Dagur - 29.12.1989, Side 1

Dagur - 29.12.1989, Side 1
72. árgangur 251. tölublað Flugsamgöngur í gær: Örtröð í loftinu Akureyri, föstudagur 29. desember 1989 - 330 manns tvístígandi á Akureyri Gífurleg flugumferð var yfir landinu í gær enda um 1000 manns sem biðu eftir að kom- ast með flugvél á áfangastað. I gærmorgun biðu t.a.m. 330 manns á Akureyri eftir flugi til Reykjavíkur með Flugleiðum en síðdegis höfðu fjórar Fokk- er vélar flutt stóran skerf af fólkinu suður. Með kvöldinu var síðan meiningin að fara þrjár ferðir til viðbótar og skila öllum á áfangastað fyrir mið- nætti. Norðurland: Ágætis „skot-veður“ á gamlársdag Unnendur áramótabrenna og flugelda geta glaðst því spáð er ágætis skot-veðri á Norður- landi yfir áramótin. Á laugardag og gamlársdag verða suðlægar áttir ríkjandi á þessu svæði, en þær verða ekki sterkar. í háloftum verður skýjað en úrkomulaust. Hitinn verður á bilinu 0-5 stig. Sem sagt ágætis veður til útiveru og lofa veður- fræðingar að skýin muni ekki skyggja á flugelda sem skotið verður upp. Á nýjársdag verður áfram milt veður en heldur hægari vindur. Gott veður sem heilsar Norð- lendingum á nýju ári. VG Á Akureyrarflugvelli fengust þær upplýsingar í gær að flug Flugleiða hefði gengið þokkalega fyrir sig. Allt landið opnaðist í einu og var þá mikill hartdagang- ur í öskjunni. Þótt margir hafi beðið á Ákureyri þá lögðu Flug- leiðir áherslu á að fljúga á staði sem ekki hafa upplýstar flug- brautir meðan enn var bjart, þannig kom aðeins ein vél til Akureyrar fyrir hádegi. Ein Fokker vél laskaðist lítil- lega á ísafjarðarflugvelli er hún rakst niður en óhappið tafði ekki flug milli Akureyrar og Reykja- víkur. Flugfélag Norðurlands gat flogið á alla áætlunarstaði í gær nema hvað vél þurfti að snúa við á leiðinni til ísafjarðar en þar var farið að snjóa og brautin lokað- Sandurinn bjargar mörgum á svellinu. Mynd: KL Afgreiðsla stjórnar Fiskveiðasjóðs á erindi Meleyrar: „Mun leggja til að stjómin geri grein l'yrir afgreiðslunni - segir Kristján Ragnarsson, stjórnarmaður í Fiskveiðasjóði „Mér finnst það ekki vera mitt heldur sjóðsstjórnarinnar í heild að svara fyrir þessa afgrciðslu. Því mun ég leggja það til á næsta fundi stjórnar Fiskveiðasjóðs, fljótt á nýju ári, að hún sendi frá sér eitt- hvað um þetta mál,“ sagði Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands Áhugi heimamanna í Öxarfirði á leigu á Árlaxi: „Leiga gæti verið góður kostur“ - segir Örlygur Hnefill Jónsson, bústjóri Samkvæmt heimildum Dags hafa heimamenn í Öxarfirði áhuga á að taka á leigu eignir fískeldisstöðvarinnar Arlax en sem kunnugt er rann tilboðs- frestur í eignir þrotabúsins út fyrir jólin án þess að nokkur sýndi kaupum á eignunum áhuga. Örlygur HnefiII Jónsson, bústjóri, staðfesti í samtali við blaðið að umræður hafi verið í gangi um þetta mál meðal heimamanna en hins vegar hafa viðræður við þrota- búið ekki farið fram. „Leiga gæti verið góður kostur Bylur á Öxnadalsheiði: Hjálparsveit skáta köUuð á vettvang Skafrenningur og hið versta veður var á Öxnadalsheiði í fyrrinótt og lentu ökumenn í nokkrum erfíðleikum af þeim sökum. Lögreglan á Akureyri fékk upphringingar frá áhyggju- fullu fólki sem vissi af vinum og vandamönnum á heiðinni og einnig var haft samband við lögregluna á Sauðárkróki. Varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri sagði að eftir að til- kynnt var um fólk sem ekki hefði skilað sér af Öxnadalsheiði hefði lögreglan tekið þá ákvörðun að