Dagur - 15.12.1989, Qupperneq 5

Dagur - 15.12.1989, Qupperneq 5
Föstudagur 15. desember 1989 — DAGUR — 5 Sigurður Ólafsson, Hróbjartur Sigurðsson og Hólmfríður Bjartmarsdóttir með nýju bókina eftirAtla ogHólm- fríði. Mynd: IM - segir Hólmfríður Bjartmarsdóttir á Sandi, sem myndskreytti tvær þingeyskar bamabækur fyrir jólin Kannski gleymum við ein- hverju sem síst skyldi, enda erum við ekki að gera neina tæmandi úttekt á félagsstarfinu, heldur að rökstyðja okkar mein- ingu um að það sé blómlegt mið- að við fólksfjölda. „Það er mikið um að vera og ég fer ekki minna út hér á skemmtanir og annað en ég gerði fyrir sunnan, “ segir Hólm- fríður, „Mér fannst gaman þegar ég kom hér norður og fólk hafði heimatilbúin skemmtiatriði á þorrablótinu, það hefur að vísu ekki verið svo á hverju einasta þeirra. Mér finnst þetta mikið skemmtilegra ef fólk fær heima- menn til að skemmta, þetta verður allt öðruvísi en þegar fengnir eru skemmtikraftar að sunnan. Við gerum þetta líka í skólanuin, venjum börnin við að útbúa öll skemmtiatriði sjálf. “ Nam myndvefnað, en hefur síðan starfað við annað Það þarf engan að undra þó vel hafi tekist til við myndskreyt- ingu Maríuhænunnar og Kaup- staðarferðar dýranna. Hólmfríð- ur kann til verka þegar teikna skal mynd. Hún stundaði nám í myndvefnaði við Myndhsta- og handiðaskóla íslands, og lauk einnig prófi sem myndmennta- kennari. Hún hefur svolítið unn- ið við myndvefnað, en segist þó yfirleitt hafa verið að gera eitthvað annað. Hólmfríður er fædd og uppalin á Sandi, dóttir hjónanna Hólm- fríðar Sigfúsdóttur, sem oft er kennd við Kraunastaði eða Múla en býr nú í Reykjavík, og Bjart- mars Guðmundssonar frá Sandi, sem var bóndi og þingmaður en er nú látinn. Hólmfríður hélt suður, stund- aði nám sitt, giftist fyrri manni sínum í Reykajvík, eignaðist tvö börn og bjó með honum í Kaup- mannahöfn meðan hann stund- aði þar nám á árunum eftir '70. Áður en Hólmfríður flutti aftur heim að Sandi, með seinni manni sínum, Sigurði Ólafssyni, húsa- málara, bjó hún í nokkur ár á Höfnum á Suðurnesjum. - Gastu ekki sjálf nýtt þér Kaupmannahafnardvölina til framhaldsnáms? „Það var lítið því ég var með tvö ung börn. Ég fór heldur ekki mikið á söfnin því ég var lítið að hugsa um slíka hluti þá, börnin áttu hug minn. “ Fengum ckki að búa með neitt nerna tófur - Hvað togaði þig heim í Aðal- dalinn aftur, eftir að þú varst búin að prófa að búa bæði í Reykjavík og útlöndum? „Siggi, er eitthvað sérstakt við að búa hér frekar en annars staðar?" Nú kallaði Hólmfríður á eiginmanninn til aðstoðar við að svara svona heimspekilegri spurningu. Siggi sagðist hafa platað hana til að flytja alveg, en þau höfðu áður alltaf verið á Sandi í sínum sumarfríum. Hólm- fríður svaraði síðan spurning- unni: „Mér finnst fallegt hérna og kannski langaði okkur að prófa búskap. Við fengum nátt- úrlega ekki að búa með neitt nema tófur, en í þá daga máttu allir búa með tófur. Við höfum búið með tófur síðan og erum með 80 læður. Við vissum alltaf að héðan gætum við unnið með búinu, þannig að við höfum aldrei gert ráð fyrir að fara á hausinn þó ekki gengi að búa með tófurnar. Sigurður hefur m.a. keyrt fóðurbíl frá fóðurstöð KÞ á Húsavík og ég kenni við Hafralækjarskóla, þar sem Hró- bjartur sonur okkar er við nám. “ - Byggðamál hafa verið mjög í brennidepli síðustu mánuðina, hvað finnst þér um þá umræðu? Er landsbyggðin baggi á höfuð- borginni, eða öfugt? „Ég veit það ekki, það er dálít- ið erfitt að átta sig á svona dæmi. Ég og nágrannakona mín sögðum einu sinni í gamni, að það væri gaman að vita, ef gerð- ur væri múr um Reykjavík og hún gerð að borgríki, hvort hún yrði þá afskaplega rík og lands- byggðin afskaplega fátæk. Við komum ekki auga á að það gæti orðið, auður Reykjavíkur hlyti að byggjast að einhverju leyti á landsbyggðinni. Ef ég hugsa um þetta svona; Reykjavík sér og alla aðra landsbyggð sér, þá get ég ómögulega hugsað mér að Reykjavík geti grætt á því, og ég hugsa að hún mundi tapa.