Dagur - 04.05.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Föstudagur 4. maí 1990
myndasögur dags
ÁRLANP
Það sem viö þurfum að gera
•okkur grein fyrir er að það
eru tvær hliðar á öllum
•málum!... Ég vil fá að heyra
bæði siónarmiðin...
s iMargrét... ' Hannerpadda!
I vilt þú Feit löt padda!!
ANPRÉS ÖNP
BJARGVÆTTIRNIR
Fyrsta flug sem fáanlegt var til Nairobi
var með millilendingu í Kairó. Um borð
eru þrír meðlimir Bjargvættanna... J
© 1987 Kmg FMlures Syndicale Inc WorkJ nghls
m
# Hamfarir
Blessuð tiðin hefur verið
öfgafull undanfarna mán-
uði. Veturinn var snjólaus
framan af en síðan fór allt á
kaf. Stormar og stórviöri
gengu yfir landið, fannfergi
var gríðarlegt á Norður-
landi, stuttur hlákukafli
gerði íbúðareigendum erfitt
fyrir en síðan fór aftur að
snjóa. Þá kom aftakarok,
sannkallað Linduveður,
sem feykti þakplötum af
húsum. Enn varð eignatjón.
Loks fór að vora svo um
munaði og Akureyri varð
umlukin vatni. Tjón íbúðar-
eigenda meira en áður.
Hvað eiga svona hamfarir
að þýða? Of mikill snjór, of
mikið rok og of mikil hláka
skiptast á. Þannig var
undangenginn vetur að
fyrstu vikum sumars með-
töldum og því er ekki að
furða þótt margir hugsi með
hryllingi til sumarsins. Sjálf-
sagt verður ýmist of heitt
eða of kalt, of blautt eða of
þurrt. Skyldu gróðurhúsa-
áhrifin vera farin að stjórna
veðrinu meira en menn al-
mennt grunar? Við heimtum
skýringar á þessum ósköp-
um.
# Júróvisjón
Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva brestur á
næstkomandi laugardags-
kvöld og sjaldan eða aldrei
hafa íslendingar verið jafn
sigurvissir, þó hafa þeir allt-
af verið það nema þegar
Daníel Ágúst söng lagið
hans Valgeirs sem enginn
vildi heyra. Veðbankar eru
farnir að spá okkur einu af
toppsætunum og fólk úr
ýmsum löndum keppist við
að hrósa laginu Eitt lag enn.
Hinir ungu og myndarlegu
flytjendur eru verðugir
glansfulltrúar þjóðarinnar
og þau Sigga og Grétar
munu hala inn nokkur stig
með því að brosa blítt.
Skagfirska sveiflan verður
kannski viðurkennd stefna í
alþjóðatónlist og fólk mun
flykkjast í pílagrímsferðir til
Sauðárkróks. Hörður verður
fenginn til að semja lög fyrir
Michael Jackson. Bíðum nú
við, er ekki ráðlegast að
stilla gleðilátunum í hóf þar
til úrslit liggja fyrir. Við höf-
um áður farið flatt á okkar
gleðibankabjartsýni og þótt
við lyftum okkur úr botn-
sætinu er 16. sætið ekki
langt undan.
dagskrá fjölmiðla
Sjónvarpið
Föstudagur 4. maí
17.50 Fjörkálfar (3).
(Alvin and the Chipmunks.)
18.20 Hvutti (11).
(Woof.)
Lokaþáttur.
18.50 Táknmalsfréttir.
18.55 Poppkorn.
19.200 Reimleikar á Fáfnishóli (2).
(The Ghost of Faffner Hall.)
19.50 Abbott og Costello.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Vandinn ad verða pabbi.
(Far pá færde.)
Fyrsti þáttur af sex.
Danskur framhaldsþáttur í léttum dúr.
Aðalhlutverk: Jan Ravn, Thomas Mörk og
Lone Helmer.
Ungur maður leitar uppi föður sinn, sem
telur sig barnlausan og á samband þeirra
eftir að leiða til margra spaugilegra
atvika.
21.00 Marlowe einkaspæjari (2).
(Philip Marlowe.)
21.55 Marie.
Bandarísk bíómynd frá árinu 1986.
Aðalhlutverk: Sissy Spacek, Jeff Daniels,
Keith Szarabajka.
Fráskilin þriggja barna móðir kemur sér i
vandræði þegar hún fer að gagnrýna
starfsaðferðir og spillingu stjórnvalda í
Tennessee.
23.45 Utvarpsfréttir i dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 4. maí
16.45 Santa Barbara.
17.30 Emelía.
Teiknimynd.
17.35 Jakari.
Teiknimynd.
17.40 Dvergurinn Davíð.
(David the Gnome)
Falleg teiknimynd fyrir börn.
18.05 Lassý.
Leikinn framhaldsmyndaflokkur fyrir fólk
á öllum aldri.
18.30 Bylmingur.
19.19 19.19
20.30 Byrgjum brunninn.#
Lionshreyfingin á Norðurlöndum hefur
gert fyrsta laugardag maímánaðar ár
hvert að vímuvarnardegi. Þeir einbeita
sér að forvarnarstarfi með áherslu á að
ungt fólk rækti með sér sjálfstæðan hug
og þori að taka afstöðu gegn vímuefnum
og í framhaldi af því hefur Lionshreyfing-
in unnið kennsluverkefnið „Lions Quest"
sem kennt er í rúmlega fimmtíu skólum. í
þessum þætti kemur fram ungt fólk sem
P hefur tekið afstöðu gegn vímuefnum og
skarað fram úr á einn eða annan hátt.