kalla Hjálparsveit skáta á Akur- ey/i út til aðstoðar. Hjálparsveitin fór á fjallabíl í bylinn á Öxnadalsheiði og kom þá í ljós að þar var engin veruleg hætta á ferðinni. f>ó þurftu hjálp- arsveitarmenn að aðstoða nokkra ökumenn við að losa bíla en allir voru komnir til byggða í gær- morgun heilir á húfi. SS ef hægt yrði að selja fiskinn í stöðinni og leigja aðstöðuna. Án nokkurrar sölu eigna búsins yrði leigan strax verri kostur. En maður hafnar engu og auðvitað má spila á ýmsan hátt úr hug- myndum,“ segir Örlygur Hnefill. Óhætt er að segja að enn sé allt í óvissu með áframhaldandi rekstur stöðvarinnar. Sala á hluta seiða úr stöðinni til fiskeldis- stöðvarinnar ÍSNÓ er gengin til baka, m.a. vegna kuldanna sem voru fyrir jólin. Örlygur Hnefill sagði enn óljóst hvort í framhaldi af þessu verði um að ræða flutn- ing á seiðum úr seiðaeldisstöð- inni í Ártúni til Kópaskers, þar sem eru eldisker í eigu stöðvar- innar. Samvinnubankinn fjármagnar reksturinn enn og óljóst hve lengi reksturinn verður á hans herð- um. Við gjaldþrot fyrirtækisins runnu sjálfkrafa út ráðningar- samningar við starfsmenn og þrír þeirra hætta störfum í stöðinni nú um áramót. Bústjóri hefur rætt við starfsmennina um að áfram verði rúmlega þrjú störf í stöð- inni. JÓH íslenskra útvegsmanna og einn stjórnarmanna í Fiskveiðasjóði Islands, um afgreiðslu sjóðsins á erindi Meleyrar á Hvamms- tanga stuttu fyrir jól. Eins og mönnum er í fersku minni hafnaði Fiskveiðasjóður íslands erindi Meleyrar þar sem óskað var eftir láni til kaupa á raðsmíðaskipi Slippstöðvarinnar á Akureyri. Framkvæmdastjóri Meleyrar lýsti þeirri skoðun sinni í viðtali við blaðið fyrir jól að hjá stjórninni lægi önnur sjónarmið að baki þessari ákvörðun en þau að tekjuáætlun fyrirtækisins hefði ekki verið raunhæf. Þessi af- greiðsla hefur einnig kallað á hörð viðbrögð forsvarsmanna Slippstöðvarinnar á Akureyri. Annar forstjóra Fiskveiðasjóðs íslands neitaði blaðinu um upp- lýsingar um afgreiðslu erindis Meleyrar þegar málið hafði verið afgreitt í stjórninni en Kristján segir að menn eigi ekki að liggja undir áburði í fjölmiðlum um að afgreiðslan sé með einhverjum hætti óeðlileg. „Ef stjórnin ætlar ekki að gera grein fyrir þessu þá ætla ég ekki að liggja undir þessum ásökun- um,“ sagði Kristján. JÓH Nú árið er liðið: Aðeins tvær bremnir í höfiiðstað Norðurlands Samkvæmt úttekt sem Dagur gerði í gær á brennumálum verður kveikt í gamlársbrenn- um í flestum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi. Þó verður að lík- indum ekki brenna á Húsavík, og vísast til annarrar fréttar í blaðinu í dag um það mál, og þá eru ekki spurnir af brennu á Siglufírði. Ekki tókst í gær að afla upplýsinga um gamlárs- brennu á Raufarhöfn. Athyglisvert er að einungis tvær gamlársbrennur verða á Akureyri og hefði það þótt tíð- indum sæta fyrir nokkrum árum síðan. Önnur brennan verður vestan Hlíðarbrautar (á sama stað og í fyrra) en hin brennan verður sunnan og vestan við Reynilund. í báðum þessum brennum verður kveikt kl. 20. Ætlunin er að hópur unglinga safnist við Lundarskóla og haldi þaðan á kyndlum að síðarnefndu brennunni og kveiki í henni með viðhöfn kl. 20. Á það skal bent að þröngt er um bílastæði í nágrenni Lundar- hverfis-brennunnar og fólki því ráðlagt á að leggja bílum í hæfi- legri fjarlægð frá brennustað og ganga síðasta spölinn. Brennum á Norðurlandi eru gerð skil á blaðsíðu 2 í Degi í dag. óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.