Dagur - 04.05.1990, Side 3
Föstudagur 4. mai 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Húsavík:
Kaupfélag Skagfirðinga:
Frístundir - íþróttir - keppni,
er yfirskrift ráðstefnu um
æskulýðs- og íþróttamál sem
haldin verður á Hótel Húsavík
nk. laugardag, 5. maí, og hefst
kl. 10. Það er Æskulýðs- og
íþróttanefnd Húsavíkur sem
fyrir ráðstefnunni stendur og
hvetur hún fólk til að sækja
ráðstefnuna, og sýna með því
áhuga á viðfangsefni hennar.
Veigamikil dagskrá er á ráð-
stefnunni og verða þar flutt mörg
erindi og áhugaverð; Janus Guð-
laugsson, námsstjóri, fjallar um
nýja stefnumörkum í skólaíþrótt-
um. Þráinn Hafsteinsson, íþrótta-
fræðingur fjallar um keppnis-
íþróttir barna og unglinga. Jó-
hann Ingi Gunnarsson, sálfræð-
ingur, flytur erindi er nefnist:
Eru afreksíþróttir einhvers virði?
Eftir hádegi mun Helga Krisf-
insdóttir, bankamaður, flytja
erindi sem nefnist: Völsungur í
íþrótta- og æskulýðsstarfsemi.
Sjómannafélag Eyjafjarðar:
Viðsemjendur
að sanumigaborði
Aðalfundur Sjómannufélags
Eyjafjarðar var haldinn 27.
apríl 1990 og samþykkti fund-
urinn eftirfarandi ályktun um
kjaramál sjóinanna.
„Aðalfundur Sjómannafélags
Eyjafjarðar vill minna á að sjó-
menn hafa ckki fengiö viðræður
við sína viðsemjendur í þrjú ár,
eða síðan 1987. Fundurinn telur
að það sé orðiö fyllilega tímabært
að sjómenn fái viöræður um sinn
kjarasamning og hann verði leið-
réttur í samræmi viö þá veiði og
verkunaraðferðir sem nú tíðkast.
Olíukpstnaðarhlutdeild sjó-
manna er ekki lengur í nokkru
samræmi við það sent skiptakjör
sjómanna segja til um, enda hafa
sjómenn dregist aftur úr öðrum
launþegum í launum það mikið
að ekki verður lengur við unað.
Fundurinn krefst þess að við-
semjendur sjómanna komi nú
þegar að samningaborði og hafist
verði handa um gcrð nýs kjara-
samnings.
Aðalfuiidur Sjómannafélags
Eyjafjaröar telur að það beri að
leggja niður Verðlagsráð sjávar-
útvegsins og að Alþingi íslend-
inga setji lög um það að allur
fiskur sem landað er til vinnslu
hér á landi verði látinn fara í
gegnum markaði. Það verður
ekki lengur við það unað að allir
íslenskir sjómenn sitji ekki við
sarna borð í þeim efnum." JÓH
Fötluð umgmenni og samfélagið,
nefnist erindi Lilju Sæmunds-
dóttur, sérkennara og forstöðu-
manns sambýlisins á Húsavík.
Ingólfur Freysson, kennari, mun
fjalla um félagslíf barna og ungl-
inga, og samstarf skóla og sveit-
arfélaga. Hvað ungur nemur,
gamall temur, nefnist erindi Hall-
dórs Valdimarssonar skólastjóra.
Pálmi Jakobsson, kennari, fjallar
um samskipti uppalenda og
íþróttafélaga. Hörður Harðarson
nemandi við Framhaldsskólann
fjallar um æskulýðsstarf frá sjón-
arhóli neytandans. Jón K. Guð-
bergsson, fulltrúi, fjallar um sam-
tökin vímulaus æska og Andrés
Ólafsson, skrifstofumaður, um
æskulvðsmál.
Lionshreyfingin:
Morgundaguriim
heigaður baráttu
gegn vímuefnum
Á inorgun verður alþjóðlegur
vímuefnavarnardagur Lions-
hreyfíngarinnar. Seldir verða
túlipanar til styrktar barátt-
unni gegn vímuefnum.
Lionshreyfingin á íslandi sér
um framkvæmdina hér á landi.
Sölufólk verður á ferðinni í dag
og á morgun. Öllum ágóða söl-
unnar verður varið til forvarnar-
starfs og kynningar meðal ungl-
inga á skaðsemi notkunar vímu-
efna.
Aðalfundur
Knupfélags
Fj á rm u n a m ynd u n Fiskiðj unn ar
jókst um 44 milljónir milli ára.
Skagfírðinga var haldinn á
Sauðárkróki sl. mánudag.
Gott hljóð var í mönnum og
greinilegt að bjartsýni er ríkj-
andi enda batnaði rekstur
Kaupfélags Skagfírðinga
verulega á seinasfa ári. Þór-
ólfur Gíslason katipféiags-
stjóri greindi frá stöðu og
rekstrarafkomu síðasta árs í
ræðu sinni.
Rekstrarbati í flestum deild-
um fyrirtækisins á seinasta ári
var kærkomin frétt fyrir félags-
menn á aöalfundi. Einna uiesta
athygli vekur stórbætt afkoma
fiskvinnslunar. Fiskiðja Sauðár-
króks skilaöi 1.4 milljónum i
luignað á seinasta ári miðað við
36,8 milljóna tap 1988. Það er
37.2 milljómr í rekstrarbata.
Al'li sem tekinn var til vinnslu
jókst um 90(1 tonn. í lokaorðum
ræðu sinnar þakkaöi kaupfc-
lagsstjori forustumönnum fisk-
vinhslunnar gott starf og sagði
að þar væru ungir og dugmiklir
menn að störfum.
Rekstur M j ólku rsa m I agsi n s
batnaöi til muna og einnig gekk
verslunarsvið mjög vel og var
um talsverða veltuaukningu að
ræða þar. Rekstur fóðurverk-
smiðjunnar í Vallhóma gekk vel
eins og undanfarin ár. Utibúið t
Hofsósi er sú rekstrareining
sem skyggir a annars góða
afkornu á árinu. Tap útibusins
nam um níu milljónum króna
og verður á þessu ári ráðist ,í
endurskipulagningu rekstrar
þess. kg
Frístundir-íþróttir-keppm
- yfirskrift ráðstefnu um æskulýðs- og íþróttamál á morgun
Lok ráðstefnunnar verða síð-
degis á laugardag en gert er ráð
fyrir umræðum og fyrirspurnum,
bæði fyrir hádegi og síðast á
| dagskránni.
Þátttaka ungra barna í keppn-
isíþróttum, áhugi forráðamanna
fyrir keppni milli ungra barna og
keppnisferðir barna yfir vetrar-
mánuðina hafa mjög verið til
umræðu manna milli á undan-
förnum misserum. Þessi mál og
mörg fleiri verða eflaust tekin til
ítarlegrar umfjöllunar á ráðstefn-
unni á laugardaginn, og er óhætt
að hvetja foreldra og uppalendur
til að nota tækifærið til að afla sér
upplýsinga, og til að staldra við
oe huesa málin. IM