“ Gjaldeyririnn gleymist svo oft „Einhvern tíma varð einhverjum fjölmiðlamanni á að tala um hvað sólin skini stutt á ísafirði. Það væri makalaust að nokkur skyldi búa þar og hvort ekki væri rétt að flytja allt þetta aumingja fólk til Reykjavíkur, þar kæmist það fyrir við eina götu. Þá var bent á að það skapaðist gjald- eyrir á ísafirði. Þetta með gjald- eyrinn gleymist svo oft. Ef allar landbúnaðarvörur verða fluttar til landsins verður hægt að fá þær á lægra verði, en það þarf að greiða gjaldeyri fyrir. Lands- byggðin er í sveit og lands- byggðin er í þéttbýli, þar sem skapast okkar aðalútflutnings- verðmæti sem eru fiskafurðirnar. Það er alltaf verið að tala um að hagræða einhverju og flytja eitthvað. Ég er til dæmis á móti því að flytja Mjólkursamlag KÞ til Akureyrar, vegna þess að Mjólkursamlagið á Húsavik stendur sig vel, þótt þeir hafi byggt of stórt fyrirtæki yfir mjólkursamlagið á Akureyri. Þeir um það vandamál. Nú, ef mjólk- urframleiðsla í landinu er að verða of lítil, má kannski auka hana í Eyjafirði, sem er gott hérað. Það væri fljótfærni að rjúka til og loka á Húsavík. “ - Hvað hugsið þið ykkur í framtíðinni, búa hér áfram og una glöð við ykkar? „Það er allavega ekkert annað á döfinni. Við erum ekki búin að farga tófunum, og hvort sem þær eiga eftir að gefa eitthvað af sér eða ekki þá höfum við vinnu." - Nú langar þig sem lista- mann auðvitað að fylgjast með sýningum og fleiru sem boðið er upp á fyrir sunnan. Finnst þér þú þurfa mikið að sækja þangað? „Ég hef bara ekki efni á því. Ég fæ boðskort á hverja einustu sýningu í höfuðborginni, en vanalega daginn sem hún er opnuð. Enn hef ég ekki farið suð- ur til að sjá eina einustu, það er of seinlegt að keyra og of dýrt að fljúga. Ég sakna þess samt og í raun vildi ég helst ekki þurfa að gera neitt nema dútla við myndir að gamni mínu. Þó ég hafi gam- an af að kenna hefði ég helst vilj- að vera heima og vinna myndir, en það hef ég aldrei getað. Til þess að svo geti orðið þarf mað- ur annað hvort að hafa efni á að vinna ekki, eða að geta selt myndirnar. Það getur samt verið að hægt sé að lifa ódýrara, en við lifum nú frekar ódýrt miðað við marga aðra." Pá fer þetta allt að vcrða eins Mér finnst þó nokkuð mikils virði að geta horft á Kinnarfjöllin. Það er kannski þeirra vegna sem maður endist til að vera hér, en hérna er ekki síður fallegt á vet- urna en sumrin. Margir halda að við græðum mikið ef við fáum hingað stærri flugvöll. Það sem er heillandi við sveitir eru ekki bara falleg fjöll. Ég sagði eitt sinn að mér fyndist sveitin falleg í snjó en þá sagði kona sem kom hér, að sér þætti snjórinn ljótur, það var ófært og hún setti samasemmerki á milli þess sem er ljótt og þess sem veldur óþægindum. Það er ekki síður friður og ró, fuglalíf og ómengað umhverfi sem veldur því að það er faUegt í sveit. Kinn- arfjölhnn myndu ekkert breytast þótt menn reistu verksmiðju og reykháfarnir skyggðu á þau og ég veit ekki hvað, en við mund- um hætta að njóta þess að sjá þau. Eitt af því sem gerði umhverfið leiðinlegt á Suður- nesjunum, þar sem við vorum, var t.d. flugvöllurinn. Ég heyrði ekki fuglasöng og þá missir umhverfið svo mikið af sínum „sjarma". Menn tala um að hálf ánægjan við að vera við Laxá sé að hlusta á fuglasönginn. Ef menn heyra ekki annað en umferðarnið og flugvélagný þá fer auðvitað hálfur „sjarminn" af. Margar rjúpnaskyttur segja að hálf ánægjan við veiðarnar sé útiveran í náttúrunni, en sú ánægja fer ef enginn er friðurinn. Annars er ég á móti rjúpna- skytteríi, finnst rjúpan fallegur fugl til að horfa á, en ekki tU að skjóta. Sumarbústaðaeigendur eru að sækjast eftir einhverju öðru umhverfi og öðrum „sjarma“ en þeir hafa í borginni. Sveitin fer að líkjast borginni með tU- komu stórs flugvallar og þá fer þetta aUt að verða eins, shkt hef- ur gerst í svo mörgum löndum, og þar finnur þú ekki óspiUt umhverfi neins staðar.“ IM Hólmfríður segir að það hafi verið dálitið kyndug tilhugsun að teikna dýr i fötum en útkoman er skemmtileg.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.