Dagur - 29.12.1989, Page 6

Dagur - 29.12.1989, Page 6
6 - DAGUR - Föstudagur 29. desember 1989 kvikmyndarýni i___________ ' Umsjón: Jón Hjaltason Dulbúið sviðsleikrit? Borgarbíó sýnir: Gestaboð Babettu (Babettes Gæstebud). Lcikstjóri: Gabriel Axcl. Helstu leikendur: Stéphane Audran, Birgitte Federspiel og Bodil Kjer. Óskarsverðlaunamynd 1988. Byggð á samnefndri sögu Karenar Blixen. Gestaboð Babettu er einföld mynd, sögð á einfaldan hátt og látlausan. Tvær systur, dætur prests nokkurs í smáþorpi á Jót- landi, helga feðrum sínuin tveim- ur, holdlegum og andlegum, líf sitt. Báðar eiga þær völina en án nokkurs sjáanlegs hugarangurs eða sálarstríðs snúa þær bakinu við stundlegri ánægju í faðmi karlmanns; þessa heims gæði, frægð og hjónasæng, eru í augum systranna ekki annað en hjóm. Pær gegna köllun sinni, fórna sér fyrir feður sína, og þá ekkert síð- ur þann af holdi og blóði en hinn sem á sér hvorki upphaf né endi. Sannast sagna þá eru persónur systranna álíka óraunverulegar og óáþreifanlegar og sá guð sem við tilbiðjum aldrei ákafar en ein- mitt um jól. Þær minna á dúkku- lísur ungra stúlkna, flatneskju- legar, alltaf góðar; hafandi ekki annan vilja en þann sem eigendur þeirra gefa þeim. Petta sama má raunar segja um aðrar persónur Gestaboðs Babettu. Fyrir vikið hættir manni til að ljá allri mynd- inni táknræna merkingu; fátæk- leg sviðsmyndin undirstrikar ein- semd samfélagsins, systurnar eru hið góða í manninum, söngvar- inn og hermaðurinn hið leitandi, söfnuðurinn hið þröngsýna, sjálf- umglaða í manninum sem hreyk- ir sér hátt í krafti fáfræði sinnar. Babette er listrænan sjálf sem ein megnar að sameina holdið og and- ann, guðsandann og hrópandann í eyðimörkinni. En - öll túlkun er að einhverju leyti endursögn á sögunni um nýju fötin keisarans; spurning um sjáandann, trú hans og sannfær- UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULlNA 991002 Að svo miklu leyti sem bíófarar og leikhúsfarar eru ekki sama fólkið mætti segja mér að þeir síðarncfndu hefðu ekki minna gaman af Gestaboði Babettu. lingu, fordóma og tilgerð. Gesta- boð Babettu býður heim miklum bollaleggingum, sem ekki er endilega gæðastimpill á kvik- myndinni. Það er sönnu nær að hún hefði sómt sér miklu betur sem um það bil klukkustundar langt sjónvarps- eða sviðsleikrit. Kvikmyndin er langdregin, ein- stök atriði eru teygð óhóflega og efast má um innsæi Karenar Blix- en á karlmannslundina þegar hún gerir það að metnaðarmáli fyrir hermanninn að snúa sem „mikill maður“ til baka aftur í þorpið. Gestaboð Babettu ber um margt svip af leikriti og mætti vel ímynda sér að þeir sem hefðu ánægju af að fara í leikhús yrðu ekki sviknir af þessari svokölluðu kvikmynd Axels leikstjóra. Hvað er að gerast Húsavík: Áramótaball á nýársnótt Á Húsavík verður haldinn ára- mótadansleikur í Víkurnausti, Félagsheimilinu. Hótel Húsavík stendur fyrir dansleiknum sem hefst kl. 00:15 á nýársnótt og lýk- ur kl. 04:00. Aldurstakmark er 18 ár, en á sama tíma verður haldið diskótek fyrir unglinga í Víkur- bæ, Félagsheimilinu. Hljómsvéitin Gloría leikur fyr- ir dansi á áramótaballinu. Hún er skipuð piltum frá Húsavík og hefur notið mikilla vinsælda hér um slóðir á síðustu mánuðum. IM Grenivík: Steingrímiir spilar á nýársdansleiknum Áramótadansleikur verður á Grenivík á nýársnótt og hefst knallið þegar 15 mínútur verða liðnar af nýju ári. Dansað verður stanslaust til kl. 04. Um spilerí sér hljómsveit Steingríms Stefánssonar á Akur- eyri. Það er Lionsklúbburinn á Grenivík sem hefur veg og vanda af dansleiknum. Sutnir || Wb1 <P UtíltXiÉUVlH1JJJ U aörir taka enga áhættu! Eftireinn -ei aki neinn

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.