Dagur - 29.12.1989, Síða 15
íþróttir
Föstudagur 29. desember 1989 - DAGUR - 15
F
Eftir að jólamóti UI A í frjálsum íþróttum lauk var Jóhönnu Erlu
Jóhannsdóttur, 13 ára, afhcntur afreksbikar unglinga fyrir besta afrek
ársins í unglingaflokki. Bikarinn hlaut hún fyrir að stökkva 2,50 í lang-
stökki án atrennu og fyrir það hlaut hún 1100 stig. Á myndinni er einnig
Smári Stefánsson, 11 ára, en hann lenti í öðru sæti með 1040 stig fyrir að
hlaupa 50 m á 7,3 sekúndum.
Leiftur í annað sinn og nú á mun
öruggari hátt 5:3 í úrslitaleikn-
um. Ólafsfirðingarnir börðust vel
en mættu ofjörlum sínum enda
úrvalsmenn sem Gunnar hafði
keypt í lið sitt fyrir þessa keppni.
MA-Laugdælir 8:2
SM-Dalvík 1:6
KA 2. fl.-ÚGN 2:2
UMSE b-Leiftur 1:3
Laugdælir-Dalvík 4:6
MA-SM 3:3
ÚGN-Leiftur 2:1
KA 2. fl.-UMSE b 1:2
SM-Laugdælir 2:0
Dalvík-MA 2:10
UMSE b-ÚGN 3:5
Leiftur-KA 2. fl. 6:1
Tindastóll-Þór 2:3
Reynir-Æskan 0:0
Magni-KA m.fl. 0:1
TBA-HSÞ b 2:1
Þór-Æskan 7:0
Tindastóll-Reynir 2:1
KA m.fl.-HSÞ b 5:2
Magni-TBA 5:1
Reynir-Þór 1:5
Æskan-Tindastóll 3:5
TBA-KA m.fl. 1:2
HSÞ b-Magni 6:3
8 liða undanúrslit:
MA-Leiftur 1:3
Dalvík-ÚGN 2:3
Þór-Magni 2:1
Tindastóll-KA 4:5
4 liða undanúrslit:
Þór-Leiftur 4:5
KA-ÚGN 1:2
Úrslit:
3. sæti: KA-Þór 1:2
1. sæti: ÚGN-Leiftur 5:3
Það var stórlið Gunnars Níels-
sonar sem stóð uppi sem sigur-
vegari á Bautamótinu í innan-
hússknattspyrnu. Liðið sigraði
Leiftur í úrslitaleik 5:3. Þórs-
arar unnu KA 2:1 í leik um 3.-
4. sætið.
Það voru 16 lið sem hófu
keppni í íþróttahöllinni á Akur-
eyri. Mótið hófst kl. 9.30 um
morguninn og fór úrslitaleikurinn
fram 20.30 um kvöldið.
í fyrsta riðli kepptu MA,
- Leiftur í 2. sæti og Þor 1 3. sæti
Laugaskóli, SM og Dalvík. Þessi
riðill var mjög jafn en að lokum
komust MA og Dalvík áfram.
í öðrum riðli voru sterk lið; 2.
flokkur KA, Leiftur, stórlið
Gunnars Níelssonar og UMSE-b.
Gunni Nella og félagar hikstuðu
örlítið í fyrsta leiknum gegn 2.
flokki KA og gerðu jafntefli. Síð-
an lentu þeir í basli með Leiftur
og það var ekki fyrr en á loka-
sekúndum leiksins að Halldór
Áskelsson tryggði liðinu sigur.
Leiftur vann síðan öruggan sigur
1 á UMSE-b og 2. flokki KA þann-
ig að Gunni Nella og félagar og
Leiftur komust áfram í úrslit.
KA var með áberandi besta
liðið í þriðja riðli og vann alla
sína leiki. TBA byrjaði vel og
sigraði HSÞ-b nokkuð óvænt 2:1
og skoraði Einar Kristjánsson
markvörður TBA bæði mörk
liðsins! Liðið rann hins vegar síð-
an alveg á rassinn gegn Magna og
tapaði 5:1. Sá sigur fleytti Magna
áfram því þrátt fyrir tap gegn
HSÞ-b í síðasta leiknum var
markatala liðsins best af liðunum
þremur.
Þórsarar voru öruggir sigur-
vegarar í fjórða riðli. Baráttan
um annað sætið stóð á milli
Tindastóls og Reynis. Sauð-
krækingarnir með atvinnumann-
inn Eyjólf Sverrisson í farar-
broddi reyndust sterkari og unnu
2:1. Það voru því Tindastóll og
Þór sem héldu áfram ferðinni í
undanúrslitin.
Það var hart barist í undan-
úrslitunum. Leiftur vann þó
öruggan sigur á MA 3:1 en í öll-
um öðrum leikjum munaði ekki
nema einu marki. ÚGN vann
Dalvík 3:2, Þór vann Magna 2:1
og KA vann Tindastól 5:4.
í fjögurra liða úrslitum var
ekki síður hart barist. Þar vann
Þór Leiftur í hörkuleik 5:4 og
ÚGN lagði KA 2:1.
KA og Þór léku því til úrslita
um 3.-4. sætið og þar reyndust
Þórsararnir sterkari og unnu 2:1.