Einnig verður rætt við lionsmenn og aðra
sem vinna forvarnarstarf gegn notkun
vímuefna.
21.05 Líf í tuskunum.
(Rags to Riches)
Gamanmyndaflokkur.
22.00 Saklaus ast.
(An Innocent Love)
Aðalhlutverk: Melissa Sue Anderson,
Doug McKeon og Rocky Bauer.
23.35 pukur med pilluna.
(Prudence and the Pill).
Aðalhlutverk: Ronald Neame, Deborah
Kerr og David Niven.
01.10 Njósnarinn sem kom inn úr kuldan-
um.
(The spy who came in from the cold).
Þrælgóð spennumynd um breskan njósn-
ara sem þykist vera tvöfaldur í roðinu
gagnvart austurblokkinni.
Aðalhlutverk: Richard Burton, Clair
Bloom, Oskar Werner, Peter Van Eyck og
Sam Wanamaker.
02.55 Dagskrárlok.
Rás 1
Föstudagur 4. mai
6.45 Vedurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
- Sólveig Thorarensen.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðúrfregnir kl. 8.15. Auglýsingar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
Mörður Árnason talar um daglegt mál
laust fyrir kl. 8,00
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatiminn: „Sögur af Freyju"
eftir Kristinu Finnbogadóttur frá Hít-
ardal.
Ragnheiður Steindórsdóttir lýkur lestrin-
um (5).
(Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00)
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Af tónmenntum.
Þriðji þáttur. Af tónskáldum og tónfræð-
um.
Umsjón: Eyþór Arnalds.
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar.
10.10 Vedurfregnir.
10.30 Kíkt út um kýraugad.
Umsjón: Viðar Eggertsson.
(Einnig útvarpað á sunhudagskvöld kl.
21.00)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.15 Daglegt mál.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
lýsingar.
13.00 í dagsins önn - í heimsókn á vinnu-
staði.
Umsjón: Valgerður Benediktsdóttir.
13.30 Miðdegissagan: „Spaðadrottning"
eftir Helle Stangerup.
SverrirvHólmarsson les (22).
14.00 Fréttir.
14.03 Ljúflingslög.
15.00 Fréttir.
15.03 „Skáldskapur, sannleikur, siðfræði"
Frá málþingi Félags áhugamanna um
bókmenntir og Félags áhugamanna um
heimspeki.
15.45 Neytendapunktar.
16.00 Fréttir.
16.03 Að utan.
16.08 Dagbókin.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Þættir úr óperunni „Marizu greifa-'
frú" eftir Emmerich Kálmán.
18.00 Fréttir.
18.03 Á aftni.
18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Kórakeppni EBU 1989: „Let the
peoples sing"
Keppni blandaðra kóra.
Kynnir: Guðmundur Gilsson.
21.00 Kvöldvaka.
Pétur Bjarnason fjallar um verkalýðsbar-
áttu Isfirðinga á árum áður.
Arndís Þorvaldsdóttir á Egilsstöðum talar
um hlut kvenna í verkalýðsbaráttu Aust-
firðinga.
Lesið úr verkum Þorsteins Erlingssonar.
Umsjón: Sigrún Björnsdóttir.
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins
Dagskrá morgundagsins.
22.30 Danslög.
23.00 í kvöldskugga.
24.00 Fréttir.
00.10 Ómur að utan.
- Norbergs-strejken 1891-92.
Umsjón: Signý Pálsdóttir.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Föstudagur 4. mai
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn
í ljósið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
9.03 Morgunsyrpa.
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
11.03 Gagn og gaman
með Johonnu Haiðardottui oy Astu:
Ragnheiði Jóhannesdóttur.
Molar og inannlifsskot i bland við goða
tonlist.
Þarfaþing kl. 11.30 og aftur kl. 13.15.
12.00 Fréttayfirlit Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
Gagn og gaman heldur áfram.
14.03 Brot úr degi.
Eva Asrún Albertsdóttir.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
• Sigurður G. Tómasson, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson og Katrín Baldursdóttir.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, simi 91-686090.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Sveitasæla.
Meðal annars verða nýjustu lögin leikin,
fréttir sagðar úr sveitinni, sveitamaður
‘vikunnar kynntur, óskalög leikin og fleira.
20.30 Gullskífan.
Að þessi sinni „Rich and poor“ með
Randy Crawford.
21.00 Á djasstónleikum - Frá Norrænum
útvarpsdögum.
Frá tónleikum á fyrri Norrænum útvarps-
djassdögum, í Svíþjóð og Finnlandi.
22.07 Kaldur og klár.
Óskar Páll Sveinsson með allt það nýjasta
og besta.
02.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
2.00 Fréttir.
2.05 Rokk og nýbylgja.
3.00 ístoppurinn.
4.00 Fréttir.
4.05 Undir værða^voð.
Ljúf lög undir morgun.
Veðurfregnir kl. 4.30.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Blágresið blíða.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Áfram ísland.
7.00 Úr smiðjunni - Crosby, Stills, Nash
og Young.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Föstudagur 4. mai
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 4. maí
17.00-19.00 Fjallað um það sem er að ger-
ast um helgina á Akureyri.
Stjórnandi er Pálmi Guðmundsson.
Fréttir kl. 18.00.