi, sem sneitt er
hættum á við rafmagnsinnstung-
ur, þar sem barnið getur leikið
sér að vild og rannsakað
umhverfið. Öll börn eru litlir
sérfræðingar, segir hann.
En hvernig geta foreldrar kom-
ist að því hvort börn þeirra eru
sérlega greind. Hér fer listi yfir
nokkur einkenni hjá börnum sem
geta bent til greindar.
Þetta eru börn sem:
- Aldrei virðast ætla að hætta að
spyrja spurninga.
- Virðast ekki þurfa mikinn
svefn.
- Eru ótrúlega orkumikil.
- Hafa mikið ímyndunarafl.
- Nota mikinn orðaforða.
- Stjórna gjarnan leik með öðr-
um börnum.
- Eru hrifin af bókum.
- Veita smáatriðum ótrúlega
athygli.
- Hafa tilfinningu fyrir kímni.
- Geta einbeitt sér lengi í einu.
- Eru fljót að tileinka sér nýjar
hugmyndir.
- Missa áhugann ef þau eru beð-
in að endurtaka.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511- LUKKULÍNA 991002
J0=i£$=
Laugardagur kl.14:25
48. LEIKVIKA- 2. des. 1989 1 X 2
Lelkur 1 Stuttgart - Köln
Leikur 2 Aston Villa Nott. For.
Leikur 3 Chelsea - Wimbledon
Leikur 4 C. Palace - Q.P.R.
Leikur 5 Derby - Charlton
Leikur 6 Everton - Coventry
Leikur 7 Luton - Tottenham
Leikur 8 Man. City - Liverpool
Leikur 9 Millwall - Southampton
Leikur 10 Norwich - Sheff. Wed.
LeikurH Leeds - Newcastle
Leikur 12 Sunderland - Swindon
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN S. 991002
Þrefaldur pottur!!