Stórlið Gunnars Níelssonar sýndi
hvað í því býr með því að leggja
Halldór Áskelsson lék með úrvalsliði Gunnars Níelssonar og var markahæsti
maður liðsins. Hér er hann ásamt Jóni Óskari sérlegum ráðgjafa í slysamái-
um. Höfuðpaurinn Gunnar Níelsson sést í bakgrunninum. En í liði Gunnars
voru eftirtaldir leikmenn: Árni Stefánsson, Sigurður Lárusson, Eiríkur Ei-
ríksson, Sigbjörn Gunnarsson fyrirliði, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, Páll
Gíslason, Jónas Baldursson, Þórarinn V. Árnason, Guðmundur Benedikts-
son, Halldór Áskelsson og Hinrik Þórhallsson.
Enska knattspyrnan:
ÞorvaJdur mætir Guðna
Nú er tilvalið að setja á sig göngu-
skíðin.
Nýárstrimm
í Kjaraaskógi
- Jólaskemmtim á
skautasvellinu í dag
Skíðatrimm verður haldið í
Kjarnaskógi á nýársdag.
Brautirnar verða troðnar ef
veður leyfir og stendur skíða-
trimmið yfir frá kl. 11.00 til
19.00. Þeim sem ætla að taka
þátt í trimminu er bent á gesta-
bók sem liggur frammi í
skálanum og er fólk beðið að
skrá nöfn sín í þá bók.
Nú er ágætis skíðafæri í
Kjarnaskógi og því tilvalið fyrir
áhugafólk um íþróttir og útiveru
að bregða sér á gönguskíði eða
hreinlega á tvo jafnfljóta til að
fagna nýju ári.
Skautamenn verða einnig á
ferli næstu daga. í dag kl. 17.30
verður jólaskemmtun á skauta-
svellinu og þar mæta jólasveinar
á skautum og dansa eða réttara
s'agt skauta í kringum jólatréð.
Skautafélagsmenn bjóða alla
velkomna á þessa jólaskemmtun,
hvort sem fólk mætir með skauta
eða ekki.
Á morgun laugardag verður
íshokkíkeppni og hefst hún kl.
16.30. Þar munu bæði yngri og
eldri flokkar eigast við í íshokkí-
inu.
Liðsstyrkur í Mývatnssveitina:
Líkur til að
Hörður þjálfi HSÞ-b
16.624
14.921
14.379
12.282
12.230
11.010
9.478
Ieika með liðinu og Iíkur benda
til þess að Vopnfirðingarnir
Viðar Sigurjónsson og Stefán
Guðmundsson leiki áfram með
liðinu.
Hörður staðfesti að samningar
stæðu yfir og myndi það skýrast
næstu daga hvort hann myndi
taka þetta verkefni að sér.
Það þarf ekki að fjölyrða um
það hve mikill hvalreki Hörður
og bræðurnir Jónas og Skúli yrðu
fyrir HSÞ-b. Hörður, sem er 26
ára gamall, hefur leikið 35 leiki í
1. deild með Leiftri og Völsungi
og skorað í þeim 6 mörk. Á síð-
asta keppnistímabili lék hann
með Völsungum í 2. deildinni og
skoraði 8 mörk.
Jónas Hallgrímsson er einnig
margreyndur 1. deildarleikmaður
og var m.a. einn af markahæstu
mönnum í 1. deildinni árið 1987.
Skúli bróðir hans er 21 árs og
kom frá HSÞ-b til Völsunga árið
1988.
HSÞ-b leikur í 4. deildinni en
ef þessir leikmenn ganga til liðs
við félagið verður þess ekki langt
að bíða að félagið komist upp um
a.m.k. eina deild.
Forest gegn Tottenham
Þaö voru flmm sem voru meö
12 rétta í Getraunum í síðustu
viku og fékk hver þeirra rúmar
600 þúsund í sinn hlut. Síðan
komu 75 seðlar fram með 11
rétta og fékk hver þeirra rúmar
7 þúsund krónur.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
Valur
ÍA
Selfoss
ÍBK
Víkingur
UBK^
Haukar
Á laugardaginn sýnir íslenska
sjónvarpið leik Aston Villa og
Arsenal í beinni útsendingu.
Sölukerfinu verður lokað kl. 14.55
og yfirferð verður búin kl. 17.30.
Þorvaldur Örlygsson og félagar
hans í Nottingham Forest mæta
Guðna Bergssyni og félögum í
Tottenham í Lundúnum. Þor-
valdur er í hópnum sem fer í leik-
inn en þegar þessar línur eru rit-
aðar er ekki vitað hvort Akureyr-
ingurinn byrjar inn á. En lítum á
þá leiki sem eru á íslenska get-
raunaseðlinum:
Aston Villa-Arsenal
Crystal Palace-Norwich
Derby-Coventry
Luton-Chelsea
Man. City-Millwall
QPR-Everton
Southampton-Sheff. Wed.
Tottenham-Nott. For.
Wimbledon-Man. Utd.
Leicester-West Ham
Swindon-Newcastle
Wolves-Bournemouth
Svona í lokin skulum við líta á
hvernig áheitin skiptast á milli 10
söluhæstu félaganna á landinu:
Raðir
1. Fylkir 34.826
2. Fram 22.969
3. KR 17.652
Viðræður standa nú yfir á milli
Harðar Benonýssonar og
HSÞ-b um að Hörður taki að
sér þjálfun meistaraflokks
félagsins í knattspyrnu næsta
sumar. Ef samningar takast
munu bræðurnir Jónas og
Skúli Hallgrímssynir einnig
Hörður Benonýsson.
Bautamótið í innanhússknattspyrnu:
Stórlid Gunna Nella vann